Fréttablaðið - 25.09.2013, Síða 14

Fréttablaðið - 25.09.2013, Síða 14
25. september 2013 MIÐVIKUDAGURSKOÐUN HALLDÓR FRÉTTABLAÐIÐ Skaftahlíð 24, 105 Reykjavík Sími: 512 5000, ritstjorn@frettabladid.is FRÉTTASTJÓRI: Andri Ólafsson andri@frettabladid.is HELGAREFNI: Kjartan Guðmundsson kjartan@frettabladid.is MENNING: Friðrika Benónýsdóttir fridrikab@frettabladid.is DÆGURMÁL: Sara McMahon sara@frettabladid.is VÍSIR: Kristján Hjálmarsson, kristjan@visir.is LJÓSMYNDIR: Pjetur Sigurðsson pjetur@frettabladid.is FRAMLEIÐSLUSTJÓRI: Sæmundur Freyr Árnason sfa@frettabladid.is ÚTLITSHÖNNUN: Silja Ástþórsdóttir siljaa@frettabladid.is ÚTGÁFUFÉLAG: 365 miðlar ehf. STJÓRNARFORMAÐUR: Ingibjörg S. Pálmadóttir FORSTJÓRI OG ÚTGÁFUSTJÓRI: Ari Edwald RITSTJÓRAR: Ólafur Þ. Stephensen olafur@frettabladid.is, Mikael Torfason mikael@frettabladid.is Fréttablaðið kemur út í 90.000 eintökum og er dreift ókeypis á heimili á höfuðborgarsvæðinu og Akureyri. Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslunum á landsbyggðinni. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. ISSN 1670-3871 FRÁ DEGI TIL DAGS Þrátt fyrir að 90% fyrirtækja á Íslandi séu í hópi minni eða meðalstórra fyrir- tækja hefur þessi hópur mætt afgangi við stefnumótun stjórnvalda síðustu ár. Hagvöxtur lætur á sér standa. Það þarf nýja stefnu. Tími er kominn til að beina kröftum að því falda afli sem býr í minni og meðalstórum fyrirtækjum. Félag atvinnurekenda ýtir þessa dag- ana úr vör átaki sem snýr að þessum fyrir tækjum. Átakið er ákall til stjórn- valda um að tryggja þessum fyrirtækjum góð og uppbyggjandi skilyrði þannig að þau megi dafna og þroskast á sama tíma og þau styrkja undirstöður þjóðfélagsins. FA hefur dregið fram tólf atriði í til- lögum sem eiga að móta samvinnuvett- vang þar sem aðilar geta skipst á skoð- unum og mótað stefnu til framtíðar í þágu minni og meðalstórra fyrirtækja. Innan vébanda FA eru 180 fyrirtæki með um fjögur þúsund manns í vinnu. Með réttum breytingum nýtum við bjarg- ráðin sem felast í þeim. Með því að styðja við átak FA geta enn fleiri fyrirtæki haft jákvæð áhrif á þróun samfélagsins og um leið gjörbylt starfsumhverfi sínu. Takmörk á eignarhaldi banka á fyrir- tækjum, skilvirkari fjármögnunarleiðir, aðgerðir gegn kennitöluflakki, lækkun tryggingagjalds og afnám vörugjalda eru aðeins nokkur þeirra atriða sem við munum leggja áherslu á. Nánari útlist- anir má sjá á atvinnurekendur.is auk þess sem unnt verður að fylgjast með fram- vindu einstakra mála á hverjum tíma. Tökum höndum saman. Við erum góð í því sem þjóð. Skjótum styrkum stoðum undir samfélagið sem hægt er að byggja á til framtíðar. Þegar einu verkefni er lokið tekur annað við. Við munum ekki sitja auðum höndum þrátt fyrir að markmiðum verði náð heldur setja okkur ný markmið. Við hjá FA vonum að sem flestir sjái hag í því að styðja við þau verkefni sem hverju sinni eru í farveginum. Falda afl ið er 90 prósent fyrirtækja landsins ATVINNA Birgir Bjarnason formaður Félags atvinnurekenda K önnun sem Capacent Gallup gerði fyrir Ríkisútvarpið á fylgi flokkanna í Reykjavíkurborg bregður athyglis- verðu ljósi á stöðu borgarmálanna. Bezti flokkurinn nýtur nú aftur mests stuðnings allra framboða í Reykjavík, hefur sama fylgi og hann fékk í kosningunum 2010 og fengi aftur sex borgarfulltrúa ef gengið kosið yrði nú. Sjálfstæðisflokkurinn hefur glatað forystunni sem hann hafði í könnunum mestan part kjörtímabilsins, fengi minna fylgi en í síðustu kosningum og jafnmarga fulltrúa, eða fimm. Samfylkingin tapar fylgi og fengi tvo menn í stað þriggja, en Vinstri græn gætu unnið mann, þótt fylgið hafi minnkað. Framsóknarflokkurinn mælist með svipað fylgi og í síðustu kosn ingum, sem dugir ekki til að koma manni í borgarstjórn, og hefur dalað verulega síðan í könnun í apríl, þegar flokkurinn var á mikilli siglingu á landsvísu. Merkilegustu tíðindin eru að Bezti flokkurinn er ekki sú bóla sem margir spáðu. Flokkurinn varð stærstur í borgarstjórn í krafti vantrausts kjósenda á gömlu flokkunum. Það vantraust er enn til staðar og á því græðir Bezti flokkurinn, þrátt fyrir að hafa í mörgu ekki staðið sig vel við rekstur borgarinnar. Jón Gnarr borgarstjóri hefur komið á óvart. Hann lýsti því yfir í upphafi að hann ætlaði að láta öðrum eftir daglegan rekstur en rækta „óskilgreint tilfinningalegt hlutverk“ borgarstjórans gagn- vart borgarbúum, vera