Fréttablaðið - 13.09.2013, Blaðsíða 8

Fréttablaðið - 13.09.2013, Blaðsíða 8
13. september 2013 FÖSTUDAGUR| FRÉTTIR | 8 E N N E M M / S ÍA / N M 5 9 2 0 3 BL ehf Sævarhöfða 2 / 110 Reykjavík 525 8000 / www.bl.is SPARNEYTNIR OG VANDAÐIR www.nissan.is 100% RAFKNÚINN NISSAN LEAF NISSAN QASHQAI 4x4, DÍSIL NISSAN JUKE ACENTA, DÍSIL Komdu og kynntu þér kosti LEAF Verð: 4.990 þús. kr. Verð: 3.690 þús. kr. GE bílar / Reykjanesbæ / 421 8808 – Bílasalan Bílás / Akranesi / 431 2622 Bílasala Akureyrar / Akureyri / 461 2533 – Bílaverkst. Austurlands / Egilsst. / 470 5070 IB ehf. / Selfossi / 480 8080 NÝR DÍSIL 5,1 l/100 km 4,2 l/100 km 0,0 l/100 km 500 ÞÚS. KR. KAUPAUKI FYLGIR NÝJUM QASHQAI KAUPAUKI: Vetrardekk · Dráttarbeisli · iPad 32 GB HAFNARFJÖRÐUR „Markmið starfs- ins er að gefa krökkunum tækifæri til að kynnast öðrum krökkum og vinna með þeim að skemmtilegum og þroskandi verkefnum bæði úti og inni,“ segir í minnisblaði um nýjan frístundaklúbb fyrir fötluð börn sem bæjarráð Hafnarfjarðar samþykkti að setja á fót. Frístundaklúbbur er ætlaður fyrir tíu til fimmtán ára börn með fatlanir. „Síðustu misseri hafa komið fram óskir foreldra fatlaðra barna sem hafa ekki aðgang að öruggum stað eða dagvist eftir að skóla lýkur,“ segir í minnisblaðinu. Til að byrja með var verkefnastjóri ráðinn t íma- bundið og klúbb- urinn tengdur félagsmiðstöð- inni Hrauninu. „Farið verð- ur á nýju ári að skoða hvernig til hefur tekist, hvort starfsemin skili því sem ætl- ast er til, hvort börnunum muni fjölga og hvort horfa þurfi á nýtt og stærra hús- næði,“ segir um starfsemina sem skilgreind er mitt á milli frístunda- heimilis og félagsmiðstöðvar. - gar Öruggur staður fyrir fötluð börn eftir að skóla lýkur í Hafnarfirði: Fá tækifæri í frístundaklúbbi Í HAFNARFIRÐI Gefa á fötluðum krökkum aukin tækifæri til að kynnast öðrum börnum í eigin frístundaklúbbi. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA GUNNAR AXEL AXELSSON LAUNAMÁL Heildarlaun félaga í VR hækkuðu um 6,9% á milli ára sam- kvæmt launakönnun sem kynnt var í gær. Þetta er ívið meira en launavísitala Hagstofunnar sýnir á sama tímabili. Vísitala neyslu- verðs hækkaði um 4,2% á sama tíma og jókst kaupmáttur heildar- launa því á tímabilinu um 2,7%. Aðrar niðurstöður launakönnun- arinnar leiddu í ljós að grunnlaun félagsmanna VR eru að meðaltali 473 þúsund á mánuði en heildar- laun eru að meðaltali 507 þúsund. Álag í vinnu hefur aukist frá því í fyrra að mati 57% svarenda, meira hjá körlum en konum, og segjast 20% kvenna vera of þreytt til að gera nokkuð í lok vinnudags á móti 14% karla. Launamunur kynjanna helst einnig óbreyttur milli ára, kynbundinn munur er 9,4% en munur á heildarlaunum er 15,4%. Í upphafi árs var kynnt ný leið, jafnlaunavottun VR, sem ætluð er til að ná enn betri árangri í barátt- unni fyrir jafnrétti kynjanna. - ka Launakönnun VR sýnir að heildarlaun félaga hækka um 6,9% frá því í fyrra: Heildarlaun hækka á milli ára LAUNAMUNUR ÓBREYTTUR Í nýrri launakönnun VR kemur fram að launa- munur kynjanna helst óbreyttur á milli ára en kynbundinn munur er 9,4%. