Fréttablaðið - 10.10.2013, Blaðsíða 68
10. október 2013 FIMMTUDAGUR| MENNING | 44MENNING
„Danssamfélagið á Íslandi er
lítið og við erum ekki margar
enn starfandi af svokallaðri eldri
kynslóð dansara þannig að þegar
Lára kom til mín og bað mig að
taka þetta verkefni að mér þótti
mér mikill heið-
ur að fá að skoða
söguna okkar,“
segir Helena
Jónsdóttir, höf-
undur Tíma sem
samið var sér-
staklega í tilefni
af fjörutíu ára
afmæli Íslenska
dansflokksins.
Helena hefur
verið viðloðandi dansflokkinn
í 33 ár, sitt hvorum megin við
landamærin, eins og hún orðar
það. „Ég var í Listdansskóla Þjóð-
leikhússins frá tólf ára aldri og
þá tók maður oft þátt í sýningum
flokksins. Þegar náminu lauk
gekk ég í dansflokkinn í stuttan
tíma. Síðan urðu stórar breyt-
ingar á flokknum og ég hætti.
Ég hef samt alltaf verið þarna
með annan fótinn, þetta er eins
og lítil fjölskylda og maður yfir-
gefur ekki fjölskyldu sína.“
Við vinnslu verksins eyddi
Helena ómældum tíma í að skoða
gömul myndbönd, skoða eldri
verk flokksins og kafa í fortíðina.
„Ég fann aðra ást í mínu listalífi
sem er kvikmyndin,“ segir Hel-
ena. „Ég flétta hana inn í verkið.
Ég er þarna með fjóra frábæra
dansara sem eru allir nýstign-
ir inn í flokkinn, alveg ferskir,
þannig að við erum bókstaflega
með núið á sviðinu. Svo nota ég
vídeó til að varpa fram gamla
tímanum. Við fáum að sjá í tá-
skóna hjá Ásdísi Magnúsdóttur,
handahreyfingar Katrínar Hall
og snúninginn hjá Birgittu Heide,
svo eitthvað sé nefnt. Ég hef líka
farið í gegnum danslistasöguna
og fannst tilheyra að tala við
eldri íslenska danshöfunda og fá
leyfi hjá þeim til að flétta inn í
nokkur spor frá þeim. Þannig að
við erum að horfa þarna í litlum
örmyndum á tuttugu til þrjátíu
höfunda og dansara sem hafa
komið nálægt flokknum í þessi
fjörutíu ár.“
Sviðsmyndin er baksviðið þar
sem dansararnir eru að vinna
sína vinnu. „Dansarar vinna
klukkutímum, vikum og mánuð-
um saman að því einu að deila
hjarta sínu í fjörutíu og fimm
mínútur með áhorfendum,“ segir
Helena. „Þannig að í þessari sýn-
ingu kíkjum við á bak við tjöldin
og fáum innsýn inn í heim dans-
arans.“
fridrikab@frettabladid.is
Heimur dansarans
Íslenski dansfl okkurinn frumsýnir tvö glæný verk annað kvöld, Tíma eft ir Helenu
Jónsdóttur og Sentimental, Again eft ir Jo Strömgren. Helena samdi Tíma sér-
staklega fyrir dansfl okkinn og leitaði fanga víða í sögu hans og fyrri sýningum.
Shani Boianjiu er fædd árið 1987
í smábæ í Galíleu. Hún var leið-
beinandi í vopnaburði bardagaher-
manna á meðan hún gegndi her-
þjónustu í Ísrael. Hún gaf út sína
fyrstu skáldsögu nýlega, Fólkið frá
Öndverðu óttast ekki, sem hefur
vakið heimsathygli. Bókin fjallar
um þrjár vinkonur, Avishag, Leu
og Yael, sem alast upp í smábæ í
Ísrael. Hugðarefni þeirra eru ekki
frábrugðin annarra ungmenna frá
öðrum heimshlutum en hættan er
aldrei langt undan.
Aðspurð segir Shani bókina ekki
byggða á eigin lífi. Það er samt ekki
hjá því komist að velta fyrir sér lík-
indum söguhetjunnar og höfundar.
