Fréttablaðið - 24.10.2013, Side 4
24. október 2013 FIMMTUDAGUR| FRÉTTIR | 4
VERSLUN „Við viljum berjast til
síðasta blóðdropa,“ segir Elvar
Eyvindsson, kúabóndi og fulltrúi
Sjálfstæðisflokks í sveitarstjórn
Rangárþings eystra, sem hyggst
ræða stofnun almenningshluta-
félags um rekstur dagvöruversl-
unar á íbúafundi.
Rangæingar hafa lengi verið
ósáttir við verðlag í verslun-
inni Kjarval sem Kaupás rekur
á Hvolsvelli eins og á mörgum
öðrum stöðum á Suðurlandi. Þrátt
fyrir mikla eftirgangsmuni hefur
engin lágvöruverðskeðja fengist
til að opna verslun á staðnum þótt
heimamenn sjálfir telji grundvöll
til þess.
Tillaga Elvars og Kristínar Þórð-
ardóttur um íbúafundinn var sam-
þykkt samhljóða í sveitarstjórn-
inni. Þar á að „láta reyna á hvort
samtakahugur íbúanna er nægileg-
ur til að menn sameinist um stofn-
un og rekstur slíks fyrirtækis“,
eins og segir í tillögunni.
„Ef það er ekki lágvöruverðs-
verslun þá getur hver sem er rekið
þarna svipaða búð og er í dag. Og
það væri alveg eins gott að heima-
menn gerðu það,“ segir Elvar.
Rangárþing eystra á gamla
Kaupfélagshúsið þar sem Kjarval
er. Leigunni hefur verið sagt upp
frá áramótum en verslunin hefur
forleigurétt. „Það er ekki auðvelt
en kannski vill fólk hafa það tómt
og bjarga sér í öðru húsnæði á
meðan við erum að losna frá þess-
um forleigurétti,“ segir Elvar um
þá stöðu.
Þá bætir Elvar við að hann telji
landsbyggðina að vissu leyti ofur-
selda verslanakeðjum sem bjóði
ekki sérlega gott verð.
„Það sem verður eftir hjá okkur
eru láglaunastörfin en öll yfir-
stjórnin er annars staðar og hagn-
aðurinn fer annað líka,“ segir
Elvar sem kveður heimamenn
engar áhyggjur hafa af því að
verslun leggist af á Hvolsvelli.
Yfir þrjú hundruð þúsund ferða-
menn fari um bæinn á ári.
„Auðvitað vilja verslunareigend-
ur mjólka það án þess að við njót-
um en við viljum láta reyna á það
til hins ýtrasta hvort ekki sé hægt
að koma því í betra horf,“ segir
Elvar. „Við erum sannfærð um að
það er hægt að vera með skikkan-
legra verð. Ef þeir geta það ekki
þá viljum við bjóða einhverjum
öðrum það. Og ef enginn annar
getur þetta, þá getum við alveg
eins gert þetta sjálf.“
gar@frettabladid.is
Það sem
verður eftir
hjá okkur
eru láglauna-
störfin en öll
yfirstjórnin er
annars staðar
og hagnaðurinn fer annað
líka.
Elvar Eyvindsson, sveitarstjórnarmaður í
Rangárþingi eystra.
MEÐAL-ÍSLENDINGURINN FER
4,5 SINNUM Í BÍÓ Á ÁRI
Höfuðborgarbúar eru bíósæknari
en aðrir landsmenn. Þeir fara 6,1
sinni í bíó á ári.
Íbúar Norðvesturlands sækja hins
vegar ekki kvikmyndahús nema 0,2
sinnum á ári hverju, sem jafngildir
einu skipti á mann á fimm ára fresti.
Heimild: Hagstofa Íslands
SVEITARSTJÓRNARMÁL
Vill annað sæti
Áslaug María Friðriks-
dóttir borgarfulltrúi
gefur kost á sér í
annað sæti listans í
prófkjöri sjálfstæðis-
manna í Reykjavík.
Hún hefur verið borgarfulltrúi síðan í
haust en varaborgarfulltrúi frá 2006. Þá
hefur hún gegnt margvíslegum trún-
aðarstörfum fyrir Sjálfstæðisflokkinn.
Sækist eftir þriðja sæti
Karl Pétur Jónsson
býður sig fram í þriðja
sæti á lista Sjálfstæðis-
flokksins á Seltjarnar-
nesi fyrir sveitarstjórn-
arkosningarnar í vor.
