Fréttablaðið - 10.10.2013, Síða 84
10. október 2013 FIMMTUDAGUR| MENNING | 60
„Fyrsta upplagið af textasafni
Megasar varð uppselt um leið og
það kom út í október í fyrra en
nú er endurprentunin að koma
út,“ segir Jóhann Páll Valdimars-
son, útgefandi hjá Forlaginu, um
textasafn Megasar sem kemur
út í dag. Með bókinni fylgir árit-
uð sjálfsmynd af Megasi sem
er eftir hann sjálfan og er hún
prentuð á sérstakan pappír.
„Hann féllst á að árita hvert
og eitt eintak ef hann fengi nógu
langan tíma til þess, en mynd-
irnar eru 2.000 talsins,“ segir
Jóhann Páll um áritanirnar.
Megas, sem heitir fullu nafni
Magnús Þór Jónsson, áritaði
myndirnar ekki undir nafninu
Megas heldur Magnús Þór.
„Hann er Megas þegar kemur
að tónlist en Magnús Þór þegar
um myndlist er að ræða og því
skrifaði hann Magnús Þór á
myndirnar,“ útskýrir Jóhann
Páll.
Aðspurður sagðist Megas
hreinlega ekki hafa náð utan um
fjöldann fyrst þegar Jóhann gekk
á hann með að árita 2.000 sjálfs-
myndir til að fylgja endurprent-
uninni.
„Þetta var þrautavinna en
hafðist að lokum,“ segir Megas
um vinnuna.
Textabókin inniheldur saman-
tekt af helstu söngtextum Megas-
ar frá upphafi og hafa margir
textanna ekki komið út á plötu.
Í bókinni er fjöldi ljósmynda af
meistaranum og veröld hans, sem
margar sjást hér opinberlega í
fyrsta sinn. Síðast en ekki síst
prýða bókina myndskreytingar
sem hann gerði sérstaklega fyrir
útgáfuna.
Bókin kemur út í dag á vegum
Forlagsins. -glp
Magnús Þór áritar
textasafn Megasar
Megas áritar 2.000 sjálfsmyndir sem fylgja textasafni hans sem kemur út í dag.
MAGNÚS OG JÓHANN Megas og Jóhann Páll Valdimarsson, útgefandi hjá Forlaginu, virða fyrir sér sjálfsmyndina.
FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR
Sinead O’Connor segist hafa
fengið hótanir frá aðdáendum
Miley Cyrus sem meðal annars
hvetja hana til að fremja sjálfs-
morð síðan hún birti opið bréf til
Miley Cyrus, þar sem hún biðlaði
til poppstjörnunnar ungu að láta
músíkbransann ekki gera hóru
úr sér.
O’Connor birti nú fjórða opna
bréfið til Cyrus í vikunni þar
sem O’Connor segist hafa orðið
fyrir áreiti sökum deilna þeirra
á milli.
„Vegna þinna gjörða hef ég
þurft að eiga í samskiptum við
fólk sem er að hvetja mig til þess
að fremja sjálfsmorð,“ segir
O’Connor meðal annars.
Þar vísar O’Connor í gaml-
ar Twitter-færslur hennar sem
Miley birti á síðu sinni nýlega,
en þar talaði O’Connor opinskátt
um geðræn vandamál sín. - ósk
Aðdáendur Cyrus
hótuðu O’Connor
Deilur Sinead O’Connor og Miley Cyrus enn í gangi.
SENDI ANNAÐ OPIÐ BRÉF TIL MILEY
Sinead O’Connor sendi fjórða opna
bréfið til Miley Cyrus í gær. Þær hafa nú
átt í opinberum deilum í viku.
AFP/NORDICPHOTOS
„Tíminn flýgur áfram og hann
teymir mig á eftir sér
og ekki fæ ég miklu ráðið um
það hvert hann fer.
En ég vona bara að hann hugsi
svolítið hlýlega til mín
og leiði mig á endanum aftur til
þín.“
➜ Tvær stjörnur
eftir Megas
NÝ TILSKIPUN
EVRÓPU-
SAMBANDSINS
UM STARFSEMI
VERÐBRÉFASJÓÐA
ROBERT LORD
HELDUR FYRIRLESTUR
Í HÁTÍÐASAL HÁSKÓLA ÍSLANDS
FÖSTUDAGINN 11. OKT. KL. 12-13:30
Með tilskipuninni er reynt að samræma reglur
um starfsemi verðbréfasjóða á evrópska
efnahagssvæðinu ( EES). Eitt af því sem tilskipunin
felur í sér er aukin upplýsingagjöf verðbréfasjóða og
þar með gagnsæi fyrir þá sem festa fé sitt í slíkum
sjóðum.Tilskipunin mun hafa mikil áhrif hér á landi
sem annars staðar á svæðinu, sérstaklega þegar
hömlum á fjárfestingu verður aflétt hér á landi.
Robert Lord er virtur lögfræðingur sem hefur
hefur starfað við regluvörslu á verðbréfamörkuðum
og unnið fyrir fjármálamarkaðinn víða um heim.
Aðgangur ókeypis, allir velkomnir!
Myndband Bjarkar Guðmunds-
dóttur við lagið Mutual Core hlýt-
ur tvær tilnefningar til UK Music
Video-verðlaunanna í ár, annars
vegar fyrir bestu tæknibrellur og
hins vegar fyrir bestu listræna
stjórnun og hönnun.
Verðlaunahátíðin fer fram þann
28. október næstkomandi en verð-
launin hafa verið veitt árlega síðan
árið 2008. Myndbandið hefur
vakið mikla athygli um allan heim
og hlaut meðal annars verðlaunin
„People’s Voice“, eða Rödd fólksins,
á Webby-verðlaunahátíðinni ekki
alls fyrir löngu.
Myndbandið var framleitt af
Sagafilm fyrir One Little Indian og
því var leikstýrt af bandaríska leik-
stjóranum Andrew Thomas Huang.
Myndbandið var tekið upp sum-
arið 2012 í stúdíói Sagafilm á
Laugavegi en alls komu þrjátíu
manns að gerð myndbandsins.
Starfsliðið var allt íslenskt fyrir
utan leikstjórann og aðstoðartöku-
manninn sem komu að utan. Meðal
þeirra sem unnu við tónlistar-
myndbandið voru Gústi Jak og Gus
Ólafsson en um framleiðslu sá Árni
Björn Helgason hjá Sagafilm.
Í myndbandinu má sjá samspil
grafíkur og raunveruleika en Björk
er grafin í sand í myndbandinu.
Eldfjöll og steinar spila stórt hlut-
verk í sviðsmyndinni. - ósk
Myndband Bjarkar tilnefnt til verðlauna
Myndband Bjarkar við lagið Mutual Core hlaut tvær tilnefningar til UK Music Video-verðlaunanna í ár.
MUTUAL CORE HEFUR VAKIÐ MIKLA
ATHYGLI Myndbandinu var leikstýrt af
Andrew Thomas Huang en framleitt af
Saga Film.
MYND/ÚR MYNDBANDI