í betra sambandi við þá og taka meiri þátt í daglegu lífi þeirra. Þetta fannst mörgum fráleitt, en staðreyndin er að það hefur gengið eftir og margir Reykvíkingar kunna vel að meta að einhver rækti tilfinningasambandið við þá; sérstaklega af því að það eru ekki margir aðrir stjórnmálamenn sem gera það. Um leið og Bezti flokkurinn festist í sessi dýpkar kreppa gömlu flokkanna. Samfylkingin er óralangt frá því fylgi sem hún telur sig eiga að njóta í borginni. Þvert á það sem spáð var í upphafi, að Samfylkingin myndi stjórna borginni í raun, hefur hún staðið í skugga Bezta flokksins í meirihlutasamstarfinu. Ríkisstjórnarflokkarnir græða augljóslega ekki á stjórnarset- unni og það mun ekki breytast fram að borgarstjórnarkosningum, á tíma þar sem ríkisstjórnin mun taka margar óvinsælar ákvarð- anir. Þeir líða líka báðir fyrir forystuleysi; Framsóknarflokkurinn á engan leiðtoga í borginni og Sjálfstæðisflokkurinn í raun ekki heldur eftir að Hanna Birna Kristjánsdóttir fór í landsmálin. Eftir að R-listinn leystist upp endurheimti Sjálfstæðisflokkurinn stöðu sína sem stærsti flokkurinn í borgarstjórn þótt sú tíð sé liðin þegar hann náði hreinum meirihluta. Í síðustu kosningum varð hann hins vegar næststærstur og gæti orðið það aftur. Átök innan flokksins um aðferðir við val á framboðslista í borginni eru til marks um ákveðna örvæntingu yfir þessari stöðu; margir í harða kjarna flokksins telja greinilega að sumir af borgarfull trúunum hafi gert of mikið af því að vinna með meirihlutanum, ekki sízt í skipulagsmálum, og vilja breytta stefnu með harðari einkabílisma og andstöðu við að flugvöllurinn fari úr Vatnsmýrinni. Afstaða til Reykjavíkurflugvallar virðist reyndar litlu breyta um það hvaða flokka fólk styður í borgarstjórn. Og er vit í því fyrir sjálfstæðismenn í borginni að taka hægribeygju og halla sér að stefnu íhaldssamrar ríkisstjórnar sem tapar vinsældum sínum hratt? Eða eiga þeir að sækja inn á miðjuna í borgarmálunum eins og flokkurinn gerði lengst af með góðum árangri? Festast breytt valdahlutföll í borgarstjórn í sessi? Miðjan í borginni Ólafur Þ. Stephensen olafur@frettabladid.is ➜ Tökum höndum saman. Við erum góð í því sem þjóð. Skjótum styrkum stoðum undir samfélagið sem hægt er að byggja á til fram- tíðar. Þegar einu verkefni er lokið tekur annað við. 90% afslát tur Allt a ð Yfir 3500 titlar RISAlagersala Forlagsins er á Fiskislóð 39 O p i ð a l l a d a g a k l . 1 0 – 1 9 FJÖLDI ANNARRA TILBOÐA Rætni Umfjöllun DV um fjármál knatt- spyrnukappans Eiðs Smára Guðjohn- sen í vikunni hefur sætt gagnrýni úr ýmsum áttum. Blaðamaðurinn Ómar R. Valdimarsson sagði hana meðal annars með því rætnara sem birst hefði í íslenskum fjölmiðli og til þess var vitnað á Kaffistofu Pressunnar. Karl Th. Birgisson greip hins vegar til varna fyrir DV– sagði fréttina fullkom- lega réttmæta. En við skulum ekki gleyma að það hafa fleiri réttlætt frétta- flutning af þessu tagi. Til dæmis Hæstiréttur Íslands, sem hefur þegar tekið afstöðu til þess hvort fjalla megi um fjármál Eiðs Smára. Dæmigert ferli Lítum á hvað Hæstiréttur sagði um málið í nóvember 2011: „Sú umfjöllun sem [Eiður] telur að gangi nær friðhelgi einkalífs síns en hann verði að þola varðar þó lántökur hans á háum fjárhæðum hjá íslensku við- skiptabönkunum eða dótturfélögum þeirra, fjárfestingu í áhættusömum verkefnum sem ekki skiluðu tilætl- uðum árangri og glímu hans eftir það við að endurgreiða lánin. Er þetta dæmigert ferli um afleiðingar útlánastefnu íslenskra við- skiptabanka og áhættusækni íslenskra fjárfesta, sem kann að hafa átt þátt í því hvernig fór. Við þessar aðstæður getur skerðing á frelsi fjölmiðla til að fjalla um þessi fjárhags- málefni [Eiðs] ekki talist nauðsynleg í lýðræðisþjóðfélagi.“ Ekki brot Og enn fremur: „Launamál þekktra atvinnuknattspyrnumanna, sem ganga kaupum og sölum milli félagsliða, eru reglulega til umfjöll- unar í fjölmiðlum og tengjast með þeim hætti því starfi sem [Eiður] er þjóðþekktur fyrir, þannig að umfjöllun um þau á þann hátt sem gert var í fyrrnefndum greinum getur ekki talist brot á friðhelgi einkalífs hans.“ Sem sagt: Æðsti dómstóll landsins telur fullkomlega eðlilegt að fjallað sé um fjárhagsvandræði Eiðs Smára Guðjohnsen. Það er mikilvægt að muna það þegar gagnrýni á slíka umfjöllun er lesin. stigur@frettabladid.is

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.