Fréttablaðið - 10.10.2013, Side 26
10. október 2013 FIMMTUDAGUR| FRÉTTIR | 26
FRÉTTASKÝRING
Hvernig verður vinnustaður fram-
tíðarinnar?
VINNUMARKAÐUR „Vinnustaður
framtíðarinnar verður verkefna-
drifinn og honum mætti frekar líkja
við flugstöð en skrifstofubyggingu,“
segir Sturla Jóhann Hreinsson,
starfsmannastjóri Landsvirkjun-
ar. Hann og aðrir félagar úr Flóru,
félagi mannauðsstjóra, standa í dag
fyrir ráðstefnu í Hörpu sem fjallar
um vinnustað framtíðarinnar út frá
ýmsum hliðum.
„Í framtíðinni mun starfsfólk
fyrirtækja ferðast inn í fjölbreytt
hópastarf, bæði innan hvers fyrir-
tækis og utan þess, og sinna smærri
og stærri verkefnum. Verkefnin
verða þá í flestum tilvikum tíma-
bundin og þegar kemur að næsta
verkefni verður ekki endilega sami
farþegalisti,“ segir Sturla og heldur
sig við flugstöðvarlíkinguna.
Á ráðstefnunni í dag koma saman
innlendir og erlendir fyrirlesarar í
þeim tilgangi að draga upp mynd af
því hvernig hinn hefðbundni vinnu-
staður gæti litið út árið 2020. Þar
verður að sögn Sturlu leitast við
að svara spurningum eins og þeim
hvernig byggingarlist geti stutt við
mótun fyrirtækjamenningar og
hvernig tæknin eigi eftir að breyta
vinnuumhverfi fyrirtækja.
„Tölvur og ýmis hugbúnaður eru
þegar farin að ráða við einfaldari
verkefni sem fólk sinnti áður og af
þeim sökum eru þau verkefni sem
eftir sitja oft meira krefjandi,“
segir Sturla.
Hann nefnir í því sambandi að
hann telji að á næstu árum verði
gerðar meiri kröfur um félagslega
færni og aukna getu starfsfólks
til að vinna úr miklu upplýsinga-
magni.
„Starfsfólk fyrirtækja þarf að
geta ráðið við aukið streituálag í
umhverfi sem þessu. Stærri fyrir-
tæki munu að öllum líkindum skera
hefðbundna starfsemi sína niður
en á sama tíma nýta sér þjónustu
smærri og sérhæfðari fyrirtækja,“
segir Sturla.
„Það er fróðlegt að velta þessu
fyrir sér því það er ekki langt í árið
2020 og tímabært fyrir þá sem eru
að vinna með fólk í fyrirtækjum
að huga að því sem er handan við
hornið. Komandi ár munu án efa
gera nýjar kröfur til stjórnenda
jafnt sem starfsfólks og því er
skemmtilegt að hugleiða hver þró-
unin gæti orðið,“ segir Sturla.
haraldur@frettabladid.is
Segir vinnustaðinn verða líkari
flugstöð en skrifstofubyggingu
Einn skipuleggjenda ráðstefnu um vinnustað framtíðarinnar spáir miklum breytingum á vinnuumhverfi
stjórnenda og starfsfólks fyrirtækja á komandi árum. Hann segir streituálag og kröfur eiga eftir að aukast.
LÍKT OG Í
FLUGSTÖÐ
Sturla Jóhann
líkir vinnustað
framtíðarinnar
við flugstöð
þar sem starfs-
fólk fyrirtækja
ferðast inn
í fjölbreytt
hópastarf.
FRÉTTABLAÐIÐ/
ÞORGILS
7. – 11. 2. 2014
Á Ambiente má sjá allan heiminn. Þar má sjá
möguleikana, tækifærin og alþjóðlega strauma
og stefnur kynnt af fl eiri en 4.700 sýningaraðilum.
Þar má fi nna fjöldan allan af hugmyndum, líta má
til nýrra tíma, til framtíðar.
Hvenær sjáum við þig á sýningunni?
