Fréttablaðið - 29.08.2013, Blaðsíða 43
FIMMTUDAGUR 29. ágúst 2013 | MENNING | 35
Nýtt útilistaverk Brynhildar Þor-
geirsdóttur, Myndheimur – lands-
lagsinnsetning, var afhjúpað í
Alingsås í Svíþjóð í gær við vígslu-
athöfn nýrrar hverfismiðstöðvar,
Träffpunkt Stadsskogen. Verkið
samanstendur af þremur skúlptúr-
um, ásamt 23 litlum krakka-
steinum. Verkin voru unnin heima
á Íslandi öll nema eitt, sem Bryn-
hildur gerði á staðnum í samvinnu
við nemendur í grunnskólanum í
Stadsskogen.
Britta Malmberg, yfirmaður
menningar- og tómstundasviðs
Alingsåsbæjar, er afar ánægð með
árangurinn:
„Þessi nýju verk eru einstök
í sinni röð,“ segir hún, „og ljá
svæðinu dularfullt andrúmsloft,
nákvæmlega eins og við óskuðum
eftir.“ - gun
Íslensk
útilistaverk
í Alingsås
Myndskreytingar úr íslenskum
barnabókum eru á sýningu sem
opnuð verður í dag klukkan 10
í menningarmiðstöðinni Slátur-
húsinu á Egilsstöðum. Þetta vilja
börnin sjá! heitir hún. Á henni eru
myndskreytingar úr íslenskum
barnabókum sem komu út árið 2012.
Þátttakendur eru fjölmargir.
Þeir kepptu jafnframt um íslensku
myndskreytiverðlaunin sem kennd
eru við Dimmalimm og er ætlað að
hvetja bæði útgefendur og höfunda
texta og mynda til frekari dáða.
Sýningin er farandsýning. Hún
verður í Sláturhúsinu til 26. septem-
ber og er opin mánudaga til fimmtu-
daga frá 18 til 22 og laugardaga frá
13 til 17. - gun
Þetta vilja börnin sjá!
Myndskreytingar úr íslenskum barnabókum sýndar.
Bókaútgáfan Opna og Snorrastofa
í Reykholti hafa gefið út bókina
Uppsala-Eddu í nýrri útgáfu
Heimis Pálssonar, sem jafnframt
ritar ítarlegan inngang að verk-
inu.
Edda er til í nokkrum hand-
ritum og er eitt þeirra varðveitt í
Uppsölum – handritið DG 11 4to.
Það handrit, sem eignar Snorra
Sturlusyni Eddu, hefur Heimir
Pálsson rannsakað um árabil.
Þessi bók geymir afraksturinn,
ítarlegan inngang að verki Snorra
þar sem Heimir kemur víða við,
og texta Uppsala-Eddu í heild
sinni með vönduðum skýringum.
Í flestöllum útgáfum Snorra-
Eddu er stuðst við mörg handrit.
Það er ekki gert hér nema í skýr-
ingum. - gun
Uppsala-Edda
UPPSALA-EDDA Ný útgáfa Heimis
Pálssonar.
EINN ÞRIGGJA SKÚLPTÚRA Brynhildur
vinnur með tengsl náttúru og borgarlífs
í verkum sínum.
ÚR ÓLIVER Myndin er eftir Birgittu
Sif Jónsdóttur sem hlaut Dimmalimm-
verðlaunin 2012.
Stemning 9. áratugarins verður
rifjuð upp í glæsilegri umgjörð í
Andrews-leikhúsi í Reykjanesbæ á
Ljósanótt. Frumsýning er 4. sept-
ember. Þar verður meðal annars
flutt tónlist eftir Bubba, Stuðmenn,
Nýdönsk og fleiri. Sýningin er loka-
hnykkur sýninganna Með blik í
auga þar sem hefur verið fjallað
um tónlistarsöguna frá 1950 í tali
og tónum á gamansaman hátt.
Níundi áratugurinn er áratugur
bílskúrsbanda, Beta- og VHS-vídeó-
tækja, pönktónleika í Hafnarbíói og
gömlu dansanna í Glæsibæ. Þetta
var jafnframt áratugur Don Cano,
Henson-galla og Millet-úlpunn-
ar. Leiðtogafundur var haldinn í
Höfða, Íslendingar tóku þátt í Euro-
vision í fyrsta sinn og Sea Shepherd
sökktu hvalveiðibátum á Íslandi.
Allt þetta kemur við sögu.
Tónlistarstjóri er Arnór Vil-
bergsson og handritshöfundur og
fararstjóri er Kristján Jóhannsson.
- gun
Tónlist og tíðarandi 9. áratugar
Sýningin Hanakambar, hárlakk og herðapúðar snýst um tónlist 9. áratugarins.
MEÐ BLIK Í AUGA Mikið stuð er á
sviðinu í slíkum sýningum.
MYND/HILMAR BRAGI BÁRÐARSON
islandsbanki.is | Sími 440 4000
Við bjóðum
góða þjónustu
2000 kr. afsláttur
af áskriftarkortum
Íslandsbanki og Valitor bjóða viðskiptavinum Íslandsbanka
2.000 kr. afslátt af áskriftarkortum Borgarleikhússins.
Hagstætt tækifæri til að upplifa töfra
Áskriftarkort gilda á fjórar sýningar að eigin vali:
• Áskriftarkort á 11.900 kr.
Almennt verð er 13.900 kr.
• 25 ára og yngri fá áskriftarkort á 7.000 kr.
Almennt verð er 9.000 kr.
Leikárið er hafið
Í vændum er kröftugt og töfrandi leikár
hjá Borgarleikhúsinu sem þú getur kynnt
þér á www.borgarleikhus.is
Til að nýta tilboðið þarf að greiða með VISA
eða MasterCard greiðslukorti frá Íslandsbanka
eða Byr. Hægt er að hringja í Borgarleikhúsið
í síma 568 8000 eða mæta í miðasöluna.
Tilboðið gildir ekki í netsölu.
Töfrar í Borgarleikhúsinu
Góða skemmtun!