Fréttablaðið - 13.09.2013, Blaðsíða 82

Fréttablaðið - 13.09.2013, Blaðsíða 82
13. september 2013 FÖSTUDAGUR| SPORT | visir.is Allt um leiki gærkvöldsins HANDBOLTI Haukar mæta OCI Lions frá Hollandi í fyrstu umferð EHF-bikarsins í handknattleik í kvöld en leikurinn fer fram að Ásvöllum og hefst klukkan 19.00. „Þetta verður vonandi skemmti- legt verkefni,“ segir Patrekur Jóhannesson, þjálfari Hauka, í samtali við Fréttablaðið í gær. „Strákarnir fengu tveggja vikna frí eftir mót og síðan hófst undir- búningstímabilið okkar. Menn eru því alveg tilbúnir í slaginn.“ Haukar höfnuðu í öðru sæti á síðasta Íslandsmóti eftir að hafa tapað gegn Fram í úrslitaein- víginu. Tjörvi Þorgeirsson, leik- maður Hauka, hefur verið að glíma við meiðsli í sumar en að sögn Patreks er leikstjórnandinn klár í leikinn gegn OCI Lions. „Liðið er búið að undirbúa sig gríðarlega vel fyrir þessa leiki og ég hef endalaust mikla trú á þessum strákum,“ segir Patrekur en hann tók við Haukum fyrir tímabilið. Aron Kristjánsson hætti með Hauka eftir síðasta tímabil en Aron er landsliðsþjálfari Íslands í handbolta. „Mér líkar mjög vel við mig í Haukum en hér er ótrúlegt fólk að vinna og andinn magnaður. Það er ákveðin menning í Haukum sem erfitt er að lýsa, vinnu semin og aginn er með ólíkindum hjá þessum drengjum. Maður tók vissulega við góðu búi af Aroni en ég kom með ákveðnar áherslu- breytingar inn í liðið.“ OCI Lions varð í öðru sæti í hollensku úrvalsdeildinni á síðasta tímabili. „Maður veit nokkuð mikið um þetta hollenska lið og ég hef náð að komast yfir fullt af mynd böndum frá þeirra leikjum. Liðið byrjar vel í hollensku deildinni og hefur unnið fyrstu tvo leikina en þeir hafa verið að ganga í gegnum tölu- verðar breytingar og leika til að mynda ekki með örvhenta skyttu sem stendur.“ OCI Lions mætti þýska liðinu Rhein Neckar Löwen í leik fyrir tveimur árum og völtuðu læri- sveinar Guðmundar Guðmunds- sonar yfir hollensku ljónin með tíu marka mun. Þess má geta að Rhein Neckar Löwen hafði tíu marka forystu í hálfleik og því skoruðu liðin jafn mörg mörk í síðari hálf- leiknum. Patrekur vill meina að hættulegt sé að vanmeta Hollend- ingana. „Það er mikill uppgangur í hollenskum handbolta og við verðum að bera virðingu fyrir andstæðingnum. Við ætlum okkur samt sem áður áfram í þessari keppni og förum inn í þessa viður- eign sem sigurstranglegri aðilinn. Það hentar þessum strákum vel og menn eru virkilega spenntir fyrir fyrsta alvöru leik tímabilsins.“ Síðari leikur liðanna fer síðan fram á morgun einnig á Ásvöllum. Takist Haukum að komast áfram í aðra umferð keppninnar mætir liðið portúgalska liðinu SL Benfica í annarri umferðinni í október. stefanp@frettabladid.is Erum sigurstranglegri Haukar taka tvívegis á móti hollenska liðinu OCI Lions í EHF-bikarnum á Ás- völlum um helgina. Fyrri leikurinn fer fram í kvöld. Hafnfi rðingar ætla sér áfram. TÓK VIÐ GÓÐU BÚI Patrekur Jóhannesson er áægður hjá Haukum og ætlar með liðið áfram í EHF-keppninni. Haukar mæta OCI Lions í kvöld. