Fréttablaðið - 25.09.2013, Qupperneq 12
25. september 2013 MIÐVIKUDAGUR| FRÉTTIR | 12
PI
PA
R\
TB
W
A
W
A
\T
BW
PA
R\
PI
PA
S
ÍASÍ
A
S
ÍA
1
32
75
44
27
54
13
2
Skeifunni 11B Reykjavík Sími 519 7550 promennt@promennt.is promennt.is
Námskeið sérstaklega ætlað 60 ára og eldri sem litla sem enga tölvukunnáttu
hafa. Hæg yfirferð með reglulegum upprifjunum og endurtekningum í umsjá
þolinmóðra og reyndra kennara. Tölvugrunnur, internetið og tölvupóstur.
Hefst: Lýkur: Kennt: (sjö skipti) frá
Verð: (Kennslubók á íslensku innifalin)
Hentar þeim sem lokið hafa byrjendanámskeiðinu eða hafa sambærilega undir-
stöðu. Byrjað er á upprifjun tölvugrunns áður en haldið er lengra í ritvinnslu.
Frekari æfingar í notkun internets (t.d. Facebook o.fl.) og í allri meðferð tölvupósts.
Hefst: Lýkur: Kennt: (sjö skipti) frá
Verð: (Kennslubók á íslensku innifalin)
Vinsælt og gagnlegt námskeið þar sem tekið er fyrir það helsta sem
almennir notendur þurfa að kunna um stafrænar myndavélar. Yfirfærsla
mynda í heimilistölvuna, skipulag myndasafns, einfaldar lagfæringar,
myndir prentaðar og sendar í tölvupósti.
Hefst: Lýkur: Kennt: (fjögur skipti) frá
Verð: (Kennsluhefti á íslensku innifalið)
Hollvinasamtök
varðskipsins Óðins
Aðalfundur Hollvinasamtaka varðskipsins Óðins verður
haldinn miðvikudaginn 9. október næstkomandi.
Fundurinn verður í Víkinni - sjóminjasafni
Reykjavíkur, Grandagarði 8 og hefst klukkan 17.00.
Fundarefni: Venjuleg aðalfundarstörf.
Hollvinir varðskipsins Óðins hafa með samstilltu átaki
bjargað þessu merkilega skipi, gert það að lifandi safni
um baráttu okkar í þorskastríðunum og helsta djásni
sjóminjasafnsins.
Hollvinir, fjölmennið á fundinn. Nýir félagar velkomnir.
Stjórn Hollvinasamtaka Óðins
Óðinn reyndist sérlega vel sem björgunarskip. Hann dró alls tæplega 200 skip til
lands eða í landvar vegna bilana, veiðarfæra í skrúfu eða eldsvoða um borð. Einnig
dró hann flutninga- og fiskiskip 14 sinnum af strandstað.
Þá bjargaði skipið áhöfnum strandaðra skipa þrisvar sinnum og tvisvar
bjargaði það áhöfnum sökkvandi skipa.
KO
M
A
lm
an
na
te
ng
sl/
sv
ar
th
ví
tt
eh
f.
BRASILÍA Dilma Rousseff, forseti
Brasilíu, tilkynnti í ræðustól á
allsherjarþingi Sameinuðu þjóð-
anna í gær að hún ætlaði sér ekki
að mæta í matarboð hjá Barack
Obama Bandaríkjaforseta sem átti
að halda 23. október næstkomandi.
Þetta gerir hún til að mótmæla
njósnum Bandaríkjamanna víða
um heim, þar á meðal í Brasilíu,
sem komst upp um eftir að Edward
Snowden lak skjölum frá banda-
rísku leyniþjónustunni til fjöl-
miðla í vor.
Hún fordæmdi njósnirnar harð-
lega í ræðu sinni: „Við stöndum
frammi fyrir alvarlegum brotum
á mannréttindum og borgararétt-
indum,“ sagði hún, „og sér í lagi
virðingarleysi gagnvart þjóðar-
fullveldi“.
Hún segist hafa krafist þess að
bandarísk stjórnvöld kæmu með
afsökunarbeiðni og gæfu bæði
skýringar og tryggingar fyrir því
að slíkt yrði aldrei endurtekið.
„Ríkisstjórn mín mun gera allt
sem í valdi hennar stendur til
þess að vernda mannréttindi allra
Brasilíu manna og verja okkur
gegn ólöglegum hlerunum sam-
skipta og gagna,“ sagði hún í ræðu
sinni.
Málið þykir hið vandræðaleg-
asta fyrir Obama, sem hefur ekki
boðið leiðtogum margra annarra
þjóða til hátíðarkvöldverðar í
Hvíta húsinu. Rousseff Brasilíufor-
seti átti að verða eini þjóðarleið-
toginn sem fengi slíkt boð á þessu
ári en nú lítur út fyrir að enginn
slíkur hátíðarkvöldverður verði
haldinn á árinu í Hvíta húsinu.
Heimboðið var ákveðið í maí
síðast liðnum, aðeins fáeinum
vikum áður en blaðamaðurinn
Glenn Greenwald birti fyrstu
fréttirnar af hlerunum Banda-
ríkjamanna.
Rousseff tók hins vegar
ákvörðun sína um að hætta við
heimboðið eftir að röð fréttaskýr-
ingaþátta hafði birst í brasilísku
sjónvarpi, þar sem ítarlega var
fjallað um hleranir bandarísku
leyniþjónustunnar í Brasilíu.
Meðal þeirra sem stóðu að gerð
þeirra þátta var Greenwald.
Þar kom meðal annars fram að
samskipti Rousseffs við aðstoðar-
menn hennar hefðu verið hleruð.
