Fréttablaðið - 10.10.2013, Page 64

Fréttablaðið - 10.10.2013, Page 64
10. október 2013 FIMMTUDAGUR| TÍMAMÓT | 40TÍMAMÓT „Hátíðin hefst á bókasafninu og í saln- um Eiðisskeri inn af því er Valgarður Gunnarsson með myndlistarsýningu eftir langt hlé. Auk þess sýna 16 lista- menn á hefðbundnum og óhefðbundn- um stöðum á bókasafninu,“ segir Soffía Karlsdóttir, sviðsstjóri menningar- og samskiptasviðs Seltjarnarness, beðin um að drepa á nokkur atriði á menn- ingarhátíð bæjarins sem hefst í dag klukkan 17. Í dagskránni segir hún leitast við að feta ótroðnar slóðir með samvinnu ólíkra hópa lærðra og leikra, yngri og eldri bæjarbúa. Sigga Heim- is, bæjarlistamaður hafi stefnt saman eldri borgurum og nemendum grunn- skólans. „Við skulum segja að eldri maður kunni rennismíði og nemandi komi með sinn frumsköpunarkraft á móti og þannig búi þeir til hlut,“ nefn- ir hún sem dæmi og segir afrakstur þessarar vinnu verða til sýnis í sund- lauginni. Einnig ætli eldri borgarar og grunnskólabörn að graffa saman í undirgöngum við Björnsbakarí milli klukkan 12 og 14 á morgun. Magískur gjörningur verður í kvöld í Lækningaminjasafninu með Sig- tryggi Baldurssyni og Stjörnuskoð- unarfélagi Seltjarnarness. Þar verða tilraunaverkefni fyrir börn og þau fá stjörnuljós. Á laugardagsmorgun býður Björnsbakarí öllum bæjarbúum í veglegt morgunverðarhlaðborð og óvænta uppákomu á Eiðistorgi. Óvitar og annað fólk er yfirskrift hátíðadagskrár í Félagsheimili Sel- tjarnarness klukkan 14 á laugardag og er helguð Guðrúnu Helgadóttur rithöf- undi. „Meðal atriða þar er að Ármann Jakobsson ætlar að spegla sjálfan sig og Sverri tvíburabróður sinn í Jóni Oddi og Jóni Bjarna. Hildur Sverris- dóttir, dóttir Guðrúnar, lýsir því líka hvernig hún taldi sig í æsku fædda inn í ranga fjölskyldu því henni fannst að mamma sín ætti frekar að vera að safna mávastelli en bisa við þessi rit- störf,“ lýsir Soffía. Byggingarlistaganga og sundlaugar- flot með slökunartónlist verða á sunnu- deginum og lokahátíð með ýmsum skemmtiatriðum síðdegis í félags- heimilinu. „Tónlistarhópurinn Fimm frá Nesi flytur þar vel valin, gömul og góð dægurlög og Ari Eldjárn setur upp spégleraugun til að benda okkur á hvað er hlægilegt við okkur. Einnig mun öfl- ugur kórstjórnandi, Inga Björg Stef- ánsdóttir leiða saman þrjá kóra, ásamt því sem Selkórinn kemur fram og með honum Útidúr,“ segir Soffía glaðlega og kveður þessa upptalningu bara brot af dagskránni. Hún lofar miklum her- legheitum næstu daga á Nesinu með fjölbreytileikann í fyrirrúmi. Nánari upplýsingar eru á vefnum www.sel- tjarnarnes.is gun@frettabladid.is Kynslóðir graff a saman Menningarhátíð Seltjarnarness hefst í dag klukkan 17 í bókasafninu á Eiðistorgi og stendur fram á sunnudag. Soff ía Karlsdóttir, sviðsstjóri menningar- og samskiptasviðs bæjarfélagsins, hefur skipulagt alls konar stefnumót ólíkra hópa, bæði leikra og lærðra. Á SELTJARNARNESI Soffía Karlsdóttir, sviðsstjóri menningar á Nesinu, sér fram á skemmtilega daga. FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL RÚNARSSON Elsku pabbi minn, tengdapabbi, afi og bróðir, VILHELM JÓNATAN GUÐMUNDSSON Villi frá Karlsá, tónlistarmaður, Nýbýlavegi 40, Kópavogi, sem lést á heimili sínu sunnudaginn 6. október, verður jarð- sunginn frá Árbæjarkirkju þriðjudaginn 15. október kl. 13.00. Íris Diljá Vilhelmsdóttir Birgir Halldórsson Indiana Birgisdóttir Lúkas Birgisson Jón M. Guðmundsson og fjölskylda Guðrún H. Guðmundsdóttir Viggo Block Gestur Guðmundsson og fjölskylda Snjólaug Guðmundsdóttir Aðalheiður Guðmundsdóttir og fjölskylda. Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og systir, ARNÞRÚÐUR STEFÁNSDÓTTIR (Addý) sjúkraliði, Strikinu 8, lést á líknardeild Landspítalans föstudaginn 4. október. Útförin fer fram frá Vídalínskirkju í Garðabæ föstudaginn 11. október klukkan 15. Blóm og kransar vinsamlegast afþakkað en þeim sem vilja minnast hennar er bent á söfnun vegna línuhraðals, bankanúmer 513-26-22245, kt. 640394-4479. Arna Valdís Kristjánsdóttir Vilberg K. Kjartansson Stella Kristjánsdóttir Lilja Kristjánsdóttir Jóhanna Kristín Gísladóttir Jana Björk Ingadóttir barnabörn og systkini. Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma, langamma og langalangamma, AÐALHEIÐUR VALDIMARSDÓTTIR Nónvörðu 6, Keflavík, lést á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja 29. september. Útför hefur farið fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu. Gunnlaug Óskarsdóttir Árni Pálsson Reynir Óskarsson Martha Vest barnabörn, barnabarnabörn og barnabarnabarnabörn. Hjartkær móðir okkar, tengdamóðir, amma, langamma og langalangamma, JÓNÍNA STEFANÍA HALLGRÍMSDÓTTIR (Jóna) Spítalastíg 3, Hvammstanga, lést á Heilbrigðisstofnun Vesturlands á Akranesi mánudaginn 30. september. Útför hennar fer fram frá Hvammstangakirkju föstudaginn 11. október kl. 15.00. Þórdís Vilhjálmsdóttir Guðmundur Víðir Vilhjálmsson Jónína Edda Ó. Levy Einar Hafsteinn Vilhjálmsson Sigurlaug Jakobína Vilhjálmsdóttir Silja Aðalsteinsdóttir Gunnar Karlsson barnabörn, barnabarnabörn og langömmubarn. Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, systir, amma og langamma, JÓNA SIGURJÓNSDÓTTIR lést sunnudaginn 6. október. Minningarathöfn verður auglýst síðar. Anna Björnsdóttir Halldór Guðmundsson Björn B. Björnsson Hrefna Haraldsdóttir Sverrir Björnsson Áslaug Harðardóttir Helga Hrönn Hilmarsdóttir Hörður Valtýsson Guðrún Jóna Sigurjónsdóttir Birta, Brynja, Björn, Arnaldur, Hrefna, Sunneva, Hjalti, Signý, Anna, Herdís Anna, Óttar og Ronja. 80 ára afmæli Grétar Geir Nikulásson Sléttuvegi 13, Reykjavík, er áttræður í dag, þann 10. október 2013. Hann tekur á móti ætting jum og vinum laugardaginn næstkomandi, 12. október, í Selinu, Sléttuvegi 11-13 frá kl. 15-18. Auður Auðuns varð fyrsti kvenráðherra á Íslandi er hún tók við embætti dóms- og kirkjumálaráðherra þennan dag árið 1970. Hún sat í nýrri stjórn Jóhanns Hafstein sem tók við forsætisráðherraembætti í júlí sama ár, þegar Bjarni Benediktsson fórst í eldsvoða á Þingvöllum. Auður hafði áður verið fyrst kvenna til að verða borgarstjóri í Reykjavík þegar hún og Geir Hallgrímsson tóku við af Gunnari Thoroddsen og deildu með sér borgarstjórastarfinu í eitt ár, frá 1959 til 1960. Auður lauk lögfræðiprófi árið 1935 og stundaði síðan ýmis lögfræðistörf og margvíslegum trúnaðarstörfum fyrir Sjálfstæðisflokkinn. Hún var alþingismaður Reykvíkinga frá 1959 til 1974. ÞETTA GERÐIST: 10. OKTÓBER 1970 Fyrsta konan í ráðherrastóli MERKISATBURÐIR 1899 Enskur togari siglir á bát Hannesar Hafstein, þáverandi sýslumanns Ísfirðinga, er hann gerir athugasemdir við veið- ar togarans uppi í landsteinum. Hannes bjargast naumlega við annan mann en þrír menn fórust. 1945 Sjómannaskólinn er vígður á Rauðarárholti. 1946 Á Norður- og Austurlandi sést mikill fjöldi glóandi loft- steina, svokallaðra vígahnatta. Menn á Kópaskeri telja fjögur hundruð á tuttugu mínútum. 1970 Fídjieyjar fá sjálfstæði. 1972 Helgi Hóseasson slettir skyri á þingmenn við þingsetningu. 1974 Norræna eldfjallastöðin er formlega opnuð í Reykjavík. 1975 Elizabeth Taylor og Richard Burton giftast öðru sinni. 2001 Smáralind er opnuð. 2006 Landsbankinn kynnir Icesave, nýja þjónustu netinnláns- reikninga fyrir viðskiptavini í Bretlandi.

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.