Fréttablaðið - 16.08.2013, Blaðsíða 12

Fréttablaðið - 16.08.2013, Blaðsíða 12
16. ágúst 2013 FÖSTUDAGUR| FRÉTTIR | 12 Lifðu, lærðu, leiktu með Sony Vaio Borgartún 37, Reykjavík / Kaupangi, Akureyri / netverslun.is Fislétt orkubúnt 13,3" snertiskjár Intel Core i7 örgjörvi 4 GB minni 24 GB SSD og 500 GB diskar Verð: 159.990 kr. BORGARMÁL Hart var tekist á um grasslátt á fundi umhverfis- og skipulagsráðs Reykjavíkur borgar í gær. Sjálfstæðismenn bókuðu meðal annars að „öllum borgar- búum væri ljóst að sleifarlag hefur verið við grasslátt og almenna umhirðu borgarlandsins í sumar“. Þessu svaraði meirihluti Besta flokksins og Samfylkingarinnar – auk borgarfulltrúa Vinstri grænna – að ástandið væri vel viðunandi. Þá bæta þau við að frekari umhirða yrði kostnaðarsöm og að slíkt kæmi niður á brýnni verkefnum. „Okkur finnst að ástandið eigi að vera meira en viðunandi,“ segir Gísli Marteinn Baldursson, borgar fulltrúi Sjálfstæðisflokks- ins. „Og auðvitað skiljum við vel að það sé verið að spara en þessu er illa sinnt,“ segir Gísli. „Menn eiga að hafa meiri metn- að en að hafa borgina viðunandi. Ég tek því undir með því sem Besti flokkurinn sagði fyrir síð- ustu kosningar; að þeir sætti sig aðeins við það besta. Það á líka við um grassláttinn,“ segir Gísli. - vg Segir að borgarfulltrúar eigi ekki að sætta sig við viðunandi umhirðu: Tekist á um grasslátt í borginni EKKI NÓG Gísli Marteinn Baldursson segir viðunandi ekki nóg. EGYPTALAND Bráðabirgðastjórn egypska hersins boðar fulla hörku gegn íslamistum, en Bræðralag múslíma boðar til fjöldamótmæla í dag, á „degi reiðinnar“, sem svo er nefndur. Engar sættir eru því í sjónmáli í landinu en bæði herinn og Bræðra- lagið hafa til langs tíma haft víð- tækan stuðning meðal almennings í Egyptalandi. Átökin á miðvikudag, þegar sér- sveitir réðust til atlögu gegn stuðn- ingsmönnum Múhameds Morsi, urðu þau blóðugustu sem þar hafa þekkst áratugum saman. Mann- fallið þennan eina dag varð meira en samanlagt í átján daga uppreisn almennings gegn Hosni Múbarak árið 2011. Stjórnvöld sögðu í gær tölu lát- inna komna upp í 525, en sú tala gæti enn hækkað því margir eru alvarlega særðir. Fjöldi særðra er farinn að nálgast fjögur þúsund, samkvæmt tölum stjórnvalda. Bræðralag múslíma segir að fjöldi látinna sé enn hærri og skipti þúsundum. Ofbeldið hefur vakið hörð við- brögð frá stjórnvöldum, samtökum og stofnunum víða um heim. Þýsk, bresk og frönsk stjórnvöld hafa kallað sendiherra Egyptalands á sinn fund. Danir hafa hætt við að greiða 30 milljónir danskra króna í aðstoð til Egypta. Þá lýsti Barack Obama Banda- ríkjaforseti því yfir að hætt verði við sameiginlegar heræfingar: „Hefðbundið samstarf okkar getur ekki haldið áfram eins og ekkert hafi í skorist á meðan verið er að drepa almenna borgara á götum úti og réttindi eru tekin af fólki.“ Hann hefur þó ekkert sagt um hvort Bandaríkin hætti að styðja egypska herinn með fjárframlögum. Stjórnin neitar því ekki að skotið hafi verið á fólk en segir að fyrstu skotin hafi komið frá stuðn- ingsmönnum Morsís. Liðsmenn Bræðralags múslíma hafi sumir verið vopnaðir og beitt sér af mik- illi hörku. Navy Pillay, mannréttinda- fulltrúi Sameinuðu þjóðanna, krefst þess hins vegar að framferði sérsveitarmanna verði rannsakað í þaula: „Fjöldi látinna og særðra, jafnvel samkvæmt tölum frá stjórn- völdum sjálfum, bendir til þess að ofbeldið hafi verið óhóflegt, jafnvel langt úr hófi fram.“ Í gær fékk lögreglan hins vegar skýra heimild frá yfirvöldum til þess að drepa fólk, svo fremi sem það sé gert í þeim tilgangi að verja bæði sjálfa sig og helstu stofnanir samfélagsins gegn árásum. Jafnframt heitir bráðabirgða- stjórnin fullri hörku gagn- vart hryðjuverkum Bræðralags múslíma. Stjórnin segir að liðs- menn Bræðralagsins ætli sér að kippa stoðunum undan egypska ríkinu. gudsteinn@frettabladid.is Engar sættir í sjón- máli í Egyptalandi Bráðabirgðastjórnin segir að fjöldi látinna á miðvikudag sé kominn yfir 500 en Bræðralag múslíma talar um þúsundir látinna. Bræðralagið boðar til fjöldamót- mæla í dag, á „degi reiðinnar“. Lögreglan hefur fengið heimild til að drepa fólk. VETTVANGUR ÁTAKA Rabaa al Adawíja-moskan í Kaíró, ein þekktasta moska borgarinnar, er illa farin eftir átökin á miðvikudag. Rétt við moskuna voru stærri búðirnar af tveimur búðum mótmælenda sem rýmdar voru. NORDICPHOTOS/AFP SYRGJENDUR Harmi lostnir íbúar Kaíró innan um lík ástvina sinna, sem til bráða- birgða voru lögð á gólf El Imam-moskunnar í Nasr City-hverfinu. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.