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON STJÓRNMÁL Stjórn Varðar, fulltrúa- ráðs sjálfstæðisfélaganna í Reykja- vík, kemur saman á fundi í dag og mun þar móta tillögu sína að því hvernig velja skuli á framboðslista flokksins fyrir borgarstjórnarkosn- ingarnar á næsta ári. Tillagan verður síðan borin upp á fulltrúaráðsfundi á fimmtudaginn í næstu viku. Í stjórninni sitja 26 manns og samkvæmt heimildum Frétta- blaðsins er mikill meirihluti þeirra hlynntur því að velja oddvita listans í svokölluðu leiðtogaprófkjöri, þar sem almennum flokksmönnum gæf- ist færi á að velja úr hópi þeirra sem gæfu kost á sér til að leiða listann. Sú leið hefur aldrei fyrr verið farin. Óttarr Guðlaugsson, formaður stjórnarinnar, staðfestir að leiðtoga- prófkjörsleiðin hafi verið mikið til umræðu án þess að nokkuð hafi þó verið ákveðið enn. „Manni heyrist nú á flestum að fólk vilji fara ein- hverjar nýjar leiðir, svo er bara spurning hvaða leið það er,“ segir Óttarr. Hann segir marga hrifna af hug- myndinni um leiðtogaprófkjör. „Þannig væri fólki gefið tækifæri til að verða okkar borgarstjóraefni – menn byðu sig þá fram í leiðtoga- sætið en ekkert annað.“ Möguleikarnir í stöðunni eru fjórir: leiðtogaprófkjörið, almennt prófkjör, uppstilling og svokölluð röðun, þar sem fulltrúaráðið sjálft kýs inn á listann, fyrst í efsta sætið, síðan í annað sætið og koll af kolli. Óttarr segir að meðal annars hafi komið til tals að halda fyrst leiðtoga- prófkjör um efsta sætið en að velja afganginn af listanum með áður- nefndri röðun. Einnig kæmi þó til greina að halda einfaldlega annað prófkjör fyrir neðri sætin eða velja þá frambjóðendur með uppstillingu. Samkvæmt heimildum Frétta- blaðsins eru sumir stjórnarmenn mjög ósáttir við hugmyndir um leiðtogaprófkjör. Á meðal þeirra eru fulltrúar Heimdallar, ungra sjálfstæðismanna í Reykjavík, og Hvatar, félags sjálfstæðiskvenna í Reykjavík. „Lýðræðislegasta leiðin til að velja á lista er almennt prófkjör, að flokksmenn fái að velja sína fram- bjóðendur,“ segir Sigríður Hall- grímsdóttir, formaður Hvatar og aðstoðarkona Illuga Gunnarssonar menntamálaráðherra. Ingvar Smári Birgisson, for- maður Heimdallar, tekur í sama streng. „Við Heimdellingar teljum að það sé langfarsælast fyrir flokk- inn að hafa almennt prófkjör,“ segir hann. Það þjóni meðal annars best hagsmunum ungs fólks sem kunni að vilja bjóða sig fram. stigur@frettabladid.is Leiðtogaprófkjörið líklegasti kosturinn Mikill meirihluti er fyrir því í stjórn Varðar að efna einungis til prófkjörs um leiðtogasætið hjá Sjálfstæðisflokknum í borginni. Hugsanlegt að fulltrúaráðið kjósi svo um hin sætin á listanum. Nokkrir stjórnarmenn eru ósáttir við áformin. Sex hafa einkum verið orðuð við framboð í odd- vitasætið hjá flokknum. Fjögur eru nú borgarfulltrúar; Gísli Marteinn Baldursson, Júlíus Vífill Ingvarsson, Kjartan Magnússon og Þorbjörg Helga Vigfúsdóttir. Auk þeirra hafa þingmaðurinn Guðlaugur Þór Þórðar- son og Halldór Halldórsson, formaður Sambands íslenskra sveitarfélaga og fyrrverandi bæjarstjóri á Ísafirði, verið nefndir til sögunnar. SEX ORÐUÐ VIÐ ODDVITASÆTIÐ GÍSLI MARTEINN BALDURSSON GUÐLAUGUR ÞÓR ÞÓRÐARSON HALLDÓR HALLDÓRSSON JÚLÍUS VÍFILL INGVARSSON KJARTAN MAGNÚSSON ÞORBJÖRG HELGA VIG- FÚSDÓTTIR
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.