Fréttablaðið - 13.09.2013, Blaðsíða 54

Fréttablaðið - 13.09.2013, Blaðsíða 54
6 FÖSTUDAGUR 13. september 2013 „Ég er heilluð af störfum lögreglunnar eftir vinnslu þáttanna. Ég gæti vel hugsað mér að vera rannsóknarlögreglumaður sjálf, efast þó um að ég næði þrek prófinu,“ segir Helga Arnardóttir fréttamaður. Hún skoðar íslenskar ráðgátur í glænýjum þáttum, Óupplýst lögreglumál. Brynja Dögg Friðriksdóttir framleiðir þættina sem hefja göngu sína á Stöð 2 í haust. „Við fjöllum um morð, bankarán og bruna í þáttunum. Mörg þessara mála hafa verið í umræðunni og fólk man jafnvel vel eftir þeim, en einnig fjöllum við um gömul mál sem ekki hefur verið fjallað um áður. Elsta málið er frá árinu 1945. Við veltum líka fyrir okkur hvort í einhverjum til- fellum hafi verið um slys að ræða eða glæp og hvað hafi orðið til þess að það fennti yfir slóð lögreglunnar.“ Í þáttunum ræðir Helga við aðstand- endur, fórnarlömb og lögreglumenn sem komu að málunum á sínum tíma. Hún segir ómælda rannsóknarvinnu liggja að baki vinnslu þáttanna. „Ég reyni að hafa uppi á öllum sem koma að málunum; vitnum, fjölskyldu og rann- sakendum. Lögreglan hefur verið okkur einstaklega hjálpleg um milligöngu og öflun gagna. Elsta málið fundum við fyrir tilviljun í blaðagrein og voru öll gögn lög- reglunnar um það komin inn á Þjóðskjala- safn. Það morðmál varð aldrei upplýst og í því tilfelli var enginn afkomandi eða nákominn fórnarlambinu á lífi. Fjarskyld frænka var svo vinsamleg að veita okkur viðtal um málið,“ segir Helga. Hún segir jafnframt ótrúlega vel hafa gengið að fá fólk til að rifja upp liðna atburði. „Það er ríkt í fólki að vilja upplýsa málin. Við rákum okkur afar sjaldan á að fólk vildi ekki tjá sig og liðsinna okkur. Svona umfjallanir höfða einnig til fólks almennt. Fólk hefur einfaldlega áhuga á ráðgátum. Ég hafði gengið með hug- myndina að þáttunum í maganum í þrjú ár,“ segir Helga, en fyrri þáttaröð hennar, Mannshvörf, sló rækilega í gegn á Stöð 2 síðasta vetur. En verður framhald á Óupplýstum lög- reglumálum? „Nei, lögreglan á Íslandi er dugleg að upplýsa mál. Það eru fá mál sem eru fullkomin ráðgáta, sem betur fer. Markmiðið er að festa fólki þessi mál í minni og hver veit nema einhver tali ein- hvern tíma sem verður til þess að hjálpa.“ Íslenskar ráðgátur Óupplýst lögreglumál Á Stöð 2 í haust. „Það er ríkt í fólki að vilja upplýsa málin. Við rákum okkur afar sjaldan á að fólk vildi ekki tjá sig og liðsinna okkur. Helga Arnardóttir Kolbrún Björnsdóttir er væntanleg á Stöð 2 í október í glænýjum spjallþætti sem nefnist ein- faldlega Kolla. „Ég mun spjalla við áhugaverða einstaklinga á persónulegu nótunum og fjalla um ýmsa hluti í okkar daglega lífi. Til dæmis um það hvernig best er að takast á við meðvirkni, hverjar eru bestu leiðirnar til að láta samskipti flókinna fjölskyldna ganga upp, hvað getum við gert til að draga úr einelti og jafnvel bestu leiðirnar til að halda heimilinu snyrtilegu,“ segir Kolla, sem var daglegur gestur á heimilum landsmanna í útvarpsþættinum Í bítið á Bylgjunni. En hvernig leggst það í hana að vera á leið í sjónvarp? „Það er afskaplega spenn- andi en þó örlítið stressandi. Sjónvarpið er allt öðruvísi miðill en útvarpið en það er líka hverjum hollt að stíga út fyrir rammann og takast á við áskoranir. Ég hlakka til.“ Kolla ætlar að fá til sín ótal gesti í vetur, en skyldi hún eiga einhverja draumaviðmæl- endur? „Þeir eru ótal margir en Hillary Clinton kemur fyrst upp í hugann. Og þá ekki um pólitíkina heldur lífið og tilveruna. Mig langar líka mikið til að spjalla við Dorrit. Það geislar af henni orkan og jákvæðnin.“ Aðspurð um fyrirmyndir í starfi segir Kolla. „Einlægni, jákvæðni og að vera maður sjálfur eru kostir sem ég met mikils. Ég segi því Hemmi Gunn.“ Ég hlakka til Kolla Hefst á Stöð 2 í október.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.