Upplýsingar og aðgöngumiðar á forsöluverði á
ambiente.messefrankfurt.com
dimex@dimex.dk
Sími: +45 39 40 11 22
the show
Ambiente 201
4
Samstarfsland
Lítil og meðalstór fyrirtæki hér
á landi telja að skattkerfið og hár
fjármagnskostnaður séu helstu
hindranirnar fyrir vexti þeirra
á næstu árum. Þar á eftir kemur
skortur á fjármagni og hæfu
starfsfólki, ásamt gjaldeyrishöft-
um, reglubyrði og lítilli eftirspurn
á markaði.
Þetta kemur fram í nýrri könn-
un sem gerð var vegna Smáþings
2013 sem fram fer í dag. Þar verð-
ur meðal annars stofnaður nýr
vettvangur fyrir lítil og meðalstór
fyrirtæki undir merkjum Litla
Íslands. - hg
Könnun vegna Smáþings:
Skattkerfið sagt
takmarka vöxt
Bjarni Benediktsson, fjármála-
og efnahagsráðherra, fer ásamt
sendinefnd fjár-
málaráðuneyt-
isins á ársfund
Alþjóðagjald-
eyrissjóðs-
ins (AGS) og
Alþjóðabank-
ans. Fundurinn
verður haldinn
í Washington í
Bandaríkjunum
dagana 11.-13. október.
Í tilkynningu á heimasíðu fjár-
málaráðuneytisins segir að fund-
urinn fjalli um stöðu og þróun
efnahagsmála á heimsvísu og að
íslenska sendinefndin ætli meðal
annars að funda með starfsfólki
AGS. - hg
Ráðherra fer til Washington:
Bjarni verður á
ársfundi AGS
BJARNI
BENEDIKTSSON
Hlutabréfavísitölur í Bandaríkj-
unum hækkuðu í gær þegar fjöl-
miðlar greindu frá því að Barack
Obama, forseti Bandaríkjanna,
ætlaði að tilnefna Janet L. Yellen
sem næsta seðlabankastjóra lands-
ins.
Dow Jones-vísitalan hækkaði í
gær um 0,4 prósent og Standard &
Poor’s um 0,2 prósent.
Yellen, sem er 67 ára og hefur
setið sem aðstoðarseðlabanka-
stjóri frá árinu 2010, verður fyrst
kvenna til að gegna stöðu seðla-
bankastjóra í hundrað ára sögu
bankans. Hún tekur við af Ben
Bernanke, sem hefur stýrt bank-
anum frá árinu 2005 og mun láta
af störfum í lok janúar á næsta ári.
Lengi var talið að Larry Summ-
ers, fyrrverandi fjármálaráðherra
Bandaríkjanna og efnahagsráð-
gjafi Baracks Obama, yrði eftir-
maður Bernankes. Hann tilkynnti
í sumar að hann ætlaði ekki að
sækjast eftir embættinu.
Yellen kemur frá Brooklyn í
New York og stýrði áður útibúi
seðlabankans í San Francisco.
Hún er menntaður hagfræðingur
og hefur meðal annars kennt við
Harvard-háskóla og London School
of Economics.
Jón Daníelsson, hagfræðingur
við London School of Economics,
segir að verði Yellen tilnefnd sé
það vegna þess að henni sé treyst
til að fylgja eftir stefnu Banda-
ríkjastjórnar um að auka reglu-
verk og draga úr hættu á fjármála-
mörkuðum.
„Hún er fulltrúi þeirra sjónar-
miða í bandaríska stjórnkerfinu,“
segir Jón. haraldur@frettabladid.is
Markaðir trúa
á Janet Yellen
Barack Obama, forseti Bandaríkjanna, tilnefndi í gær
Janet Yellen sem næsta seðlabankastjóra. Tíðindin
höfðu jákvæð áhrif á markaði vestanhafs.
TALIN ÁLITLEGUR KOSTUR Janet Yellen verður að öllum líkindum næsti seðla-
bankastjóri Bandaríkjanna. NORDICPHOTOS/AFP
Tölvur og
ýmis hugbún-
aður eru þegar
farin að ráða
við einfaldari
verkefni sem
fólk sinnti
áður og af þeim sökum eru
þau verkefni sem eftir sitja
oft meira krefjandi.
Sturla Jóhann Hreinsson