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR FÓTBOLTI „Ég er að flytja til Nor- egs bæði til að bæta mig sem knattspyrnumann og vera nær fjölskyldunni,“ segir Telma Hjalta- lín, sem gekk í raðir norsku meist- aranna í Stabæk í vikunni. Hún hefur verið á mála hjá Aftur- eldingu í sumar. Foreldrar hennar eru búsettir í Noregi og spilaði það stórt hlut- verk í ákvörðun hennar. Telma hefur átt flott tímabil og skorað átta mörk fyrir liðið. Hún var ekki með liðinu gegn Stjörn- unni í vikunni en þá tapaði Aftur- elding illa, 7-1. Telma missir einnig af lokaleiknum gegn HK/ Víkingi í hreinum úrslitaleik um áframhaldandi sæti í Pepsi-deild kvenna í knattspyrnu. „Fyrir tveimur árum var ég ekki almennilega tilbúin til að taka þetta skref en núna held ég að þetta sé rétt ákvörðun,“ segir Telma sem er aðeins 18 ára gömul. Framherjinn lék áður með Sta- bæk árið 2011 og varð meðal ann- ars bikarmeistari með liðinu. Stabæk er norskur meistari í knattspyrnu og situr sem stendur í efsta sæti deildarinnar með fimm stiga forskot á Lilleström. „Þetta er stór klúbbur með ótrú- lega góða aðstöðu svo það er allt til.“ Þessi unga knattspyrnukona setur markið hátt og ætlar sér stóra hluti. „Ég hef verið í yngri landsliðum Íslands en núna er markmið mitt að komast í A-landsliðið og það að vera komin í lið eins og Stabæk mun klárlega hjálpa mér í því að ná markmiðum mínum.“ „Vonandi næ ég að taka þátt í einhverjum leikjum með liðinu á þessu tímabili,“ segir Telma. Stabæk leikur við Klepp á morgun í norsku deildinni. - sáp Núna er ég tilbúin að fl ytjast út Hin átján ára gamla Telma Hjaltalín er gengin til liðs við besta lið Noregs. MARKAVÉLIN Telma Hjaltalín flytur í annað sinn til Noregs. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN Mörkin: 1-0 Arnór Traustason (5.), 1-1 Garðar Gunnlaugs. (12.), 2-1 Hörður Sveins. (19.), 2-2 Arnar Guðjóns. (24.), 3-2 Hörður Sveins. (38.), 3-3 Jóhannes Guðjóns., víti (39.), 4-3 Hörður Sveins. (62.), 5-3 Magnús Þorsteins. (84.), 5-4 Jorgae Garcia (88.) Keflavík (4-4-2): Ómar Jóhanns. 5 - Endre Ove 7, Halldór Halldórs. 5, Haraldur Guðmunds. 6, Magnús Matthías. 7 - Bojan Ljubicic 6, Einar Einars. 6, Jóhann Guðmunds. 6 (83. Magnús Þor- steins. -), Daníel Gylfasson 6 (66. Elías Ómars. 6) - Hörður Sveinsson 9*, Arnór Ingvi Traustason 8. ÍA (4-4-2): Páll Jónsson. 4 - Einar Einarsson 4, Kári Ársælsson 3, Thomas Sörensen 5, Hector Pena 5 - Joakim Wrele 5 (87. Andri Adolphsson -), Jóhannes Guðjónsson 6, Arnar Guðjónsson 7 (72. Jón Ákason -), Hallur Flosason 5 - Ármann Björnsson 6 (72. Jorge Garcia -), Garðar Gunnlaugsson 7. 