Fréttablaðið - 29.08.2013, Blaðsíða 10
29. ágúst 2013 FIMMTUDAGUR| FRÉTTIR |
HEKLA · Laugavegi 170-174 · Reykjavík · Sími 590 5000 · hekla.is · umboðsmenn um land allt: Höldur Akureyri · Bílasala Selfoss · Bílás Akranesi · HEKLA Reykjanesbæ · Heklusalurinn Ísafirði
Hvert er flatarmál skóglendis
Íslands?
Brandarinn um að ekki þurfi
annað en að standa upp ef maður
týnist í íslenskum skógi fer eflaust
að verða úr sér genginn. Ekki
aðeins vegna ofnotkunar heldur
vex skóglendi fiskur um hrygg
hér á landi svo það fer kannski að
styttast í það að menn missi þar
áttir þótt þeir standi í lappirnar.
Nú er svo komið að nær 40 þús-
und hektarar lands eru skógi
vaxnir. Það eru 400 fer kílómetrar,
sem er tæplega fjórðungur af
Reykjanes skaganum. Á því svæði
mætti strika fyrir meira en sex-
tíu þúsund löglegum knattspyrnu-
völlum. Ef menn vildu færa þetta
skóglendi undir þak þyrfti ríflega
sex þúsund Smáralindir til.
Þeim sem hafa slitið barns-
skónum í þorpi úti á landi kynni
mörgum hverjum að bregða í brún
þegar þeir koma áratugum síðar á
bernskuslóðir. Þar sem áður stóðu
hríslur á stangli standa nú há tré í
byggð og upp um hlíðar. En hverju
má þakka, eða kenna um ef mönn-
um er í nöp við þróunina, þessa
nýju ásýnd Íslands?
Hvað gerðist?
Brandarinn um íslenska skóginn
átti afar vel við fyrir 1990 þegar
einungis 6.600 hektarar lands voru
skógi vaxnir.
Árið 1990 hófst verkefnið Land-
græðsluskógar, sem fólst í því
að safna peningum frá fyrir-
tækjum svo hægt væri að auka
plöntuframleiðslu. Ári síðar var
Héraðs skógum ýtt úr vör. Með
Héraðs skógum var umsjón með
ríkisstyrkjum til nytja skógræktar
á bújörðum færð frá Skóg-
rækt ríkis ins til verkefnis sem
heyrði beint undir landbúnaðar-
ráðuneytið og var auk þess með
ráðherra skipaða stjórn, sem í sat
meðal annars fulltrúi skógar-
bænda.
Árið 2000 voru síðan sett lög
um landshlutaverkefni í skóg-
rækt og voru Norðurlandsskógar,
Vesturlands skógar, Skjólskógar á
Vestfjörðum og loks Austurlands-
skógar stofnaðir á grundvelli
þeirra. Þá áttu bændur um land
allt loks kost á að fá ríkisframlög
til skógræktar á sínum jörðum.
Þessi skref voru hve mikilvægust í
þeirri þróun sem átt hefur sér stað
í útbreiðslu skóglendis.
Veðurfarið breytist
Áhrifanna gætir víða og þau eru
ekki aðeins sjónræn. „Þeir sem
yngri eru tala stundum um það
þegar þeir sitja í logninu með
latte-kaffið að það þyrfti að fella
trén sem byrgja þeim sýn,“ segir
Arnór Snorrason, forstöðumaður
rannsóknastöðvarinnar á Mógilsá.
„Við sem eldri erum vitum að ef
við fellum trén þá fáum við rokið.“
Þessi dæmisaga er ekki úr lausu
lofti gripin. Haraldur Ólafsson
veður fræðingur hefur gert sam-
anburð á vindstyrk á Keflavíkur-
flugvelli, þar sem umhverfið hefur
ekki tekið miklum breytingum, og
í Reykjavík, þar sem skógar hafa
vaxið og auðvitað hús risið. Nið-
urstaðan er sú að stormum hefur
fækkað verulega í Reykjavík og
dregið úr vindstyrk. „Það er erf-
itt að greina að hve miklu leyti
breytingin er vegna bygginga og
að hve miklu leyti hún er vegna
trjáa,“ segir Haraldur. „En vestur
af veðurstöðinni í Reykjavík hefur
lítið risið af byggingum en skógur
hefur vaxið upp og þar hefur vest-
lægum stormum fækkað. Svo að
böndin beinast því að trjánum.“
Skógar sem stinga í stúf
Þótt breytingar gerist venjulega
ekki hljóðalaust virðist vera tiltölu-
lega mikil sátt um þessa. Árið 2004
var gerð skoðanakönnun á viðhorfi
almennings til skógræktar. Um
93 prósent aðspurðra töldu hana
hafa jákvæð áhrif á landið. Um
tíma voru þó talsverðir hnökrar
á þessu víða, sem lögðust ekki vel
í landsmenn og eru enn nokkuð
lýti. Þá vildi bera við að bændur
tækju afmarkað land, mældu út
ferhyrning og ræktuðu þétt innan
hans. Ferhyrningar þessir geta
svo stungið í stúf í berri hlíðinni.
Arnór segir að nú til dags sé þetta
skipulagt með allt öðrum hætti svo
að skógurinn falli betur að.
Ísland tekur á sig evrópska mynd
Ásýnd landsins hefur breyst mjög á undanförnum áratugum þar sem skóglendi er farið að breiða úr sér. Fyrir aldarfjórðungi fyllti
skóglendi Íslands aðeins um sextíu ferkílómetra en nú er það um 400 ferkílómetrar, sem er sexfalt meira. Veðurfarið breytist samfara þessu.
1989 5.700
1990 6.600 Héraðs-
skógaverkefnið hefst
2000 20.100 Landshluta-
verkefnin hefjast
2010 36.100
2011 37.900
Tölurnar eru í hekturum. Einn hektari er 10.000 fermetrar.
Skógrækt á Íslandi
Lerki 25%
Birki 23%
Stafafura 14%
Sitkagreni 14%
Alaskaösp 8%
Heimild: Arnór Snorrason, forstöðumaður rannsóknar-
stofunnar á Mógilsá.
➜ Hvaða tré eru
algengust?
ASKÝRING | 10
SPRENGING Í SKÓGRÆKT
SKÓGRÆKTARFÓLK VIÐ VINNU Hér er Edda S. Oddsdóttir, sérfræðingur við Rann-
sóknastöð skógræktar á Mógilsá, ásamt írska aðstoðarmanninum Tomas O‘Malley.
Vandað er til skipulags við ræktun og gamla lenskan að mæla út ferhyrninginn og
rækta þétt í hann er fyrir löngu úr sér gengin.
Jón Sigurður
Eyjólfsson
jse@frettabladid.is
SMÁRALIND Flatarmál verslunar-
miðstöðvarinar er um 6,2 hektarar.