Fréttablaðið - 25.09.2013, Page 24

Fréttablaðið - 25.09.2013, Page 24
FÓLK|| FÓ K | FERÐIR4 London er rigningasöm borg og því hafa fjöl-mörg hótel lánað gestum sínum regnhlífar þegar gerir dembu. Maybourne-hótelkeðjan, sem rekur nokkur hótel í dýrari kantinum í borginni, ákvað að gera enn betur. Nú geta gestir hótelanna fengið lánaða Burberry-rykfrakka sem að mörgu leyti þykja einkennismerki þess sem breskt er. Lánið er endurgjaldslaust en þeir gestir sem vilja festa kaup á frakkanum að notkun lokinni þurfa að hrista fram úr frakkaerminni um 180 þúsund krónur. Slíkir hönnunarfrakkar eru ekki það eina sem má fá lánað í lúxushótelum eins og greint er frá á ferða- vefnum Gadling. Þeir sem dvelja á Four Seasons- hótelinu í Beverly Hills þurfa ekki að hafa áhyggjur af því að leigja frumpulegan bílaleigubíl. Hótelið býður gestum sínum að fá lánaða bíla. Það eina sem þeir þurfa að gera er að ákveða hvort þeir vilji leggja í hann á Porsche, Lamborghini, Rolls Royce, Ferrari, Cadillac, Mercedes Benz eða Bentley. Fyrr á þessu ári kynnti hótelið Burj Al Arab í Dúbaí að gestir þess fengju að leika sér með iPad á meðan þeir dveldu á hótelinu. Þeir sem þekkja til hótelsins verða ekki hissa á því að spjaldtölvurnar eru ekki þær sömu og fást út úr búð. Spjöldin sem standa gestum hótelsins til boða eru slegin 24 karata gulli. Á Loews Santa Monica-hótelinu í Bandaríkjunum þurfa gestir ekki að bera með sér fylgihluti í far- angrinum. Ástæðan er sú að verslunin Fred Segal er með lítið útibú í hótelinu þar sem gestir mega fá lánaða fokdýra fylgihluti á borð við veski, hálsmen og sólgleraugu. LÚXUS AÐ LÁNI Á FERÐALAGI Sum hótel bjóða gestum sínum að fá hluti að láni meðan á dvöl þeirra stendur, til dæmis Burberry-kápur, glæsibifreiðar og fylgihluti. GLÆSILEIKI Fólk sem gistir á dýrum hótelum víða um heim fær ýmis fríðindi í staðinn. Fáðu þér áskrift 512 5100 stod2.is BIKARSLAGUR Í KVÖLD KL. 18:35 Erkifjendur sjá rautt á Old Trafford Þá er komið að risaleik í enska deildabikarnum þegar Manchester United fá Liverpool í heim- sókn. Spennan er í hámarki, sjálfur Suárez er mættur eftir 10 leikja bann og er hungraðri en nokkru sinni fyrr. Gummi Ben er lentur í Manchester og lýsir leiknum beint frá Old Trafford í kvöld. Ekki missa af þessum toppleik! ENSKI BOLTINN, NET OG HEIMASÍMI Á 8.990 KR.Gegn 3 mánaða samningi Í BEINNI Á STÖÐ 2 SPORT OG STÖÐ 2 SPORT 2 Við Tate Modern-safnið í Southwark í Lundúnum stendur afar sér- kennilegur stigi. Hann er samansettur úr 15 viðarstigum sem mynda svimandi völundarhús. Innsetningin ber heitið Endless Stair, eða stiginn endalausi, og er hluti af hönnunarhátíðinni London Design Festival 2013. Innblásturinn að verkinu fékk arkitektinn Alex De Rijke frá teikningu hollenska grafíklistamannsins M.C. Escher sem margir kannast við. Heildarlengd stigans er 436 metrar, sem er 4,5 sinnum lengri en hæð Big Ben-turnsins. Hann er búinn til úr sérstökum viði sem kallast túlípanviður. Viðurinn er sérlega sterkur, sem gerir það að verkum að stiginn, sem virðist nánast hanga í lausu lofti, getur með góðu borið allt að 93 manns í einu. Þeir sem eiga leið um London á næstunni geta klifið hin 187 þrep stigans en innsetningin er opin frá morgni til kvölds alla daga fram til 10. október. HIMNASTIGI Í LONDON London Design Festival stendur yfir. Þar má ganga endalausan stiga við Tate Modern-safnið. SÉRSTAKUR STIGI Endless Stair kallast þessi innsetning á hönnunarhátíðinni London Design Festival. NORDICPHOTOS/GETTY

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.