Fréttablaðið - 10.10.2013, Blaðsíða 51
FIMMTUDAGUR 10. OKTÓBER 2013 7Gengur vel ●
Þrjár af hverjum fjórum konum upplifa einhver óþægindi við tíða-
hvörf. Breytingaraldurinn er í raun frábært aldursskeið þar sem
andlegur þroski konunnar er í blóma en því fylgja oft kvillar eins
og hita- og svitakóf, geðbreytingar, leiði og orkuleysi.
Chello er náttúrulegt efni sem hjálpað hefur fjölda kvenna með
þessa kvilla. Efnið jafnar sveiflurnar og slær þannig á hitakóf-
in. Það eru engir hormónar í þessum töflum og Chello er eitt af
fáum efnum sem skandinavísk læknablöð og kvensjúkdómalækn-
ar hafa mælt með fyrir konur á breytingaskeiðinu. Chello er fram-
leitt í Danmörku og er þekktasta og vinsælasta efnið fyrir konur á
breytingaskeiði þar í landi og í Noregi. Þrjár tegundir af Chello eru
í boði.
Chello Classic er gott við mildum einkennum af svita og hitakófi.
ChelloForte er ætlað konum yfir fimmtugt og er gott við miklu
svita- og hitakófi.
Chello Forte +D-vítamín er gott fyrir konur undir fimmtugu. Það
slær á mikil hita- og svitakóf.
Hægt er að fræðast frekar um Chello á www.gengurvel.is.
Hita -og svitakóf
við tíðahvörf–
Hvað er til ráða? Halldór R. Magnússon, eig andi HM-flutninga ehf., vinnur við
alhliða vörudreifingu og
flutningsþjónustu og keyrir því
bíl stóran hluta vinnu dagsins.
Tíðar ferðir á klósettið,
næturbrölt og slappari
þvagbuna gerðu honum lífið
leitt þar til hann prófaði
ProStaminus, náttúrulegt
bætiefni sem er sérstaklega
hannað fyrir karlmenn með
vandamál tengd þvagbunu og
stækkuðum blöðruhálskirtli.
ÞVAGBUNAN VAR ORÐIN SLÖPP
„Þvagbunan var farin að slappast
og ég þurfti oft að pissa á næturn-
ar. Á daginn var orðið afar þreyt-
andi að þurfa sífellt að fara á kló-
settið og svo þegar maður loks-
ins komst á klósettið kom lítið sem
ekkert!“ segir Halldór og bætir við
að margir karlmenn sem vinna við
akstur kannist við það vandamál að
komast ekki alltaf á klósettið þegar
kallið kemur og
vinna þar að auki oft
óreglulegan vinnu-
tíma og að þetta
tvennt saman kalli
á vandamál tengd
þvaglátum. „Ég var
allavega orðinn það
þreyttur á þessu
að mér fannst ég
verða að leita leiða
til að bæta ástand-
ið og datt þá niður
á ProStaminus sem
ég hef tekið í u.þ.b.
hálft ár með frábærum árangri,“
segir Halldór. ProStaminus er nátt-
úrulegt efni og megininnhaldsefnin
eru hörfræjaþykkni, graskersfræja-
þykkni, granateplaþykkni, sink,
selen, D- og E- vítamín. „Ég tek eina
töflu á morgnana og aðra á kvöld-
in og finn að ég þarf
sjaldnar að pissa á
næturnar. Bunan er
orðin miklu betri og
klósettferðirnar á
daginn eru færri og
áhrifaríkari,“ segir
Halldór kíminn og
léttur í lundu.
Tíð þvaglát trufluðu
vinnuna, svefninn
og áhugamálin
Yfir 70% notenda
ProStaminus finna
fyrir jákvæðum
breytingum strax
fyrsta mánuðinn.
Halldór Rúnar
Magnússon,
eigandi HM
flutninga
(hmflutningar@
hmflutningar.is),
er ánægður með
ProStaminus.
Á hverju ári hefur Gengur vel styrkt vel
valið málefni fyrir jólin. Að þessu sinni
var ákveðið að styrkja endur hæfingar-
og stuðnings miðstöðina Ljósið um eina
milljón króna í minningu Sirrýjar H.
Collington sem lést úr krabbameini í
Banda ríkjunum í febrúar síðast liðnum.
Okkur er það hugleikið að krabba-meinsveikir og aðstandendur þeirra fái góða umönnun og ráðgjöf
og gleður það okkur sannarlega að láta
Ljósinu eftir þennan styrk til góðra verka.
„Ljósið er endurhæfingar- og stuðnings-
miðstöð fyrir fólk sem fengið hefur
krabbamein og aðstandendur þess. Mark-
miðið er að fólk fái sérhæfða endurhæf-
ingu og stuðning, þar sem fagfólk aðstoð-
ar við að byggja upp líkamlegt og andlegt
þrek og lífsgæðin almennt,“ segja Erna
Magnús dóttir, iðjuþjálfi B.Sc. og forstöðu-
kona Ljóssins, og Berglind Kristinsdóttir,
iðjuþjálfi B.Sc., sem starfað hefur hjá Ljós-
inu um árabil. Erna stofnaði, ásamt fleir-
um, Ljósið í núverandi mynd árið 2005.
Fyrst með aðsetur í safnaðarheimili Nes-
kirkju en frá 2007 að Langholtsvegi 43,
eftir margra ára undirbúningsstarf. Starf-
semin er rekin með 30 prósenta framlagi
frá ríkinu en afgangurinn er frjáls fram-
lögum og styrkir.
BRAUTRYÐJENDASTARF UNNIÐ Í LJÓSINU
Berglind segir enga fyrirmynd að Ljósinu
vera til, að þeim vitandi, sem taki til bæði
andlegra, félagslegra og líkamlegra þátta.
„Starfsemin byggir á hugmyndafræði
iðjuþjálfunar sem hefur frá upphafi byggt
á þeirri sýn að það að hafa eitthvað fyrir
stafni sé jafn nauðsynlegt heilsu manns-
ins og að draga andann. Þegar fólk geng-
ur í gegnum ferli krabbameinsmeðferðar
minnkar orkan og oft dregur úr frumkvæði.
Sumir hætta að vinna tímabundið og aðrir
alfarið vegna afleiðinga veikindanna. Við
höfum það að markmiði að efla lífsgæði hins
krabbameinsgreinda og aðstandenda meðan
á þessu ferli stendur. Við erum svona milli-
stykki á milli þess að þú veikist og þang-
að til að þú ferð aftur til vinnu. Það er mik-
ilvægt að hafa samastað þar sem hægt er að
koma og hitta fólk, vinna í höndunum og efla
andlegan, félagslegan og líkamlegan þrótt.
Í hverjum mánuði fáum við yfir 300 manns
hingað til okkar og með auknu fjármagni og
starfsfólki gætum við tekið á móti enn fleir-
um því þótt engum sé vísað frá er eftirspurn
meiri en framboðið.“
Hægt er að skoða starfsemi Ljóssins og
dagskrá á www.ljosid.is.
Ljósið hlýtur styrk Gengur vel ehf.
„Við höfum það að markmiði að efla lífsgæði hins
krabbameinsgreinda og aðstandenda meðan á
þessu ferli stendur,“ segir Erna sem stofnaði Ljósið
í núverandi mynd árið 2007. Hér tekur hún við
styrknum frá Þuríði Ottesen, framkvæmdastjóra
Gengur vel.
Berglind Kristinsdóttir, sem hefur unnið hjá Ljósinu
um árabil, ásamt Ernu Magnúsdóttur, stofnanda
Ljóssins, en báðar eru þær iðjuþjálfar.