Hún sagði í ræðu sinni að njósna-
starfsemi af þessu tagi væri brot
á þeim meginreglum sem hlytu að
liggja samskiptum vinaþjóða til
grundvallar.
gudsteinn@frettabladid.is
Afþakkar heimboð
vegna njósnamáls
Forseti Brasilíu gagnrýndi Bandaríkin harðlega úr ræðustól á allsherjarþingi Sam-
einuðu þjóðanna í gær. Hún sakar Bandaríkin um alvarleg mannréttindabrot og
krefst afsökunarbeiðni og fullvissu þess að njósnir um samskipti séu úr sögunni.
DILMA ROUSSEFF OG BAN KI-MOON Forseti Brasilíu kemur til fundar í gær ásamt
framkvæmdastjóra Sameinuðu þjóðanna. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
NEYTENDUR Starfsmenn Neytenda-
stofu fóru í sex minjagripa verslanir
í miðbæ Reykjavíkur í vikunni og
settu alls 11 vörur í tímabundið sölu-
bann.
Vörurnar sem um ræðir voru
ekki með CE-merki en slíkt merki
gefur til kynna að vara sé öruggt
leikfang fyrir börn. Búðirnar voru
The Viking, Rammagerðin, Ís-
björninn og Thorvaldsensbasar. Í
verslunum Islandia og Ísey voru
gerðar athugasemdir en ekki farið
fram á sölubann að svo stöddu. - eh
Merkingum vara ábótavant:
Sölubann sett á
ómerkt leikföng
LÖGREGLUMÁL Innanríkisráðu-
neytið hefur ekkert heyrt frá yfir-
völdum í Danmörku varðandi kæru
dansks manns á hendur ís lenskri
barnsmóður sinni til lög reglunnar
í Danmörku. Þetta staðfesta bæði
upplýsingafulltrúi ráðuneytisins
og Lára V. Júlíusdóttir hæstarétt-
arlögmaður, sem fer með mál föð-
urins.
Lára bætir því við að ekki sé
vitað hvar stúlkurnar eru.
Eins og fram kom í Frétta-
blaðinu í síðustu viku hefur maður-
inn grun um að konan hafi numið
dætur þeirra þrjár á brott og farið
með þær til Íslands í leyfisleysi.
Faðirinn hefur fullt forræði
yfir börnunum en móðirin aðeins
umgengnisrétt. Það fyrirkomulag
er niðurstaða áralangra forræðis-
deilna fyrir dómstólum sem hafa
verið afar harðvítugar, ekki síst
vegna ásakana konunnar um að
maðurinn hafi beitt sig og börnin
ofbeldi. Maðurinn neitar þeim
ásökunum.
Heimildir blaðsins herma að
konan hafi haft stúlkurnar hjá sér
í sumar en hafi ekki skilað þeim
aftur hinn fjórða ágúst eins og til
stóð. Jafnframt hafi konan komið
til Íslands fyrr í þessum mánuði
og að dæturnar þrjár séu með
henni. - þj
Mál konunnar sem danskur barnsfaðir kærði vegna forræðisdeilu:
Vita ekki hvar stúlkurnar eru
FRÁ KEFLAVÍKURFLUGVELLI Konan er talin hafa komið með dætur sínar til lands-
ins fyrr í mánuðinum, en hún átti að skila þeim til föður þeirra 4. ágúst síðastliðinn.
FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
Ríkisstjórn mín mun
gera allt sem í valdi hennar
stendur til þess að vernda
mannréttindi allra Brasilíu-
manna og verja okkur gegn
ólöglegum hlerunum sam-
skipta og gagna.
Dilma Rousseff,
forseti Brasilíu.
HEILBRIGÐISMÁL Síðustu tíu ár hefur heimafæð-
ingum fjölgað um tæp 75 prósent hér á landi.
Samkvæmt fæðingaskrá voru heimafæðingar 25
talsins árið 2002. Í fyrra voru skráðar heimafæð-
ingar 99 talsins.
Í nýrri bandarískri rannsókn sem gerð var af vís-
indamönnum við New York-Presbyterian Hospital
og Weill Cornell Medical Center kemur fram að
heimafæðingar auki líkur á andvana fæðingum,
flogum og öðrum taugafræðilegum röskunum.
Rannsóknin er ein sú stærsta sem gerð hefur
verið og tók mið af um 13 milljónum fæðinga þar
í landi.
Arndís Þórarinsdóttir og Hrafnhildur Halldórs-
dóttir, heimafæðingaljósmæður og forsvars konur
Bjarkarinnar, sem hér sinnir heimafæðingum,
segja ekki hægt að yfirfæra bandarískar rann-
sóknir á Ísland. Hér sé allt annað heilbrigðiskerfi,
menntunarstig ljósmæðra sé hærra og samstarf
við fæðingadeildir gott. Fæðing sé ekki sjúkdóms-
ástand og að þær konur sem kjósi að fæða heima
taki upplýstar ákvarðanir.
„Ef það er eitthvað sem við höfum áhyggjur af þá
mælum við að sjálfsögðu með því að konan flytjist
á spítala og við förum þá með henni þangað,“ segir
Arndís.
Þá segir Hrafnhildur ekki mælt með því við allar
konur að þær fæði heima. - mlþ
Heimafæðingum hér á landi hefur fjölgað um tæp 75 prósent á síðustu tíu árum:
Ekki er mælt með heimafæðingu fyrir alla
KORNABARN
Bandarísk
rannsókn segir
aukna áhættu
tengda heima-
fæðingum.
NORDICPHOTOS/
GETTY IMAGES