Fréttablaðið - 29.08.2013, Síða 29
TEKJUHÆST
Söngkonan Madonna er launahæsta stórstjarna
ársins 2013 eftir því sem tímaritið Forbes
greinir frá. Talið er að laun hennar fyrir árið
nemi 80 milljónum punda. Madonna ýtir með
þessu Steven Spielberg úr efsta sætinu.
Vinkonurnar Rannveig Guðmunds-dóttir, fyrrverandi alþingismaður, og Hrefna Hagalín áttu notalega
stund á Heilsuhóteli Íslands á síðasta ári.
Þær höfðu lengi stefnt á að gera eitthvað
skemmtilegt saman og eftir að hafa rætt
málin komust þær að því að báðar höfðu
þær lengi viljað heimsækja Heilsuhótelið.
Rannveig segist lengi hafa haft mikinn
áhuga á hollu mataræði og raunar öllu
því sem hefur áhrif á og viðheldur góðri
heilsu. „Við ákváðum því að skella okkur
saman vinkonurnar í tvær vikur og ég
get svo sannarlega mælt með dvölinni
þar. Það er líka alveg frábært að fara með
vinkonu sinni á svona stað. Við vorum
saman í herbergi og urðum gömlu æsku-
vinkonurnar enn á ný. Við spjölluðum,
æfðum, skipulögðum okkur og áttum svo
skemmtilegar stundir saman.“
Að sögn Rannveigar var aðstaðan öll
til fyrirmyndar og starfsfólkið frábært.
„Einnig má nefna að maturinn var virki-
lega góður en hann byggðist eingöngu
á grænmeti og ávöxtum. Síðan er mikil
hreyfing og líkamsrækt í boði en gestir
stýra því sjálfir hvað þeir velja úr dag-
skránni. Hún samanstendur af útiveru
bæði innan svæðis og daglegum göngu-
ferðum í nágrannabæjunum, einnig
af líkams rækt, góðum mat og mikilli
fræðslu. Síðan má ekki gleyma ýmsu
dekri eins og nuddi og innrauða klef-
anum, sem er svakalega vinsæll, en
hann hefur frábær áhrif á vöðva og stífa
skrokka. Maður er því svo sannarlega að
rækta bæði líkama og sál á Heilsuhótel-
inu. Þótt gamla vallarsvæðið sé mikið flat-
lendi var birtan þar oft einstök og svo er
Reykjanesið líka svo ofboðslega fallegt.“
Rannveig segir það hafa komið sér
á óvart hvað tíminn var fljótur að líða.
„Dagarnir flugu áfram enda leið okkur
vinkonunum svo vel. Við ætlum örugg-
lega að heimsækja Heilsuhótelið aftur
saman fljótlega. Við vorum með vænting-
ar fyrir fram en dvölin var framar öllum
væntingum okkar.“
FRÁBÆR DVÖL FYRIR
VINKONURNAR
HEILSUHÓTEL ÍSLANDS KYNNIR Frábær aðstaða og gott starfsfólk býður
gesti velkomna í fallegt umhverfi á Reykjanesi.
HUGSAR UM HEILSUNA „Við vorum með væntingar fyrir fram en dvölin var
framar öllum væntingum okkar,“ segir Rannveig Guðmundsdóttir, fyrrverandi
alþingismaður. MYND/GVA
Næstu námskeið við
Heilsuhótel Íslands
Heilsunámskeið, tvær vikur
6. - 20. september, örfá pláss laus
3. - 17. janúar 2014, vinsæll tími
Munið að panta tímanlega
Sími: 512 8040www.heilsuhotel.isOpið virka daga frá kl. 10-18 laugardaga frá kl. 10-16
Vertu vinur okkar á Facebook
Laugavegi 63 • S: 551 4422
laxdal.is
DÚNÚLPUR
stuttar
og
siðar
Vertu vinur á
Facebook
Skoðið
Yfirhafnir
TÆKIFÆRISGJAFIR
TILBOÐ
Laugaveg i 178 - S ím i : 568 9955
pHnífa aratöskur – 12 manna
14 tegundir
Verð frá kr. 24.990