Fréttablaðið - 16.08.2013, Blaðsíða 70
16. ágúst 2013 FÖSTUDAGUR| MENNING | 38
„Við ferðumst heilan helling og kaupum
alveg endalaust mikið. Við erum því dug-
legar að sanka að okkur alltof miklu af
fötum. Í fyrra ákváðum við að létta aðeins á
fataskápnum með því að halda fatamarkað.
Það tókst ótrúlega vel og við ætlum að endur-
taka leikinn á morgun,“ segir söngkonan
Gígja Gylfadóttir, meðlimur í kórnum Gra-
duale Nobili. Kórmeðlimir halda fatamarkað
í portinu hjá kaffihúsinu Prikinu á morgun.
Að sögn Gígju eru allir meðlimir kórsins
með svipaðan fatasmekk en hún tekur fram
að þeir séu af öllum stærðum og gerðum
og því ættu flestir að geta fundið flík sem
passar. „Við erum ekki bara að selja fatnað
heldur líka ýmislegt annað. Ein okkar er að
hanna skart og skemmtilega kraga sem hún
ætlar að selja. Markaðurinn hefst í hádeginu
og verður eitthvað fram eftir degi, eða eins
lengi og við þolum við,“ segir hún og hlær.
Graduale Nobili telur 24 meðlimi og hefur
kórinn ferðast og starfað með tónlistar-
konunni Björk undanfarin þrjú ár. Samstarfi
þeirra lýkur í haust og þá taka við ný verk-
efni hjá kórnum.
„Þetta er búinn að vera alveg ótrúlega
skemmtilegur tími. Í haust þurfum við svo
að setjast niður og spá í hvað við viljum gera
eftir þetta ævintýri,“ segir Gígja glaðlega.
- sm
Kórstúlkur Bjarkar selja góss sitt
Gígja Gylfadóttir og aðrir meðlimir kórsins Graduale Nobili efna til fatamarkaðar á Prikinu á morgun.
SELJA GÓSSIÐ Stúlkurnar í Graduale Nobili efna til
fatamarkaðar á morgun. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
„Það er mjög spennandi að vera
partur af þessu. Þetta er í fyrsta
sinn á Íslandi sem danshöf-
undur hefur verið fenginn í svona
lagað,“ segir danshöfundur-
inn Sigríður Soffía Níelsdóttir.
Hún er höfundur dansverksins
Eldar – dansverk fyrir þrjú tonn
af flugeldum. Verkið er væntanleg
flugeldasýning á menningarnótt í
Reykjavík 24. ágúst. Í fyrsta sinn í
sögu Reykjavíkur verður flu geldum
skotið upp frá þökum þekktra bygg-
inga, eða Þjóðleikhúsinu og Tollhús-
inu, og einnig frá Miðbakkanum á
höfninni og Faxagarði.
Sigríður Soffía er titluð sem
listrænn stjórnandi verksins.
„Vodafone vildi fá listamann
inn í ferlið og einhvern veginn
barst mitt nafn til þeirra. Það
var heppilegt því ég hafði verið
að leita mér að leiðum til að koma
flugeldum inn í dansverk,“ segir
Sigríður Soffía, spurð út í tilurð
verksins, en úti í heimi hafa stór-
ar flugeldasýningar verið útfærð-
ar af danshöfundum. Hún segir
margt vera líkt með flugelda-
sýningum og dansverkum. „Mig
langaði að fókusera á einföld form
og allt litaval og öll mynstur eru
sérsniðin fyrir þessa sýningu.
Hún er samin eins og dansverk
og dansararnir eru flugeldarnir.“
Í stað þess að upplifa flugeldana
eins og af sjónvarpsskjá í tvívídd
verða gestir menningarnætur
umkringdir svo þeir upplifi kraft
sprengiefnisins nær og upplifi sig
sem þátttakendur í sýningunni í
stað fjarlægs áhorfanda.
Til að gera upplifunina enn meiri
verða öll ljós slökkt í miðbænum.
Undirbúningur hófst fyrir einu
ári, enda er um afar metnaðar-
fullt og stórt verkefni að ræða.
Það að færa sýninguna inn í
Reykjavíkur borg var vandkvæð-
um háð þar sem öryggi áhorfenda
er í fyrirrúmi og að sögn Sigríðar
hafa Hjálparsveit skáta og Reykja-
víkur borg unnið glæsilega vinnu
við undirbúning sýningarinnar,
þar á meðal við öryggismálin.
Verk Sigríðar Soffíu er hluti af
Reykjavík Dance Festival og er
hún með tvö önnur verk á hátíð-
inni. Nánari upplýsingar fást á
síðunni www.siggasoffia.com.
freyr@frettabladid.is
Danshöfundur stýrir
fl ugeldasýningunni
Sigríður Soff ía Níelsdóttir er listrænn stjórnandi fl ugeldasýningar menningar-
nætur. Flugeldar verða sprengdir af þökum þekktra bygginga.
