Fréttablaðið - 25.09.2013, Page 32
8 MIÐVIKUDAGUR 25. september 2013
Miðviku-
dagur
Sherlock
Holmes:
A Game
of Sha-
dows
Fimmtudagur
Rock of Ages
Föstudagur
Blitz
Laugardagur
After.life
Sunnudagur
Contraband
Mánu-
dagur
Water
for Ele-
phants
Þriðjudagur
Red
Sannkallaður stórleikur fer
fram í enska deildarbikarnum í
dag. Þá mætast erkifjendurnir
og stórveldin tvö, Liverpool og
Man chester United, á heimavelli
þeirra síðarnefndu á Old Trafford.
Leikurinn verður í beinni útsend-
ingu á bæði Stöð 2 Sport og Stöð 2
Sport 2 í leiftrandi háskerpu.
Útsending hefst kl. 18.35 en
leikurinn kl. 18.45. Guðmundur
Benediktsson, íþróttafrétta maður
á Stöð 2 Sport, verður í Man-
chester og lýsir leiknum. „Það
er svolítið síðan fyrstu leikirnir
fóru fram í keppninni en í þessari
umferð mæta liðin sem urðu í sex
efstu sætum úrvalsdeildarinnar
í fyrra og þá fengum við þennan
draumaleik. Það skiptir ekki máli
hvenær þessi lið mætast, áhorf-
endur geta alltaf búist við hörku-
leik enda svakalegur rígur á milli
þessara stórliða.“
Misjafnt er hversu mikla
áherslu stórliðin leggja á enska
deildarbikarinn en Guðmundur
hefur litlar áhyggjur af því. „Það
kæmi mér ekki á óvart að sjá
bæði liðin stilla upp sínu sterk-
asta liði. David Moyes, hinn nýi
knattspyrnustjóri United, er undir
mikilli pressu eftir slaka byrjun
liðsins í vetur og Liverpool hefur
unnið fáa titla undanfarin ár.“
Leikurinn gæti auk þess verið
sá fyrsti sem Úrúgvæinn litríki
Suárez spilar á leiktíðinni fyrir
Liverpool en hann lauk nýlega
tíu leikja banni. Auk þess að lýsa
leiknum í beinni útsendingu mun
Guðmundur hitta leikmenn og
jafnvel þjálfara eftir leikinn. „Við
vitum aldrei fyrir fram hverja
við fáum að hitta enda skiptir
það ekki öllu máli, þetta eru tvö
stjörnum prýdd lið þannig að ég
get lofað góðum viðtölum.“
„Við bjóðum 35 prósent afslátt
af öllum mat og drykk á mat-
seðlinum okkar milli klukkan 11
og 16 mánudaga, þriðjudaga og
miðvikudaga. Það er því hægt að
gera mjög vel við sig. Matseðill-
inn er veglegur svo allir ættu að
finna eitthvað sem þeim líkar. Ef
fleiri en sex ætla að borða er gott
að hringja á undan og þá tökum
við frá borð,“ segir Guðmundur
Finnbogason, einn fjögurra eig-
enda Vegamóta. Staðurinn hefur
löngu fest sig í sessi í veitinga-
staða flóru borgarinnar en er nú
með breyttu sniði.
„Nú erum við eingöngu veit-
ingastaður en við lokuðum nýlega
skemmtistaðnum Vegamót,“
segir Guðmundur. „Þetta gengur
frábærlega vel og hér er fullt í
mat fram að miðnætti. Við erum
líka búin að lengja opnunartím-
ann í eldhúsinu hjá okkur. Nú er
eldhúsið opið frá sunnudegi til
miðvikudags fram til klukkan
23, á fimmtudögum til klukkan
23.30 og á föstudögum og laugar-
dögum til klukkan 24. Fólk getur
svo setið í rólegheitum og klárað
matinn, fengið sér desert og kok-
teil en við erum einnig nýbúin að
stækka kokteilaseðilinn okkar.“
VEGAMÓT Í STÖÐ 2 VILD
Nú býðst áskrifendum Stöðvar 2 sem skráðir eru í Stöð 2 Vild
35 prósenta afsláttur af öllum mat og drykk á Vegamótum.
Guðmundur Finnbogason, einn eigenda Vegamóta, býður áskrifendum Stöðvar 2 í Stöð 2 Vild góðan afslátt af mat og
drykk. MYND/VILHELM
10 BÍÓ Á
STÖÐ 2 BÍÓ
TOPPMYNDIR
Kl. 22.00 alla daga
MYND HELGARINNAR
SNOW WHITE AND THE HUNTSMAN
Laugardag kl. 21.25
Stórbrotin ævintýramynd frá 2012 með Charlize
Theron, Kristen Stewart og Chris Hemsworth í aðal-
hlutverkum. Hér er á ferðinni skemmtileg útfærsla á
klassískri sögu Grimm-bræðra um illkvittna drottn-
ingu sem hatar fagra stjúpdóttur sína. Hún sendir
veiðimann með Mjallhvíti út í skóg til að drepa hana
en í þessari útgáfu verður veiðimaðurinn bjarg vættur
hennar og hjálpar henni í baráttunni við hina illu
drottningu.
DRAUMALEIKUR
UMFERÐARINNAR