Fréttablaðið - 25.09.2013, Blaðsíða 54
25. september 2013 MIÐVIKUDAGUR| MENNING | 30
BÓKIN
„Þegar Saga, dóttir mín, var
tveggja ára tók hún upp á því að
verða myrkfælin. Ég ákvað að
segja henni sögu til að minna hana
á að myrkrið væri ekkert hættu-
legt. Svo eltist myrkfælnin af Sögu
en mér þótti sagan falleg og skrif-
aði hana niður í þeim tilgangi að
gefa hana út. Ég hafði samband
við Lóu upp á að myndskreyta bók-
ina en svo fæddust nokkur börn,
Lóa fór í tónleikaferðalag og ég í
borgarstjórn og því varð ekkert úr
útgáfunni fyrr en nú,“ segir Eva
Einarsdóttir, borgarfulltrúi Besta
flokksins. Hún samdi barnabókina
Sögu um nótt, sem gefin verður út
af Bókabeitunni fyrir jól. Lista-
konan Lóa Hlín Hjálmtýsdóttir
myndskreytir bókina.
Eva segir myndir Lóu vera í
miklu uppáhaldi hjá sér. Því hafi
legið beinast við að biðja hana
um að myndskreyta bókina. „Með
hennar hjálp varð litla sagan mín
að glæsilegri bók,“ segir hún.
Lóa hefur vakið athygli í gegn-
um tíðina fyrir skrítnar og
skemmtilegar teikningar sínar.
Hún kom meðal annars að gerð
sjónvarpsþáttanna Hulla sem
sýndir eru í Sjónvarpinu um
þessar mundir.
„Myndirnar í bókinni eru mál-
aðar, ég var ekki með gamla túss-
pennann á lofti í þetta skiptið. Það
var gaman að spreyta sig á því að
teikna eitthvað fallegt til tilbreyt-
ingar og ekki vinna í hálfvitum
eins og vanalega,“ segir hún og
hlær. „Það fyndna er að þetta var
alltaf mitt markmið í lífinu, ég fór
í nám í Bandaríkjunum til að læra
myndskreytingar, en svo endaði ég
í hljómsveit.“
Lóa Hlín hefur áður gefið út
bókina Alhæft um þjóðir en Saga
um nótt er fyrsta bók Evu. „Þetta
er mjög nýtt og spennandi fyrir
mér. Myndirnar hennar Lóu eru
listaverk út af fyrir sig og þetta
verður því jólagjöfin í ár á mínu
heimili,“ segir Eva að lokum og
hlær. sara@frettabladid.is
Gefa út barnabók
Eva Einarsdóttir borgarfulltrúi og Lóa Hlín Hjálmtýsdóttir listakona gefa út
barnabókina Saga um nótt. Sagan var samin fyrir dóttur Evu, Sögu.
SEMJA BARNABÓK Eva Einarsdóttir borgarfulltrúi og Lóa Hlín Hjálmtýsdóttir listakona gefa út barnabókina Saga um nótt.
FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
„Ég hef verið að ferðast óvenju-
mikið síðustu vikur. Þetta vindur
alltaf meira og meira upp á sig,“
segir rithöfundurinn Eiríkur Örn
Norðdahl, sem hefur verið á bók-
menntaferðalagi erlendis síðan í
lok júlí.
Nýlega lauk hann vikudvöl
sinni í Brasilíu. Þar áður ferðaðist
hann til Svíþjóðar, Finnlands og
Póllands. „Þetta var mjög gaman.
Ég var aðallega í smábænum Tira-
dentes á tónlistar-, leiklistar- og
bókmenntahátíð sem heitir Artes
Vertentes. Þarna var nóg af grill-
mat, sætindum og cachaça,“ segir
Eiríkur Örn, spurður út í Brasilíu-
förina en cachaça er vinsælt
áfengi þar í landi.
