Fréttablaðið - 10.10.2013, Side 96
FRÉTTIR
AF FÓLKI
Mest lesið
1 Lavezzi felldi myndatökumann |
Myndband
2 Frostrósafélög í milljónaskuld
3 Bæjarfulltrúi VG í Mosfellsbæ í þrot
4 Þarf meðferð og fær martraðir
5 Vegabréf frá Íslandi það áttunda
besta
6 Það sem læknirinn sagði mér
Gísli leitar að nafni
Gísli Marteinn Baldursson biður vini
sína á Facebook um að hjálpa sér við
að velja nafn á nýjan sjónvarpsþátt
sinn sem verður á dagskrá Sjón-
varpsins í vetur. Hann leggur til tvö
nöfn, annars vegar Vikan með Gísla
Marteini og hins vegar Sunnudags-
morgunn með Gísla Marteini. Vinir
hans hafa sínar skoðanir og leggur
rithöfundurinn Hallgrímur Helgason
til nafnið Gíslataka en Stuðmaðurinn
Jakob Frímann Magnússon er hrifinn
af Efstaleiti. Sóley Tómasdóttir,
borgarfulltrúi Vinstri
grænna, segir að sér
sé sama um nafnið
en biður Gísla
Martein vinsam-
legast um að tala
við konur í
þættinum
til jafns við
karla. - fb
Jóhanna fór ekki í sprautu
Þingmönnum bauðst að láta sprauta
sig við flensu í gær. Einn þeirra, sem
gat ekki látið sprauta sig, var yngsti
þingmaðurinn Jóhanna María Sig-
mundsdóttir. „Ég var í fríi og komst
því ekki,“ segir hún. „Annars er ég
vön að fara í flensusprautu á hverju
ári hjá heimilislækninum mínum.“
Þrátt fyrir að Jóhanna María láti
sprauta sig segist hún tína upp allar
pestir. „Vinir mínir segja að ég sé eins
og leikskólabarn,“ segir hún
og hlær. Þeir þingmenn
sem komust ekki til að
láta sprauta sig í gær
geta fengið flensusp-
rautu á þinginu í
næstu viku. „Ég mæti
þá ef ég verð ekki
upptekin, annars
fer ég til heimilis-
læknisins,“ segir
Jóhanna María.
- jme
VIÐ SEGJUM FRÉTTIR · SMÁAUGLÝSINGASÍMINN OG SKIPTIBORÐ: 512 5000 DREIFING: dreifing@postdreifing.is
EF BLAÐIÐ BERST EKKI: 512 5060
VÍSIR
RITSTJÓRN 512 5313, Fax: 512 5301, ritstjorn@frettabladid.is AUGLÝSINGADEILD auglysingar@frettabladid.is PRENTUN Ísafoldarprentsmiðja
FRÉTTIR VIÐSKIPTI ÍÞRÓTTIR LÍFIÐ UMRÆÐAN
Meiri Vísir.
afsláttur
Opið virka daga frá kl. 11 til 18
laugardaga frá kl. 11 til 17
sunnudaga frá 13 til 17
Sími 568 9512
Barnafatnaður frá
Suðurlandsbraut 54 bláu húsin ( við faxafen)
50%-
70%