Fréttablaðið - 13.09.2013, Blaðsíða 68
| SMÁAUGLÝSINGAR |
Atvinna í boði
SÓLAR EHF
Ósku eftir fólki í ræstingarvinnu,
þarf að hafa bílpróf og eigin bíl.
Upplýsingar í s.778-2043 milli 11-16.
We are looking for people for
cleaning jobs, must have driving
license and own car.
KAFFI ZIMSEN
Óskar eftir vönum barþjónum, fólki í
uppvask og dyravörðum. Uppl. í s. 775
3939 / 774 5959
Blikksmiðjan Vík ehf óskar eftir að
ráða blikksmið eða mann vanan
blikksmíði,þarf að geta starfað
sjálfstætt. Umsóknir sendist á
eyjolfur@blikkvik.is Öllum verður
svarað
SANDHOLT LAUGAVEGI
Starfsfólk óskast í ræstingar. Uppl. í s.
659 3439 Lísa.
HJÁ JÓA FEL
HOLTAGARÐAR
Óskum eftir fólki til
afgreiðslustarfa í bakarí okkar í
Holtagörðum, vinnutími frá kl.
12-18:30 og aðrahvora helgi .
Íslenskukunnátta skilyrði.
Vinsamlega sendið umsóknir á
linda@joifel.is
Atvinna óskast
Smiðir óska eftir vinnu. Áhugasamir
hafið samband í s. 847 0638.
TILKYNNINGAR
Einkamál
19 ára stelpa af höfuðborgarsvæðinu
vill kynnat karlmanni undir fertugu.
Símastefnumót Rauða Torgsins, sími
905-2000 eða 535-9920, augl.nr. 8627.
Falleg kona vill kynnast karlmanni,
45+, verður að vera með sín mál
á hreinu. Símastefnumót Rauða
Torgsins, sími 905-2000 eða 535-9920,
augl.nr. 8593.
Ung kona (19 ára), vill kynnast
eldri manni. Vil hafa það hressilegt.
Símastefnumót Rauða Torgsins, sími
905-2000 eða 535-9920, augl.nr. 8944.
Kona, leitar þú að raunverulegri
tilbreytingu? Notaðu Rauða Torgið,
það er frítt og það virkar. Auglýstu
núna í síma 535-9923.
BORGARTÚNI 12-14 - 105 REYKJAVÍK - SÍMI 411 1111 - MYNDSENDIR 411 3071
Auglýsing um breytingar á
deiliskipulagi í Reykjavík
Í samræmi við 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010,
eru hér með auglýstar tillögur að breytingum á
deiliskipulagi í Reykjavík.
Hverfisgata 103, reitur 1.154.4
Tillaga að breytingu á deiliskipulagi reits 1.154.4
vegna lóðarinnar nr. 103 við Hverfisgötu. Breytingin
felur í sér að bætt er við möguleika á að nýta
reitinn undir byggingu hótels. Að öðru leiti gilda
fyrri skilmálar. Nánar um tillöguna vísast til
kynningargagna.
Laugavegs- og
Skólavörðustígsreitur, 1.171.3
Tillaga að breytingu á skilmálum deiliskipulags
reits 1.171.3, Laugavegs – og Skólavörðustígsreits.
Í breytingunni felst að gera megi minniháttar
breytingar á húsum m.a. svalir, kvistir, skyggni
og lagfæringar. Nánar um tillöguna vísast til
kynningargagna.
Tillögurnar liggja frammi í þjónustuveri
Reykjavíkurborgar að Borgartúni 12-14, 1. hæð,
virka daga kl. 8:20 – 16:15 frá 13. september
2013 til og með 25. október 2013. Einnig má sjá
tillögurnar og skýrslur á vefsíðunni, www.skipbygg.
is. Eru þeir sem telja sig eiga hagsmuna að gæta
hvattir til að kynna sér tillögurnar. Ábendingum
og athugasemdum við tillögurnar skal skila
skriflega til skipulagsfulltrúa eða á netfangið
skipulag@reykjavik.is, eigi síðar en 25. október
2013. Vinsamlegast notið uppgefið netfang fyrir
innsendar athugasemdir með tölvupósti.
Reykjavík 13. september 2013
Skipulagsfulltrúi Reykjavíkur
Reykjavíkurborg
Umhverfis- og skipulagssvið
Fulltrúakjör
til reglulegs þings
Starfsgreinasambands Íslands
Allsherjaratkvæðagreiðsla verður viðhöfð við kjör
fulltrúa á reglulegt þing Starfsgreinasambands
Íslands sem haldið verður í Menningarhúsinu Hofi
á Akureyri 16.-18. október 2013.