5-4 Nettóvöllur Kristinn Jakobsson (6) Mörkin: 0-1 Grétar S. Sigurðarson (57.). Víkingur (4-5-1): Einar Hjörleifsson 8 - Emir Dokara 6 , Damir Muminovic 6 , Insa Bohigues 6, Samuel Jimenez 6, - Alfreð Már Hjaltalín 7 (89., Fannar Hilmarsson -), Farid Zato 6, Eldar Masic 5, Eyþór Birgisson 6 (67., Guðmundur Magnússon 5) Antonio Mossi 5 , - Guðmundur Steinn Haf- steinsson 7 (79., Björn Pálsson - ). KR (4-3-3): Hannes Þór Halldórsson 6 - Haukur Heiðar Hauksson 6, Grétar Sigfinnur Sigurðsson 8*, Jonas Grönner 8, Guðmundur Reynir Gunn- arsson 6, - Atli Sigurjónsson 6 (67., Emil Atlason 4), Bjarni Guðjónsson 5 (57., Þorsteinn Már Ragnarsson 5) Jónas Guðni Sævarsson 6, Baldur Sigurðsson 7, Óskar Örn Hauksson 6, - Gary Martin 7 (76., Kjartan Henry Finnbogason -). 0-1 Ólafsvíkur- völlur Örvar Sær Gíslason (7) Mörkin: 0-1 Atli Viðar Björnsson (88.). Fylkir (4-3-3): Bjarni Þórður Halldórsson 5 - Ásgeir Örn Arnþórsson 5, Kristján Hauksson 5, Agnar Bragi Magnússon 5, Tómas Þorsteinsson 5 - Ásgeir Börkur Ásgeirsson 6, Finnur Ólafsson 5 (77. Davíð Einarsson -), Pablo Punyed 5 - Emil Berger 5, Kjartan Ágúst Breiðdal 5 (68. Guy Roger Eschman 5), Viðar Örn Kjartansson 5. FH (4-3-3): Daði Lárusson 6 - Jón Ragnar Jónsson 5, Pétur Viðarsson 5, Guðmann Þórisson 6*, Sam Tillen 5 - Davíð Þór Viðarsson 5, Björn Daníel Sverrisson 6, Brynjar Ásgeir Guðmundsson 5 (58. Emil Pálsson 5)- Ólafur Páll Snorrason 6, Ingimundur Níels Óskarsson 5 (83. Kristján Gauti Emilsson -), Albert Brynjar Ingason 5 (74. Atli Viðar Björnsson -). 0-1 Fylkisvöllur Erlendur Eiríksson (7) Mörkin: 0-1 Ármann Pétur Ævarsson (4.), 1-1 Garðar Jóhannsson (43.), 2-1 Halldór Orri Björns- son (45.+1), 3-1 Robert Sandnes (80.). Stjarnan (4-3-3): Ingvar Jónsson 7, Jóhann Laxdal 7, Martin Rauschenberg 5, Daníel Laxdal 7, Robert Sandnes 7, Atli Jóhannson 7, Michael Præst 8*, Veigar Páll Gunnarsson 7 (79., Baldvin Sturluson -), Kennie Chopart 7 (85., Gunnar Örn Jónsson -), Halldór Orri Björnsson 8, Garðar Jóhannson 7. Þór (5-3-2): Joshua Wicks 6, Baldvin Ólafsson 6, Andri Hjörvar Albertsson 6, Hlynur Atli Magnús- son 6, Janez Vrenko 6 (62., Chukwudi Chijindu 5), Ingi Freyr Hilmarsson 7, Orri Freyr Hjaltalín 6, Mark Tubæk 5 (84., Jónas Björgvin Sigurbergsson -), Ármann Pétur Ævarsson 7, Jóhann Þórhallsson 6 (84., Sigurður Marinó Kristjánsson -), Jóhann Helgi Hannesson 7. 3-1 Samsungvöllur Vilhjálmur Þórarins. (8) PEPSI DEILDIN 2013 STAÐAN KR 17 14 1 2 41-18 43 FH 19 12 4 3 38-19 40 Stjarnan 19 12 4 3 31-18 40 Breiðablik 17 9 5 3 27-19 32 Valur 17 6 7 4 33-25 25 ÍBV 17 6 5 6 21-20 23 Fylkir 19 5 5 9 27-27 20 Keflavík 19 6 2 11 25-40 20 Fram 18 5 4 9 23-31 19 Þór 19 4 5 10 26-41 17 Víkingur Ó. 19 2 8 9 15-28 14 ÍA 18 2 2 14 25-46 8 JÓHANNES HAUKUR RÚNAR FREYR STERKUR OG BRAGÐMIKILL EN LÍKA MILDUR OG FROÐUKENNDUR LAUGARDAGSMORGNA FRÁ 9 TIL 12
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.