Fréttablaðið - 29.08.2013, Qupperneq 57
FIMMTUDAGUR 29. ágúst 2013 | SPORT | 49
FÓTBOLTI Rússneski milljarða-
mæringurinn Roman Abramo-
vich er hættur að styrkja rúss-
neska knattspyrnu. Hann hefur
mokað ótrúlegum upphæðum í
rússneska boltann undanfarin ár.
Abramovich hefur reyndar
verið að draga saman seglin í
fjárútlátum til rússneska sam-
bandsins síðan árið 2010. Hann
telur sig vera búinn að skila sínu.
Ekki eru neinar sögur um að
ósætti sé á milli hans og rúss-
neska knattspyrnusambandsins.
Abramovich stofnaði knatt-
spyrnu akademíu fyrir rúss-
neska sambandið. Hann greiddi
fyrir 130 nýja velli og er sagður
hafa sett í heildina 24 milljarða
íslenskra króna í það verkefni.
Abramovich greiddi einnig
fyrir menntun þjálfara og svo
greiddi hann laun Guus Hiddink
er hann stýrði rússneska lands-
liðinu. Hiddink var með um 850
milljónir króna í mánaðarlaun.
Rússneska gasfyrirtækið Gaz-
prom hefur tekið yfir það hlut-
verk Abramovich að greiða fyrir
flest í rússneska boltanum. - hbg
Roman lokar
veskinu
RÚBLUR ROMANS Ekki lengur í boði
fyrir Rússana. NORDICPHOTOS/GETTY
7. JÚNÍ 2011 - VARIÐ
Hannes Þór Halldórsson ver frá Matthíasi
Vilhjálmssyni, FH
29. ÁGÚST 2011 - VARIÐ
Hannes ver frá Steven Lennon, Fram
15. MAÍ 2012 - VARIÐ
Hannes ver frá Tryggva Guðmundssyni, ÍBV
16. JÚNÍ 2012 - STÖNG
Viðar Örn Kjartansson, Selfossi, skýtur í
stöng á móti Hannesi
21. JÚLÍ 2012 - VARIÐ
Hannes ver frá Halldóri Orri Björnssyni,
Stjörnunni
8. ÁGÚST 2012 - MARK
Þórarinn Ingi Valdimarsson, ÍBV, skorar
framhjá Fjalari Þorgeirssyni.
21. JÚLÍ 2013 - YFIR
Halldór Orri Björnsson, Stjörnunni, skýtur
yfir á móti Hannesi
11. ÁGÚST 2013 - MARK
Gunnar Már Guðmundsson, ÍBV, skorar
framhjá Rúnari Alex Rúnarssyni.
25. ÁGÚST 2013 - VARIÐ
Rúnar Alex ver frá Davíð Þór Viðarss., FH
VÍTASPYRNUR FRÁ JÚNÍ 2011
Vítanýting KR-liðsins 94%
(16 mörk úr 17 vítum)
Vítanýting mótherja KR 22%
(2 mörk úr 9 vítum)
Síðustu níu víti
mótherja KR-inga
FÓTBOLTI Rúnar Alex Rúnarsson
varð nýjasti vítabaninn í
markvarðahópi Vesturbæinga
á sunnudaginn þegar hann
varði víti frá FH-ingnum Davíð
Þór Viðarssyni. Staðan var þá
0-0 en KR vann síðan leikinn
3-1 og steig stórt skref í átt að
Íslandsmeistaratitlinum.
Vítin eru svo sannarlega að hafa
sín áhrif í leikjum KR-liðsins. Á
sama tíma og KR-ingar eiga bestu
vítaskytturnar í boltanum gengur
mótherjum þeirra skelfilega að
nýta sín víti gegn þeim. KR-ingar
hafa átt mesta vítabanann í Pepsi-
deildinni undanfarin fjögur ár
(Andre Hansen 2009, Lars Ivar
Moldskred 2010 og Hannes Þór
Halldórsson 2011 og 2012) og nú
er svo komið að mótherjar þeirra
hafa aðeins náð að skora úr tveim-
ur af síðustu níu vítaspyrnum
sínum í deildinni. Í báðum vítun-
um sem mótherjum KR tókst að
skora úr stóð í markinu ískaldur
varamarkvörður – Fjalar Þor-
geirsson á móti ÍBV í Eyjum
2012 og Rúnar Alex á móti ÍBV á
KR-vellinum 2013. Þeir voru báðir
komnir í markið eftir að Hannes
Þór hafði skömmu áður verið rek-
inn út af með rautt spjald.
Mótherjar Vesturbæinga hafa
því frá og með júní 2011 aðeins
nýtt 22 prósent víta sinna (9/2)
en á sama tíma hafa vítaskyttur
KR-ingar aðeins klikkað á einu af
sautján vítum sínum. Vítanýting
KR-liðsins á þessum tíma er því 94
prósent eða 72 prósentum betri en
mótherja þeirra. KR-liðið er enn
fremur með 14 vítamörk í plús á
þessu tímabili.
Kjartan Henry Finnbogason
hefur skorað úr níu af þessum
sextán vítum en Bjarni Guðjóns-
son (3/3) og Óskar Örn Hauksson
(2/2) eru líka með 100 prósenta
vítanýtingu á þessum tíma. Gary
Martin er sá eini sem hefur klúðr-
að víti frá júní 2011 en hann lét
Blikann Ingvar Þór Kale verja frá
sér í fyrrasumar.
Hér fyrir neðan má sjá lista yfir
síðustu níu víti mótherja KR. - óój
Fara vítaskytturnar á taugum á móti KR?
Mótherjar KR-inga hafa klúðrað sjö af síðustu níu vítum sínum í Pepsi-deild karla í fótbolta.
HANNES ÞÓR HALLDÓRSSON Hefur
varið ófá vítin fyrir KR. FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL
• Allt að 40 km drægni.
• Hleðslutími ca. 6-8 klst.
• Hámarkshraði 25 km/klst.
• Eigin þyngd 68 kg með rafhlöðu.
• Farangursgeymsla undir sæti og
í boxi á bögglabera.
• 48V 350W mótor.
• Yfirhleðslu- og lágstraumsvörn.
• 2ja ára ábyrgð.
• Fæst í 5 litum. Svörtu, bláu,
bleiku, rauðu og gráu.
Ökutæki þetta fellur undir reglugerð um reiðhjól. Umferðastofa mælir þó ekki með að börn yngri en 13 ára
séu á vél- eða rafdrifnum hjólum sem komast upp í 25 km/klst hraða.
Vinsamlegast kynnið ykkur frekar ábyrgðarskilmála og leiðbeiningar í notkunarleiðbeiningum.
Fæst í Hagkaup Smáralind, Garðabær og á hagkaup.is
109.990
verð áður 129.990
Dagana 29. ágúst - 5. sept. verður dreginn
út einn heppinn kaupandi á Traffico rafskutlu
og fær hann rafskutluna endurgreidda.
SPARAÐU
20.000 OG
ÞÚ GÆTIR
FENGIÐ
RAFSKUTL
UNA ENDU
RGREIDDA
!