Fréttablaðið - 16.08.2013, Blaðsíða 29
LÍKAMSRÆKT
FÖSTUDAGUR 16. ÁGÚST 2013 Kynningarblað Hreyfing, betri andleg og líkamleg líðan, hreysti og þor.
Hafdís Jónsdóttir, eða Dísa í World Class, segir okkur frá undirbúningi hausts-
ins í World Class. „Við rekum tíu
heilsuræktarstöðvar á höfuð-
borgar svæðinu og korthafar okkar
hafa að auki aðgang að þremur
sundlaugum og gífurlegu magni
opinna hóptíma,“ segir Dísa. Hún
segir undirbúning haustsins fara
vel af stað og er spennt að kynna
nýjungar.
Námskeið í haust hefjast
9. september – eitthvað fyrir alla
„Að venju er mikið úrval glæsi-
legra námskeiða hjá okkur í
haust,“ segir Dísa. „Við verðum
með okkur hefðbundnu vinsælu
námskeið á borð við Krossfit,
Ketil bjöllur, FitnessBox og Há-
marksbrennslu. Við kynntum til
leiks Fit Pilates í heitum sal fyrr á
þessu ári og hefur það verið mjög
vinsælt.“
Ný og spennandi námskeið
Dísa segir um nýju nám skeiðin:
„Sem endranær aukum við flóru
nýrra námskeiða hjá okkur. Af
nýjum námskeiðum má nefna
Metabolic functional training,
sem hentar fólki í góðu formi og
þeim sem vilja virkilega taka á
því. Booty Ballet er frábært nám-
skeið fyrir þá sem vilja styrkja rass
og læri. Í Booty Ballet rifjum við
upp ballettæfingarnar á skemmti-
legan hátt með þægilegri tónlist,
Booty Ballet er skemmtileg blanda
af ballett-pilates og jóga. Fit-X er
nýtt og spennandi námskeið þar
sem unnið er með þátt takendum í
tækjasal. Nýr lífsstíll er nýtt nám-
skeið sérsniðið að konum sem
þurfa að missa a.m.k. 15 kíló af
heilsufarsástæðum. Á námskeið-
inu er mikið aðhald, fræðsla um
mataræði og heilbrigðari lífsstíl.
Fit4Life er 12 vikna námskeið þar
sem, auk þjálfunar, heilsu kokkur
og markþjálfi munu fræða þátt-
takendur. Fit4Life er námskeið þar
sem mataræði og þjálfun er skoð-
uð sem ein heild ásamt mark-
miða setningu og eftirfylgni.“
Opnir hóptímar, ný tímatafla
tekur gildi 2. september
Viðskiptavinir World Class hafa
aðgang að öllum opnum hóp-
tímum sem eru í boði. Um er að
ræða mikið úrval tíma. „Spinning
og Hot Yoga eru vinsælustu tímar
okkar en við höfum margt í boði
og fjölbreytnin er í fyrirrúmi. Við
kynnum til leiks tímatöflu vetrar-
ins 2. september nk.,“ segir Dísa.
Haustundirbúningur á fullu
Sem fyrr býður World Class upp á úrval námskeiða fyrir fólk á öllum aldri. Korthafar World Class hafa aðgang að tíu
heilsuræktarstöðvum á höfuðborgarsvæðinu og þremur sundlaugum. Ný og spennandi námskeið verða í boði hjá stöðinni í vetur.