„Sumt fólk í Ísrael býr við stöð-
uga ógn, aðrir ekki. Það fer eftir
því hvar í Ísrael þú býrð, af hvaða
stétt þú ert, kynþætti og þar fram
eftir götunum,“ segir Shani.
„Ég var ekki ánægð með að vera
kvödd í herinn en það hefði ekki
verið í lagi siðferðislega að fara
ekki en horfa á eftir öðrum fara,“
útskýrir Shani.
Hún segir gríðarlegan mun á því
hvernig komið er fram við konur og
karla í hernum. „En það er komið
fram við karla og konur á ólíkan
hátt alls staðar í heiminum – hvar
og hvenær sem er. Alltaf,“ bætir
Shani við.
Bók Shani hefur verið þýdd á
fjölda tungumála. „Ég hef ekki
kynnst neinum út á velgengnina.
Enginn höfundur eða listamaður
hefur reynt að nálgast mig vegna
bókarinnar. Ég bý í sama þorpi
og ég ólst upp í. Ekkert í mínu lífi
hefur breyst og skrifin ekki held-
ur,“ segir Shani. Hún bætir við að
hún sé að vinna að nýrri bók en vill
lítið gefa upp um innihaldið.
Shani segist ekki upplifa pressu
sem höfundur um að skrifa um
ástandið í Ísrael. „Ég vel ekki um
hvað ég skrifa, það bara kemur
til mín. Höfuðmarkmið mitt með
skrifunum er að hjálpa mannfólk-
inu að verða aðeins minna sorglegt.
Ég hef ekki enn þá gert upp við mig
hvort það sé hreinlega hægt,“ segir
Shani að lokum.
olof@frettabladid.is
Lauk tveggja ára
herskyldu
Shani Boianjiu er ungur ísraelskur höfundur. Bók
hennar hefur vakið athygli úti um allan heim en
Shani segir ekkert hafa breyst í sínu lífi .
Björg Þórhallsdóttir sópransöng-
kona og Jónas Ingimundarson
píanóleikari verða með tvenna
söngtónleika á Norðurlandi í kvöld
og annað kvöld undir yfirskriftinni
„Við slaghörpuna“. Fyrri tónleik-
arnir verða í kvöld, fimmtudag, í
Menningarhúsinu Hofi á Akureyri
og hefjast kl. 20. Síðari tónleik-
arnir verða svo annað kvöld kl. 20 í
Menningarhúsinu Bergi á Dalvík.
Á efnisskránni, sem er afar
fjölþætt, eru sjaldheyrð íslensk
sönglög eftir sjö höfunda, meðal
annars þá Jakob Hallgrímsson
og Jóhann Ó. Haraldsson, auk
verka eftir stórmeistara söng-
lagagerðar, þá Franz Schubert og
Jean Sibelius. Þar gefur að heyra
meðal annars Grétu við rokkinn
eftir Schubert og Svartar rósir
eftir Sibelius.
Björg og Jónas fyrir norðan
TÍMAR Fjórir ungir dansarar dansa í sýningunni og einnig bregður fyrir myndbandsklippum af eldri dönsurum. FRÉTTABLAÐIÐ/ARNÞÓR
HELENA
JÓNSDÓTTIR
VILL HJÁLPA MANNFÓLKI AÐ VERÐA
MINNA SORGLEGT Shani Boianjiu
skrifaði bókina Fólkið frá Öndverðu
óttast ekki. AFP/NORDICPHOTOS
VIÐ SLAGHÖRPUNA Björg Þórhalls-
dóttir og Jónas Ingimundarson verða á
Norðurlandi í kvöld og annað kvöld.
FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Opus
hægindastóll
með skemli
í áklæði.
ÞEGAR HÖNNUN OG ÞÆGINDI FARA SAMAN
LEVANTO
hægindastóll
með skemli
í leðri.
TIMEOUT
hægindastóll
í svörtu leðri
og hnotu.
PRIME
hægindastóll
í hvítu leðri
og eik.