Fréttablaðið - 10.10.2013, Qupperneq 82
10. október 2013 FIMMTUDAGUR| MENNING | 58
Margar áhugaverðar plötur með
nýju efni eru væntanlegar á næstu
mánuðum frá helstu útgáfufyrir-
tækjum landsins.
Record Records verður áfram
iðið við kolann og hefur tilkynnt
um útgáfu sjö hljómplatna. Fjórða
plata popparanna í Leaves, See
You In The Afterglow, kemur út
á morgun. Hljómsveitin, sem var
eitt sinn á mála hjá stórum erlend-
um útgáfufyrirtækjum, gaf síðast
út We Are Shadows fyrir fjórum
árum.
Ojba Rasta gefur út sína aðra
plötu, Friður, 18. október. Frum-
burður reggísveitarinnar kom út
í fyrra og fékk mjög góða dóma
víðast hvar og verður forvitnilegt
að heyra hvernig hún fylgir vel-
gengninni eftir.
Önnur sveit sem átti vel heppn-
aða fyrstu plötu, Tilbury, gefur
út Northern Comfort 25. október.
Fyrsta platan Exorcise kom út
í fyrra og náði lagið
Tenderloin miklum
vinsældum. Plata
með nýju efni frá
Lay Low er einn-
ig væntanleg 30.
október. Nýlega
gaf hún út tón-
leikaplötuna
Live At
Home en fyrir tveimur árum kom
út síðasta hljóðversplata hennar,
Brostinn strengur.
Mammút gefur svo út sína
fyrstu plötu í fimm ár, eða síðan
Karkari kom út 2008. Nefnist hún
Komdu til mín svarta systir og
kemur út 25. október.
Hjá Geimsteini kemur út barna-
platan Alheimurinn með Dr.
Gunna og félögum. Fyrsta lagið af
henni, Glaðasti hundur í heimi, er
búið að gera allt vitlaust að undan-
förnu. Nýjasta lagið í spilun er
með Bjartmari Guðlaugssyni, Sól-
mundi Hólm, Mugison og Jakobi
Frímanni ásamt Fýlustráknum.
Önnur plata strákanna í Ultra
Mega Technobandinu Stefán er
einnig á leiðinni,
rétt eins og Íkorni, fyrsta sólóverk-
efni Stefáns Arnar Gunnlaugsson-
ar, upptökustjóra og hljómborðs-
leikara.
Stærsta útgáfa landsins, Sena,
gefur út fyrstu plötu Kaleo sem
átti eitt vinsælasta lag sumarsins,
Vor í Vaglaskógi, og Eurovision-
stjarnan Eyþór Ingi gefur út sína
fyrstu plötu ásamt hljómsveit sinni
Atómskáldunum. Auk þess mætir
Friðrik Ómar með nýja plötu.
Tónlist Hjaltalín við þöglu
myndina Days of Gray er einnig
komin út. freyr@frettabladid.is
Brakandi ferskt popp
og reggí væntanlegt
Ojba Rasta, Tilbury, Kaleo, Mammút og Lay Low mæta öll með nýjar plötur á
næstu mánuðum. Fyrsta sólóplata Eyþórs Inga kemur einnig út fyrir jólin.
Eldri og reyndari flytjendur, Todmobile, Baggalútur og Raggi Bjarna, eru
með nýtt efni í farteskinu á vegum Senu, auk þess sem Sálin sendir frá
sér Farg í anda Gargs sem kom út 1992. Farg verður með nýjum lögum og
öðrum nýlegum sem hafa fengið útvarpsspilun undanfarin ár.
Sálin og Todmobile með nýtt efni
NÝTT Á LEIÐINNI Reggísveitin Ojba Rasta, Tilbury, Kaleo, Mammút, Eyþór Ingi og Lay Low mæta öll með nýjar plötur á næst-
unni. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
FJÖLBREYTNI Eyþór Ingi, Lay Low,
Mammút og Tilbury gefa út nýjar plötur.
BÍÓ ★★★★ ★
Málmhaus
Leikstjóri: Ragnar Bragason
LEIKARAR: ÞORBJÖRG HELGA
DÝRFJÖRÐ, INGVAR E. SIGURÐSSON,
HALLDÓRA GEIRHARÐSDÓTTIR
Hera litla brennir prinsessu-
kjólana sína á báli eftir að hún
kemur að stóra bróður sínum látn-
um eftir hörmulegt vinnuslys.
Þungarokksbolir bróðurins koma
í stað kjólanna og árin líða. Rúm-
lega tvítug er Hera enn illa hald-
in af unglingaveiki og foreldrar
hennar fyrir löngu búnir að missa
þolinmæðina. Hinn hörmulegi
atburður hefur síður en svo sleppt
af henni takinu og rígheldur henni
í sveitinni, flestum til ama.
Málmhaus er ekki þungarokks-
veislan sem ég vonaðist til að
hún væri. Þvert á móti er hún
hádramatískt sveitavolæði og
nokkuð erfitt áhorfs á köflum.
Ekki sökum leiðinda heldur vegna
þess hversu auðvelt er að hafa
samúð með persónunum.
Þorbjörg Helga Dýrfjörð er frá-
bær í margslungnu aðalhlutverkinu
og mikið mæðir á henni. Þá pressu
stenst hún algjörlega. Ingvar og
Halldóra þótti mér síðri í hlutverk-
um foreldranna. Eina stundina
voru þau alveg frábær en þá næstu
fannst mér þau detta í tilgerðar-
legan ofleik. Það dugði þó ekki til
að sökkva skipinu, enda handritið
traustbyggt og nokkuð vel skrifað.
Auðvitað fær tónlistin sitt pláss en
er aldrei aðalatriði. Hera gæti eins
hafa flúið veruleikann með því að
verða FM-hnakki.
Sjónrænir þættir myndarinnar
eru til fyrirmyndar og satt best að
segja man ég ekki eftir áferðar-
fegurri íslenskri kvikmynd síðan
Á köldum klaka var gerð fyrir
tæpum tveimur áratugum. Þar
spilar kvikmyndatakan stærstu
rulluna og í flottustu skotunum
var stutt í að maður gapti. Ragnar
leikstjóri má vera stoltur af þess-
ari. Haukur Viðar Alfreðsson
NIÐURSTAÐA: Afbragðs drama
og sjónrænt gotterí. Aukastig fyrir
Megadeth.
Kraft mikið sveitavolæði
MÁLMHAUS Þorbjörg Helga Dýrfjörð
er frábær í margslungnu aðalhlutverki
myndarinnar Málmhaus.
ÓÐINSGÖTU 4, SÍMI 570 4500, OPIÐ VIRKA DAGA KL. 9-17.
Netfang: fastmark@fastmark.is - www.fastmark.is
Jón Guðmundsson, sölustj. og lögg. fast.sali. Guðmundur Th. Jónsson, lögg.
Góð sérhæð eða hæð og ris
óskast í vesturbænum
fyrir traustan kaupanda.
Afhending samkomulag.
Staðgreiðsla í boði fyrir rétta eign.
SÉRHÆÐ ÓSKAST
Í VESTURBÆ
ÓÐINSGÖTU 4, SÍMI 570 4500, OPIÐ VIRKA DAGA KL. 9-17.
Netfang: fastmark@fastmark.is - www.fastmark.is
Jón Guðmundsson, sölustj. og lögg. fast.sali. Guðmundur Th. Jónsson, lögg. fast.sali.
ÍBÚÐ ÓSKAST
Íbúð óskast fyrir
eldri borgara
við Skúlagötu 20
eða við Eiðismýri
á Seltjarnarnesi
fyrir traustan kaupanda.