Rithöfundurinn hefur verið að
vinna mikið með „performans“-
ljóðlist og hljóðaljóðlist og kemst
þess vegna upp með að lesa á
íslensku á bókmenntahátíðunum
þrátt fyrir að fólkið skilji ekki
tungumálið.
Eiríkur Örn er núna kominn til
Freiburg í Þýskalandi þar sem
hann tekur þátt í skandinavískri
hátíð. Að henni lokinni kemur
hann heim en fer svo aftur á flakk
um Wales, London, Kraká, Varsjá,
Ósló og Bonn, þar sem hann vinnur
með listamönnum sem kalla sig
Bonn Fringe Ensemble. - fb
Grillmatur og cachaça í Brasilíu
Rithöfundurinn Eiríkur Örn Norðdahl hefur verið á ferð og fl ugi síðustu mánuði.
Á FERÐ OG FLUGI Rithöfundurinn
Eiríkur Örn Norðdahl hefur verið á ferð
og flugi að undanförnu. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
„Ég er nýbúin að lesa Ástands-
barnið eftir Camillu Läckberg. Nú er
ný bók komin í staflann og er það
Sjálfstætt fólk eftir Halldór Laxness.
Mér finnst frábært að kafa ofan í
vel skrifuð bókmenntaverk en inn á
milli er fátt betra en góður krimmi
til að tæma hugann.“
Hulda D. Proppé, söngkona og háskólanemi
➜ Verðlaunabók Eiríks Arnar,
Illska, kemur út í Frakklandi,
Þýskalandi og Svíþjóð á næsta
ári. Ný ljóðabók hans, Hnefi
eða vitstola orð, kemur út hér-
lendis á næstunni.
„Ég er mjög spennt fyrir nýja starfinu. Sjónvarps-
miðill hefur alltaf heillað mig og mig hefur lengi
langað til þess að kynnast honum betur,“ segir fjöl-
miðlakonan Birta Björnsdóttir sem hefur hafið störf
í fréttaþættinum Ísland í dag á Stöð 2. Birta starf-
aði áður sem blaðamaður á Morgunblaðinu og á dag-
skrársviði 365 miðla.
Nýja hlutverkið leggst vel í hana. „Ég fæ þarna
tækifæri til þess að prófa spennandi miðil og fæ
strax að spreyta mig á fjölbreyttum verkefnum. Ég
viðurkenni að ég hef verið með smá hnút í maganum,
eins og eflaust alltaf þegar maður byrjar í nýrri
vinnu,“ segir Birta og bætir við að samstarfsfólk
hennar hafi verið henni afskaplega hjálplegt þessa
fyrstu daga.
Birta tekur nýja starfinu með mikilli auðmýkt og
kveðst lítið velta fyrir sér að hún verði tíður gestur á
skjánum á heimilum landsmanna. „Þetta er nú ekk-
ert merkilegri vinna en hver önnur. Ég sótti ekki um
starfið vegna sýnileikans. Mér finnst spennandi að fá
að segja sögur í sjónvarpinu og deila þeim með fólk-
inu í landinu,“ segir Birta glöð í bragði að lokum. - áo
Tekur nýja starfi nu með auðmýkt
Birta Björnsdóttir spreytir sig á skjánum. Hún er nýr meðlimur Ísland í dag.
SPENNANDI TÍMAR Birta Björnsdóttir er nýr meðlimur
frétta þáttarins Ísland í dag sem er sýndur á Stöð 2.
FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR
Save the Children á Íslandi
Opinn fræðslufundur
Í Odda HÍ stofu 101
Fimmtudaginn 26.september kl. 18-20
Fætur aldraðra
Dagskrá:
- Stoð - þrýsingssokkar
- Pezim - fyrirlestur
- Hlé - vörukynningar
- Stoð - innlegg og skór
- Guðbjörg Pálsdóttir séfræðingur
í hjúkrun - Bláæða og slagæðasár
Allir velkomnir
Fiskikóngurinn
Sogavegi 3 • www.fiskikongurinn.is