Fréttablaðið - 29.08.2013, Page 52
29. ágúst 2013 FIMMTUDAGUR| MENNING | 44
BAKÞANKAR
Dóra DNA
★★★ ★★
Hymnalaya
Hymnalaya
RECORD RECORDS
Hymnalaya var
stofnuð fyrir um
einu og hálfu ári
og hafði aldrei spil-
að opinberlega fyrr
en eftir að þessi
fyrsta plata kom út.
Hljómsveitin spilar rólyndisþjóð-
lagapopp og eins og nafnið gefur
til kynna leitast hún við að ná upp
eins konar himn-
eskri sálmastemn-
ingu. Lögin eru tólf,
þar af fjögur stutt
og ósungin, notuð
til að skapa rétta
andrúmsloftið.
Hlýlegir textarnir
eru trúarlegir og
snúast að mestu
leyti um Guð og
hvernig hann er
arkitektinn á bak við allt saman:
„Everything is under authority –
except the author – the author of
all,“ segir í laginu Everything. Á
meðal annarra eftirminnilegra
laga eru Colt for a King, In My
Early Years og Patience.
Viðkvæmnisleg rödd Einars
Kristins Þorsteinssonar á vel við
tónlistina og kassagítarplokkið er
fallegt í gegnum alla plötuna.
Þessi frumburður Hymnalaya
er vel heppnaður og ljóst að liðs-
mönnum sveitarinnar hefur tekist
ætlunarverk sitt, að hrífa hlustand-
ann með sér í ferðalag um kosm-
ískar slóðir.
Freyr Bjarnason
NIÐURSTAÐA: Hymnalaya ferðast
með hlustandann um himneskar og
fallegar slóðir.
Ferðalag um himneskar slóðir
Það er búið að gera hjartveika akureyrska stelpu að „poster-girl“ fyrir því að ef
flugvöllurinn fari muni börn deyja. Þetta
er ósvífið og ósmekklegt. Þetta er lágkúra
í sinni tærustu mynd. Flugvallar málið er
skipulagsmál. Innan skipulagsmála koma til
skoðunar hlutir eins og umferð, umhverfi,
öryggi, fagurfræði og ýmislegt fleira. Að
tala um afleiður eins og heilbrigðismál,
hvað þá líf og dauða, í umræðu um skipu-
lagsmál er ekki boðlegt og ekki málefna-
legt. Þetta eru ósvífin frekjurök, taktlaus
áróður. Það er hægt að snúa allri umræðu
upp í umræðu um líf og dauða ef maður
leyfir svona afleiðurökum og móðursýki að
flæða.
„HJARTAÐ slær í Vatnsmýri,“ er slagorð
þar sem þessi áróður er myndgerður. Mér
leiðast svona klisjulegar anatómíu-
líkingar en í þessu tilfelli eru svo
sem fleiri á stangli. Það er aðeins
eitt líffæri í Vatnsmýrinni –
mýrin sjálf, lungu miðborgarinn-
ar, „öndunarfæri landsins,“ svo
ég vitni í afa minn. Finnst fólki í
lagi að dæla svona eitri í mýrina,
í eitthvert flóknasta og verð-
mætasta dýra- og lífríki Reykja-
víkur? Eins og flestir íbúar í
nánd við flugvöllinn vita er hægt
að skola flugvélarsótið burtu af
stéttinni með öflugri háþrýstidælu en það er
ekki tilfellið í mýrinni. Hún minnkar bara
og minnkar þar til ekkert er eftir.
ÉG er kominn með nóg af einhverjum skel-
eggum oflátungum sem láta eins og þeir
sem eru á móti flugvellinum séu annaðhvort
vitlausir eða sjálfhverfir. Það er bara ekki
þannig, ekki frekar en að þeir sem vilja
halda honum séu allir frekir og leiðinlegir.
Þetta er orðræða sem hefur einkennt sam-
skipti höfuðborgarbúa við landsbyggðina
allt of lengi.
ÞAÐ er sparnaður í því að færa flugvöllinn.