STÝRIR FLUGELDASÝNINGU Sigríður Soffía Níelsdóttir er listrænn stjórnandi
flugeldasýningar menningarnætur. MYND/MARÍNÓ THORLACIUS
„Það hljómar kannski klisjukennt en það er erfitt að vera Íslendingur án
þess að verða fyrir áhrifum frá náttúru Íslands. Því er hluti sýningarinnar
innblásinn af flugeldasýningunum sem Ísland hefur gefið okkur, á borð við
Lakagíga, Gullfoss og fleiri náttúruperlur,“ segir Sigríður Soffía um verk
sitt Eldar. „Einangrun á sama forminu virðist þjóna náttúrunni vel. Því
vildum við gefa áhorfendum færi á því að njóta einfaldleikans í bland við
óreiðu.“
Á sýningunni fær áhorfandinn að njóta danssmíða í sínu hreinasta
formi. Áhorfendur fá að upplifa fegurð hreyfingar, kraft einfaldra forma,
blæbrigði lita og þyngd og stemningu hrynjandi. Fólki er gefinn kostur á
að finna hugarró í að standa með 80 þúsund manns og hugsa einungis um
kraft og fegurð Reykjavíkur og Íslands.
Innblástur frá náttúru Íslands
Þrjú tonn af fl ugeldum
verða sprengd í
miðborginni á menningar-
nótt.
3
Una Stefánsdóttir, 22 ára söng-
kona og lagasmiður úr Reykja-
vík, hefur gefið út sitt fyrsta lag.
Það nefnist Breathe og verður á
væntanlegri plötu hennar sem
kemur líkast til út í byrjun næsta
árs.
„Þetta er búin að vera eins og
hálfs árs meðganga,“ segir Una,
spurð út í gerð plötunnar. „Ég er
búin að spila þessa tónlist mikið.
Er búin að vera með tónleikaband
og þetta hefur mótast mikið. Ég
ákvað að taka góðan tíma í þetta
allt saman og gera þetta vel.“
Una er að ljúka við nám sitt í
djasssöng við FÍH. Hún kemur
úr mikilli tónlistarfjölskyldu
því systir hennar, Erla, er þegar
útskrifuð úr skólanum og spilar
hún á bassa í hljómsveitinni
hennar. Auk þess er pabbi þeirra,
saxófónleikarinn Stefán S. Stef-
ánsson, kennari við skólann.
Hann er líklega þekktastur fyrir
að hafa samið lagið Disco Frisco.
Þegar Una er spurð út í tónlist-
ina sína segist hún mest blanda
saman sálartónlist og R&B, þrátt
fyrir að lagið Breathe sé „ekta
popp“. Eitt sinn var henni líkt við
hina bandarísku Aliciu Keys á
tónleikum, enda spila þær báðar
á píanó og syngja, og tekur Una
þeirri samlíkingu opnum örmum.
„Ég er algjör „wannabe“ Alicia
Keys,“ segir hún og hlær.
- fb
Hefur verið líkt við Aliciu Keys
Söngkonan Una Stefánsdóttir hefur gefi ð út sitt fyrsta lag, Breathe.
GEFUR ÚT LAG Una Stefánsdóttir hefur
gefið út sitt fyrsta lag, Breathe.
FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
35
Alicia Keys hefur selt um 35
milljónir hljómplatna.
Er tískan pólitísk?
Nú til dags blandar
millistéttin gjarnan saman
hátískuvöru og notuðum
fötum til að aðgreina sig
með sýnilegum hætti.
„SVO GERÐIST
EITTHVAÐ OG ÉG GEKK
ÚT ÚR HRINGNUM“
Pálmi Gunnarsson, einn ástsælasti tónlistar-
maður þjóðarinnar, sendir frá sér bók og safn-
plötu í haust, auk þess að koma fram á stórtón-
leikum í Hörpu. Hann barðist lengi við Bakkus en
hefur verið edrú í næstum tvo áratugi.
FRÉTTABLAÐIÐ
ER HELGARBLAÐIÐ
Ómissandi hluti af góðri helgi
Skaft ahlíð 24 | 105 Reykjavík | 512 5000
Auglýsingar 512-5401 | visir.is
Stærra hlutverk
á nýrri leiktíð
Gylfi Þór Sigurðsson verður í stærra
hlutverki hjá stórliði Tottenham í enska
boltanum í vetur. Fréttablaðið ræðir við
hann um enska boltann og væntingar
hans fyrir tímabilið sem er í þann mund
að hefjast.
„Eftir að hafa gert tímamótafréttir
af pöndum eða flóðsvínum ætla ég
á Bjúddarann á Harlem, menningar-
viðburð ársins, á föstudag. Laugar-
dagur er helgaður Hansa-hillum
en á sunnudag munu St. Vincent
og David Byrne eiga hug minn og
hjarta.“
Björn Teitsson, fréttamaður á RÚV og leik-
maður KF Mjöðm.
HELGIN