Fréttablaðið


Fréttablaðið - 25.09.2013, Qupperneq 46

Fréttablaðið - 25.09.2013, Qupperneq 46
25. september 2013 MIÐVIKUDAGUR| MENNING | 22 Sirkus Íslands hefur hafið leit að trúðum, hljóðfæraleikurum, liðugu fólki, sterku fólki, söngvurum og alls konar hæfileikafólki fyrir fullorðinssýningar sínar. Áheyrnarprufa fer fram í bakherbergi Harlem 10. október og eru áhugasamir hvattir til að sækja um fyrir miðnætti 30. september. „Þarna verða áhorfendur líka og ég vil hvetja fólk til að mæta, klappa, hlæja og missa andlitið,“ segir Margrét Erla Maack, fullorðins sirkusstjóri. Hún hvetur fólk með sérstæða hæfileika til að mæta í prufuna. „Okkur vantar búktal- ara, sverðgleypi, skeggjaðar konur og fólk sem getur spilað á hljóðfæri og gert annað á meðan. Þeir sem heilla okkur fá að vera með okkur.“ Fullorðinssirkusinn kallast Skinnsemi þar sem gjarnan er sýnt smá skinn en alltaf innan skynsemismarka. Aldurstakmark áhorfenda og skemmtikrafta er tuttugu ár því hópurinn kemur oftast koma fram á vín- veitingastöðum. -fb Leita að trúðum og sterku fólki í sirkus Sirkus Íslands heldur áheyrnarprufu. Trúðar, búktalarar og sverðgleypar eru hvattir til að taka þátt. SIRKUS ÍSLANDS Sirkus Íslands heldur áheyrnarprufu fyrir fullorðinssýningar sínar. Leikarinn Jeff Daniels hefur lofað aðdáendum gamanmynd- arinnar Dumb and Dumber að framhaldið, Dumb and Dumber 2, verði ansi hressilegt. Í viðtali við E! Online, eftir að hann tók á móti Emmy-verðlaun- unum fyrir hlutverk sitt í The Newsroom, sagði Daniels að hann væri á leið í tökur á framhaldinu í borginni Atlanta. „Þetta verður eiginlega frjálst fall á gáfnafari, frá Will McAvoy (í The News- room) yfir í Harry Dunn. Þarna verða atriði sem láta klósett- senuna í fyrstu myndinni líta út fyrir að vera glötuð. Hún fölnar í samanburðinum,“ sagði hann. Framhaldið hressilegt JEFF DANIELS Jeff Daniels lofar því að Dumb and Dumber 2 verði skemmtileg. Miley Cyrus segist vera hálf- gerður strípalingur. Hún prýðir forsíðu tímaritsins Rolling Stone, þar sem hún rekur út úr sér tunguna og virðist vera nakin. Í blaðinu ræðir Cyrus um atburð- inn umdeilda sem átti sér stað á MTV-tónlistarhátíðinni, þar sem hún viðurkennir að hafa gengið örlítið lengra en hún ætlaði sér í atriðinu með Robin Thicke. Hún segir jafnframt að henni finnist skrítið að lítil sem engin umræða hafi átt sér stað varð- andi hegðun Thicke. „Það talar enginn um manninn sem stendur þarna við rassinn á mér. Það er bara rætt um þann sem beygir sig niður,“ segir Cyrus í viðtalinu. Nakin framan á Rolling Stone TJÁIR SIG Söngkonan Miley Cyrus situr fyrir nakin á forsíðu tímaritsins Rolling Stone. NORDICPHOTOS/GETTY Leikkonan Jennifer Love Hewitt viðurkennir að hana hafa lengi langað til þess að verða móður. Hewitt á von á sínu fyrsta barni sem er væntanlegt í heiminn í desember. Í viðtalið við tímaritið People, segir hún að hún sé yfir sig spennt að hitta frumburðinn. Hún bætti því að samband hennar við móður sína hefði alla tíð verið gott og það hafi átt mikinn þátt í því hversu heitt hún þráði að verða móðir. „Ég er tilbúin að gefa barninu mínu alla þá ást sem móðir mín gaf mér,“ segir hún. Hlakkar til að verða móðir SPENNT FYRIR MÓÐUR HLUT- VERKINU Jennifer Love Hewitt segir að hún hafi alla tíð þráð að verða móðir. Hún á von á sínu fyrsta barni í desember.

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.