Tillögur vegna reglulegs þings Starfsgreina-
sambands Íslands með nöfnum 58 aðalfulltrúa og
jafnmörgum til vara ásamt meðmælum 120 fullgildra
félagsmanna skulu hafa borist skrifstofu Eflingar-
stéttarfélags fyrir kl. 16.00 föstudaginn 20. septem-
ber 2013.
Kjörstjórn Eflingar-stéttarfélags
Auglýsing um afgreiðslu bæjarráðs
Kópavogs á auglýstri tillögu að deiliskipulagi.
kopavogur.is
Kópavogsbraut 1a-c, Kópavogstún 3, 5, 7 og 9. Breytt deiliskipulag.
Í samræmi við skipulagslög nr. 123/2010 samþykkti bæjarráð Kópavogs þann 25. júlí 2013 tillögu að breyttu
deiliskipulagi Kópavogsbraut 1a-c, Kópavogstún 3, 5, 7 og 9. Tillagan var kynnt frá 3. júní með athugasemdafrest
til 16. júlí 2013. Athugasemdir og ábendingar bárust. Þeim aðilum sem sendu inn athugasemdir og ábendingar
hefur verið send umsögn skipulagsnefndar. Málsmeðferð var samkvæmt 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Uppdrættir hafa hlotið þá meðferð sem ofangreind lög mæla fyrir um.
Vakin er athygli á málskotsrétti samanber 10. kafla skipulagslaga nr. 123/2010 og lög um úrskurðarnefnd
umhverfis- og auðlindamála nr. 130/2011 en þar kemur fram að stjórnvaldsákvarðanir má kæra til
úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála. Kærufrestur er einn mánuður frá birtingu auglýsingar um
samþykkt deiliskipulagsins í B-deild Stjórnartíðinda þ.e. frá og með 13. september 2013.
Nánari upplýsingar eða gögn um ofangreinda skipulagsáætlun er hægt að nálgast á skipulags- og
byggingardeild Umhverfissviðs, Fannborg 6, 200 Kópavogi milli kl. 8:00 og 16.00 mánudaga til fimmtudaga
og á föstudögum frá kl. 8:00 til 15:00.
Trausti fasteignasala, trausti@trausti.is,
s.546-5050, Vegmúla 4, 108 Reykjavík
Ólafsgeisli 22
Höfum fengið í einkasölu glæsilegt og einstakt einbýlishús við
Ólafsgeisla Reykjavík. Húsið er staðsett við golfvöllinn í Grafarholti
og er um glæsilega útsýniseign að ræða. Húsið er skráð sem sem
tvær eignir en er innréttað sem einbýli á tveimur hæðum. Er um að
ræða eina einbýlið sem stendur fyrir neðan götu við golfvöllinn í
Grafarholti. Stærð 396,2 fm. Verð kr. 140.000.000
Fáið frekari upplýsingar hjá Kristjáni Baldurssyni hdl. og löggiltum
fasteignasala í síma 867-3040 eða á netfanginu kristjan@trausti.is
Óskar R. Harðarson
hdl. og löggiltur fasteignasali
Verð: 39,8 millj.
Nánari upplýsingar veitir
Jórunn Skúladóttir, Sölufulltrúi
jorunn@miklaborg.is sími: 845 8958
Holtsgata 32
100% Yfirtaka + söluþóknun
Glæsileg 5-6 herbergja
íbúð 115,9 fm að stærð
Yfirtaka + sölulaun
Greiðslubirgði á mánuði kr. 170 þús.
101 Reykjavík
OPIÐ HÚS
Föstudag 13. sept. 17:30 - 18:00
Óskar R. Harðarson
hdl. og löggiltur fasteignasali
Verð: 35,9 millj.
Nánari upplýsingar veitir
Jórunn Skúladóttir, Sölufulltrúi
jorunn@miklaborg.is sími: 845 8958
Glæsileg hæð við
Snekkjuvog
• Hæð með bílskúr
• Þríbýli, í enda botnlanga
• Mikið endurnýjað
104 Reykjavík
fasteignir
tilkynningar
tilkynningar
Save the Children á Íslandi
13. september 2013 FÖSTUDAGUR24