Þjóðfélagslegur ábati. Það er hægt að bjarga
lífum og bæta kjör fyrir þann sparnað. Það
eru ekki sjálfsögð mannréttindi að lenda
flugvélum í miðborgum. Samkvæmt öllum
stöðlum eru flugvellir og sjúkrahús ekki
samliggjandi. Það eru grilljón fleiri lausnir
til og grilljón ákvarðanir sem verður að
taka upplýst og af yfirvegun.
ÉG vil flugvöllinn burt úr Reykjavík.
Hugsa um það á hverjum degi. Hugsa um
það í hvert einasta skipti sem íbúðin nötrar
undan hávaða flugvélanna. Það þýðir samt
ekki að ég vilji að börn deyi. Látum ekki
slepjuleg slagorð og ósvífin tilfinningarök
ráða för. Við hljótum að vera þróaðra sam-
félag en það.
Hjartveiki í Vatnsmýri
• •
OKKAR
LOFORÐ:
Lífrænt og
náttúrulegt
Engin
óæskileg
aukefni
Persónuleg
þjónusta
Taktu haustið með trompi
Bættu heilsuna fyrir þig og þína.
HEILSUSPRENGJA
Valin bætiefni
frá NOW með 25% afslætti
Valdar
lágkolvetnavörur
með 20% afslætti
G
il
d
ir
f
rá
2
9.
á
g
ú
st
t
il
5
. s
ep
te
m
b
er
DAGSKRÁIN ER Á WWW.BIOPARADIS.IS OG MIDI.IS
ELYSIUM 8, 10.20(P)
KICK ASS 2 8, 10.20
2 GUNS 5.30, 8, 10.20
STRUMPARNIR 2 5.30 2D
T.V. - Bíóvefurinn
-H.G., MBL
5%
SMÁRABÍÓ HÁSKÓLABÍÓ
BORGARBÍÓ NÁNAR Á MIÐI.IS
STRUMPARNIR 3D KL. 6
ONLY GOD FORGIVES KL. 8 - 10 / WOLVERINE 3D KL. 10
GROWN UPS 2 KL. 6 - 8 Miðasala á: og
-H.G., MBL -V.G., DV
-T.V. - BÍÓVEFURINN.IS / SÉÐ & HEYRT
“SPARKAR FAST Í MEIRIHLUTANN Á AFÞREYINGARMYNDUM
SUMARSINS. FÍLAÐI HANA Í BOTN.”
„MEISTARAVERK!“
- FOX-TV
„ÆSISPENNANDI!“
- ENTERTAINMENT WEEKLY
„DAMON OG FOSTER ERU STÓ RKOSTLEG!“
- CTV MONTREAL
ÖRLÖG HEIMSINS ERU Í HANS HÖNDUM
ELYSIUM KL. 5.30 - 8 - 10.25
ELYSIUM LÚXUS KL. 8 - 10.25
KICK ASS 2 KL. 8 - 10.20
PERCY JACKSON KL. 3.20 - 5.40 - 8
2 GUNS KL. 5.30 - 8 - 10.30
2 GUNS LÚXUS KL. 5.30
STRUMPARNIR 3D ÍSL TAL KL. 3.20
STRUMPARNIR 2D ÍSL TAL KL. 3.20 - 5.40
GROWN UPS KL. 10.20
ELYSIUM KL. 8 - 10
KICK ASS 2 KL. 10.30
PERCY JACKSON KL. 5.40
2 GUNS KL. 10
WAY WAY BACK KL. 10.30
EGILSHÖLLÁLFABAKKA
KRINGLUNNI
AKUREYRI
KEFLAVÍK
ROGER EBERT
COSMOPOLITAN
JULIANN GAREY / MARIE CLAIRE
SCOTT MANTZ / ACCESS HOLLYWOOD
T.V. - BÍÓVEFURINN.IS/SÉÐ & HEYRT
VARIETY
NEW YORK TIMES
SAN FRANCISCO CHRONICLE