Fréttablaðið - 25.09.2013, Side 31

Fréttablaðið - 25.09.2013, Side 31
SSANDI TTIR Collette leikur dr. Ellen Sanders, virtan skurðlækni sem er að undirbúa aðgerð á forseta Bandaríkjanna þegar grímuklæddir menn ráðast til atlögu á heimili hennar og taka fjölskylduna í gíslingu. Þeir vilja að hún drepi forsetann í aðgerðinni og hóta að myrða alla fjölskylduna ef hún verður ekki að kröfu þeirra. Spennan magnast með hverjum þætti og engum er treystandi. Það er Dylan McDermott sem leikur alríkislögreglumanninn Duncan Carlisle sem fer fyrir hópnum sem vill forsetan feigan. Hostages eru 15 þættir og hver þáttur gerist á einum degi. Dr. Ellen Sanders hefur því 15 daga til að bjarga fjölskyldu sinni. „Þetta er allt öðruvísi en öll önnur hlutverk sem ég hef fengist við,“ segir Collette, sem var tilnefnd til Óskarsverðlauna fyrir leik sinn í myndinni The Sixth Sense. „Ellen er mjög heiðarleg kona og góð móðir, auk þess að vera snjall skurðlæknir. Síðan lendir hún í þessum ótrúlegu aðstæðum og það ýtir henni fram á brúnina. Hún kemst að því hver hún er í raun og veru og hvað hún er fær um að gera.“ Collette segir að þetta sé fullkomið hlutverk fyrir sig og þátt- urinn bjóði upp á marga möguleika. „Enginn er eins og hann sýnist vera og það var eitt af því sem heillaði mig mest. Allar persónurnar eru bæði eðlilegar og margslungnar,“ segir Collette. ENGUM ER TREYSTANDI Toni Collette leikur aðalhlutverkið í spennuþáttaröðinni Hostages sem hefur göngu sína á Stöð 2 á mánudagskvöld. HOSTAGES Kl. 21.20 mánudag James Spader er trúlofaður hinni íslensk-ætt- uðu Leslie Stefanson. Hún er fyrrverandi fyrir- sæta og leikkona sem vakti fyrst athygli þegar hún lék stórt hlutverk í spennumyndinni The General‘s Daughter árið 1999, en þar lék hún á móti John Travolta. Hún lék einnig í stór- myndinni Unbreakable með Bruce Willis árið 2000 og The Hunted með Tommy Lee Jones og Benicio Del Toro árið 2003. Leslie kynntist Spader þegar þau léku sam- an í myndinni The Stickup árið 2002 og ástin blómstraði. Þau eignuðust sitt fyrsta barn fyrir fi mm árum og Leslie er núna hætt í leik- listinni. Hún hefur þó ekki alveg sagt skilið við lista lífi ð því núna hannar hún erótískar brons- styttur sem vakið hafa talsverða athygli. Hægt er að skoða verk hennar á vefsíðunni www.lesliestefanson.com. Spader þarf ekki að leita langt eftir ráð- leggingum um bandarísku alríkislögregluna, FBI. Tengdafaðir hans, Randolph Stefanson, starfaði fyrir FBI á árunum 1963 til 1967 bæði í Phoenix og Los Angeles. Hann hefur síðan starfrækt lögfræðistofu í heimabæ sínum, Moorhead í Minnesota. Foreldrar hans, Skúli Stefanson og Effi e Einarsson, voru Vestur-Ís- lendingar en sjálfur hefur hann aldrei komið til Íslands. UNNUSTAN ER ÆTTUÐ FRÁ ÍSLANDI

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.