Fréttablaðið - 29.08.2013, Qupperneq 30
FÓLK|TÍSKA
Mercedes-Benz tískuvikan í Stokkhólmi
hófst á mánudag. Í gær fór tískusýning
sænska risans Cheap Monday fram.
Undir merkjum hans er framleiddur
litríkur hversdags- og gallafatnaður fyrir
bæði kyn.
Vorlínan 2014 var á pöllunum en
henni er ætlað að virka svolítið „in your
face“. Klæðnaðurinn gefur til kynna að
eigandinn sé með stórt egó og nokk
sama um útlitið (sem honum er þó
vissulega ekki). Útlínur fatnaðarins
eru margar ýktar og hann á helst að
poka. Þá eru sumar flíkurnar beinlínis
rifnar. Aðrar eru með djörfu prenti og
benda til þess að eigandanum sé slétt
sama.
SLÉTT SAMA
Sænski tískurisinn Cheap
Monday sýndi vorlínu sína á
tískuvikunni í Stokkhólmi í gær.
HVERSDAGS-
LEGT EN
DJARFT
Cheap
Monday
er þekkt
fyrir
hvers-
dags-
og
galla-
fatnað
fyrir
bæði
kyn.
Yfirleitt er samfélagssagan sögð út frá styrjöldum og pólitík en ég tek fyrir umhverfi mannsins og
þessa mannlegu þætti sem móta um-
hverfi hans; fatnað, byggingar og hús-
gögn. Þetta þrennt er það sem þróast
hefur með manninum á hverjum tíma
og endurspeglar þannig samfélagið,“ út-
skýrir Ásdís Jóelsdóttir en bók hennar,
Saga hönnunar, er nýkomin út.
Í bókinni fjallar Ásdís um sögu
hönnunar frá tímum Egypta til okkar
daga. Segja má að hvert einstakt verk
sé mótað af því samfélagi, auðlindum,
tækni og verkkunnáttu sem til staðar er
hverju sinni.
„Sú nálgun er einstök við þessa bók,
það er hvernig ég segi frá fatnaði, bygg-
ingum og húsgögnum í sögu- og sam-
félagslegu samhengi, ég hef allavega
ekki rekist á neina hlið-
stæða bók. Þannig getur
lesandinn öðlast góða
heildarsýn yfir hönn-
unarsöguna,“ útskýrir
Ásdís og segir að þótt
bókin sé fyrst og fremst
fræði- og uppflettibók
eigi hún erindi við alla.
„Bókina er hægt að
nota til kennslu en hún
er líka frábær gjafa-
bók. Einn lesandi sagði
við mig að þetta væri
bók sem allir ættu
að eiga og hafa uppi
á borðum til að glöggva sig á sögunni
á nýjan hátt. Ég tek undir það. Ég held
líka að mér hafi tekist gera hana nokkuð
skemmtilega aflestrar, enda er megin-
markmiðið að segja áhugaverða sögu
sem flestir hafa ánægju af að lesa.“
Ásdís hefur starfað við kennslu í fata-
og textílhönnun og kennt hönnunar-
og menningarsögu undanfarin ár. Þá
er þetta ekki fyrsta bók Ásdísar innan
hönnunargreinarinnar en hún hefur
einnig samið bækur um sögu fatagerðar
og fatahönnunar á Íslandi, sögu tísk-
unnar og saumtæknibók fyrir fatasaum.
Einnig hefur hún þýtt tvær bækur úr
sænsku um snið og sniðteikningu fyrir
konur og karlmenn.
En er eitthvert tímabil hönnunar-
sögunnar í uppáhaldi? „Eiginlega ekki.
Þegar maður sökkvir sér ofan í söguna
er ákveðinn sjarmi yfir hverju tíma-
bili, stefnu og straumum.
Saga hönnunar er mikil-
væg til að geta skoðað og
skilið þróun samfélagsins í
fortíð, nútíð og framtíð. Enda
þurfa hönnuðir að hafa góða
heildar yfirsýn yfir söguna til
að geta verið þeir spámenn
fyrir framtíðina sem þeir
þurfa að vera.“ ■ heida@365.is
ÁHUGAVERÐ SAGA „Bókina er
hægt að nota til kennslu en hún er líka
frábær gjafabók.“
SAGAN MIKILVÆG
HÖNNUN Ásdís Jóelsdóttir hefur sent frá sér bókina Saga hönnunar þar sem
hún fjallar um fatnað, byggingar og húsgögn frá tímum Egypta til okkar daga.
SAMFÉLAGSSAGA
Bókin er ríkulega mynd-
skreytt en Ásdís tekur
fyrir fatnað, byggingar
og húsgögn og hvernig
hlutirnir endurspegla
samfélagið.
MYND/ÁSDÍS JÓELSDÓTTIR
NÝ BÓK KOMIN ÚT
Ásdís Jóelsdóttir hefur
skrifað Sögu hönnunar,
allt frá tímum Egypta til
okkar daga.
MYND/GVA
Verð 9.900 kr.
Str. 36 - 46/48.
Opið virka daga kl.
11–18.
Opið laugardaga k
l. 11–16.
Kí
kið
á
m
yn
di
r o
g
ve
rð
á
Fa
ce
bo
ok
Laugavegi 178 (Bolholtsmegin) | Sími 555 1516
Þar á meðal er
þessi flotta skyrta.
Fallegur fatnaður
á góðu verði.
verð 3990
st. s/m-l/xl .
Líka til einlitar svartar
Áður 14990 nú 7990.
6 litir eins st Áður 14990 nú 7990.
6 litir eins st
Bæjarlind 6 • S. 554 7030
www.rita.is
Við erum á Facebook
Síðar peysur
Str. 40-56/58
kr. 9.800.-
Litir:
svart,
fjólublátt
dökkrautt