Fréttablaðið - 10.10.2013, Blaðsíða 6
10. október 2013 FIMMTUDAGUR| FRÉTTIR | 6
KVÖLDMATURINN Eftir að yfirvöld og
framleiðendur breyttu vinnulagi nær
smitað kjöt ekki til neytandans.
FRÉTTABLAÐIÐ/HARI
DÓMSMÁL Rannsakandi hjá Fjármálaeftir-
litinu fékk greiðslu frá eignarhaldsfélaginu
Aserta árið 2009, á sama tíma og forsvars-
menn þess eru ákærðir fyrir að hafa nýtt
félagið í meiriháttar brot á lögum um gjald-
eyrisviðskipti.
Þá hefur forstöðumanni gjaldeyriseftirlits
Seðlabanka Íslands, Ingibjörgu Guðbjarts-
dóttur, verið meinað að bera vitni í málinu.
Það eru þeir Gísli Reynisson, Karl Löve
Jóhannsson, Markús Máni Michaelsson og
Ólafur Sigmundsson sem eru ákærðir í mál-
inu, sem var þingfest í Héraðsdómi Reykja-
ness síðasta vor. Þeim er gefið að sök að hafa
í gegnum félagið Aserta stundað viðskipti
með gjaldeyri fyrir 14,3 milljarða íslenskra
króna árið 2009. Sjálfir eiga þeir að hafa
hagnast um hundruð milljóna króna saman-
lagt á viðskiptunum.
Með broti sínu eiga þeir að hafa haft alvar-
leg áhrif á gengi íslensku krónunnar og tafið
stýrivaxtalækkunarferli Seðlabanka Íslands.
Í úrskurði Hæstaréttar Íslands, sem birtist
á þriðjudaginn, kom fram að núverandi for-
stöðumanni gjaldeyriseftirlits Seðlabanka
Íslands, Ingibjörgu Guðbjartsdóttur, væri
ekki heimilt að bera vitni í málinu. Það var
hún sem tilkynnti um meint brot til Fjár-
málaeftirlitsins eftir að hún hóf störf hjá
Seðlabankanum. Ástæðan fyrir því að hún
má ekki bera vitni er fyrst og fremst vegna
þess að hún veitti fjórmenningunum ráðgjöf
um gjaldeyrisviðskipti í tengslum við Aserta
þegar hún starfaði fyrir Straum-Burðarás.
Í dómi Hæstaréttar segir að trúnaðar-
skylda hafi hvílt á Ingibjörgu þegar hún veitti
ráðgjöfina. Sjálf taldi hún að ráðgjöfin væri
ekki hluti af störfum hennar fyrir þá félaga,
heldur væri aðeins um vinargreiða að ræða.
Afleiðingar þessa eru meðal annars þær að
ákæruvaldinu er ekki heimilt að leggja fram
60 blaðsíður af gögnum í dómsmálinu.
Búist er við að fyrirtaka í málinu fari fram
innan skamms en þá munu lögfræðingar fjór-
menninganna leggja fram greinargerðir.
Samkvæmt heimildum Fréttablaðsins
verður kannað hvort rannsakandi Fjármála-
eftirlitsins hafi brotið gróflega gegn hlutlægn-
isskyldu rannsakenda með því að rannsaka
málið þrátt fyrir að hafa tekið við greiðslum
frá félaginu á sama tíma og meint lögbrot
áttu sér stað. Í dómi segir að hann hafi fengið
greitt fyrir að afla viðskipta fyrir félagið.
Í svari Fjármálaeftirlitsins vegna málsins
segir meðal annars: „Fjármálaeftirlitið getur
ekki tjáð sig um einstök mál. Almennt má þó
segja að þess er gætt að aðilar sem rannsaka
mál tengist þeim ekki og eru þeir spurðir út
í slíkar tengingar þegar þeir hefja störf hjá
stofnuninni og gert ráð fyrir að þeir upplýsi
um tengingar við einstök mál sem eru til með-
ferðar.“
Varðandi fyrirspurn Fréttablaðsins um það
hvort Fjármálaeftirlitið telji rannsakandann
vanhæfan, segir í svarinu: „[…] ekki [er] um að
ræða aðila sem á hluti í, er fyrirsvarsmaður
fyrir eða á að öðru leyti verulegra hagsmuna
að gæta er snerta aðilann.“ valur@frettabladid.is
ÞINGFESTING Frá þingfestingu í Héraðsdómi Reykjaness fyrir nokkrum mánuðum. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
Á ekki verulegra hagsmuna að gæta
Í svari Fjármálaeftirlitsins vegna málsins segir meðal annars: „Fjármálaeftirlitið getur ekki tjáð sig
um einstök mál. Almennt má þó segja að þess er gætt að aðilar sem rannsaka mál tengist þeim ekki
og eru þeir spurðir út í slíkar tengingar þegar þeir hefja störf hjá stofnuninni og gert ráð fyrir að þeir
upplýsi um tengingar við einstök mál sem eru til meðferðar.
Fjármálaeftirlitið bendir enn fremur á að eins og málavöxtum er lýst í dóminum sem þú vísar til er
ekki um að ræða aðila sem á hluti í, er fyrirsvarsmaður fyrir eða á að öðru leyti verulegra hagsmuna
að gæta er snerta aðilann.“
1. Hve mikið þarf Valitor að greiða í
sekt vegna samkeppnislagabrota?
2. Hversu mörg fyrirtæki tilheyra Ís-
lenska sjávarklasanum?
3. Hver verður að öllum líkindum
næsti landsliðsþjálfari Dana í hand-
bolta?
SVÖR:
1. 500 milljónir króna.
2. 56 fyrirtæki.
3. Guðmundur Þ. Guðmundsson.
SVEITARSTJÓRNARMÁL Skíðafé-
lagið í Stafdal hefur sent Fljóts-
dalshéraði uppsögn á samningi
um rekstur skíðasvæðisins í
Stafdal.
Bæjarráð Fljótsdalshéraðs
hefur sagt að í uppsagnarbréf-
inu komi fram allmargar rang-
færslur um fyrri samskipti aðila
og ákvæði gildandi samnings.
Samningurinn hafi verið efnd-
ur að fullu af hálfu Fljótsdals-
héraðs. Sagðist bæjarráðið vilja
gera nýjan samning um rekst-
ur skíðasvæðisins og nú hefur
menningar- og íþróttanefnd falið
formanni sínum að vinna að mál-
inu með fulltrúum Seyðisfjarðar-
kaupstaðar og SKÍS. - gar
Uppsögn á rekstri í Stafdal:
Starfi saman
á skíðasvæðinu
HAFNARFJÖRÐUR
Snjóbrettamót í miðbæ
Bæjaryfirvöld í Hafnarfirði velta nú
fyrir sér umsókn Aðalsteins Valdimars-
sonar sem vill fá að halda snjóbretta-
mót í miðbæ Hafnarfjarðar.
VEISTU SVARIÐ?
NEYTENDUR Ferskur kjúklingur
á neytendamarkaði kom afar
vel út í rannsókn á salmonellu-
og kamfýlóbaktermengun. Öll
sýnin, 537 að tölu, reyndust nei-
kvæð.
Þetta er niðurstaða umfangs-
mikillar rannsóknar á tíðni
örverumengunar í kjúklinga-
kjöti á vegum Matís.
Forsendur rannsóknarinnar
voru að Ísland hefur tekið upp
meginhluta af matvælareglum
og matvælalöggjöf ESB. Því er
ljóst að innflutningur á fersk-
um kjötafurðum til Íslands gæti
orðið að veruleika. Hingað til
hafa stjórnvöld lagt algert bann
við slíkum innflutningi. Því var
talin þörf á öflun gagna til að
meta stöðuna á öryggi íslenskra
ferskafurða á markaði með til-
liti til örverumengunar. Í heild-
ina voru 537 sýni tekin yfir 12
mánaða tímabil frá maí 2012 til
apríl 2013 frá þremur stærstu
framleiðendum landsins. Öll
sýnin í rannsókninni reyndust
neikvæð bæði fyrir salmonellu
og kamfýlóbakter.
„Því er ljóst að staða þessara
mála er mjög góð hér á landi og
jafngóð eða betri en gengur og
gerist í öðrum ríkjum,“ segir í
niðurstöðum rannsóknarinnar.
Gögn Matvælastofnunar sýna
að tíðni salmonellu er samt yfir
einu prósenti hér á landi þegar
öll stig framleiðslunnar eru
skoðuð, það er einnig eldi og
slátrun.
- shá
Ekkert dæmi fannst um salmonellu eða kamfýlóbakter í ferskum kjúklingi í neytendaumbúðum:
Kjúklingur á markaði mjög örugg vara
SVEITARSTJÓRNIR Bæjarráð
Árborgar skorar á Íbúðalánasjóð
að koma húsnæði, sem er í eigu
sjóðsins og stendur autt, tafar-
laust í íbúðarhæft ástand og í
útleigu. Vaxandi eftirspurn sé
eftir húsnæði í Árborg og stefni
í óefni hjá fjölda fólks.
„Færa má rök fyrir því að á
annað hundrað fjölskyldur og
einstaklingar séu nú í þörf fyrir
leiguhúsnæði,“ segir bæjarráðið
sem kveður þverpólitískan vilja
hjá þingmönnum Suðurkjör-
dæmis til þess að koma húsnæði
Íbúðalánasjóðs í útleigu. - gar
Áskorun á Íbúðalánasjóð:
Leigi íbúðir út
sem allra fyrst
Rannsakandi fékk greitt frá
félagi sem hann rannsakaði
Rannsakandi Fjármálaeftirlitsins fékk greitt fyrir að afla viðskipta fyrir Aserta. Forstöðumaður gjaldeyriseftir-
lits Seðlabanka Íslands fær ekki að bera vitni þar sem hann veitti sakborningum ráðgjöf um gjaldeyrisviðskipti.