Karl Pétur er framkvæmdastjóri Mostly
Human Entertainment, fyrirtækis í
alþjóðlegri framleiðslu menningarefnis
og hefur um áratugaskeið verið ráðgjafi
í almannatengslum.
Almenningur stofni
verslun á Hvolsvelli
Sveitarstjórn Rangárþings eystra samþykkti tillögu sjálfstæðismanna um að boða
til íbúafundar til að ræða almenningshlutafélag um verslun á Hvolsvelli. Ástæðu-
laust væri að setja arðbæra verslun í hendur stórfyrirtækja á höfuðborgarsvæðinu.
HVOLSVÖLLUR Verslunin Kjarval er í gamla Kaupfélagshúsinu sem Rangárþing
eystra á við þjóðveginn í gegnum Hvolsvöll. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
KÍNA, AP Kína og Indland skrifuðu í
gær undir samkomulag, sem þykir
gefa von um að nú sjái fyrir end-
ann á deilum milli asísku risanna
um landamærasvæði í vestanverð-
um Himalajafjöllum.
Li Keqiang, forsætisráðherra
Kína, og Manmohan Singh, starfs-
bróðir hans frá Indlandi, hand-
söluðu samkomulagið að loknum
fundi í Beijing.
Deilur hafa staðið milli land-
anna í hálfa öld um landsvæði sem
er litlu stærra en Ísland að flatar-
máli. - þj
Grafa stríðsöxina eftir 50 ár:
Sömdu um frið
á landamærum
VILJA FRIÐ Forsætisráðherrar Kína og
Indlands sömdu um frið á umdeildu
landamærasvæði. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
DÓMSMÁL Tíu voru í Héraðsdómi Reykjaness í gær dæmd-
ir til að greiða hundrað þúsund krónur í sekt fyrir vændis-
kaup. Greiði þeir ekki sektina þurfa þeir að sitja sex daga í
fangelsi.
Ákærurnar voru þingfestar í gærmorgun og dómari ákvað
að dæma mennina strax, þó svo að einungis tveir þeirra
hefðu mætt fyrir dóminn. Heimilt er að dæma menn að þeim
fjarstöddum ef nægilega lítil refsing liggur fyrir brotinu.
Samkvæmt upplýsingum fréttastofu byggir ríkissaksókn-
ari málin á myndbandsupptökum fyrir utan blokk, og inni í
stigangi, í Hamraborg í Kópavogi. Þar sjást mennirnir kaupa
vændi, líklegast af einni konu.
Málin eru hluti af 86 málum sem lögreglan á höfuðborgar-
svæðinu sendi til ríkissaksóknara í sumar. - sh
Tveir vændiskaupendur mættu fyrir dóm og hlutu 100 þúsund króna sekt:
Tíu sektaðir fyrir vændiskaup
HULDI ANDLIT SITT Annar þeirra sem mættu í dóm-
inn í gær sést hér hylja andlit sitt fyrir ljósmyndurum.
ÁSTRALÍA Áframhaldandi miklum
hitum er spáð næstu vikurnar í
Ástralíu. Viðvarandi hætta er því
á gróðureldum. Þúsundir manna
berjast við að slökkva kjarrelda í
suðausturhluta álfunnar. Hitinn
mældist 33,6 gráður í Sydney í
gær, en það var fimmti dagurinn
í þessum mánuði sem hitinn fór
yfir 30 stig.
Í gær var svo skýrt frá því að
heræfing vestur af Sydney hefði
valdið því að miklir eldar kvikn-
uðu í gróðri þar. - gb
Ekkert lát er á kjarreldum:
Herinn kveikti
suma eldana
GRIKKLAND, AP Gríska þingið
samþykkti í gær að loka á úthlut-
un opinbers fjár til Gullinnar
dögunar, flokks þjóðernissinna.
Gullin dögun jók nokkuð við
fylgi sitt í síðustu þingkosningum
þar sem flokkurinn náði að nýta
sér óánægju og óöryggi almenn-
ings í efnahagsþrengingunum.
Félagsmenn hafa þó þótt fara
yfir strikið, meðal annars er einn
þeirra sakaður um að hafa myrt
vinstrisinnaðan tónlistarmann.
Yfirvöld hafa hert tökin á
flokknum að undanförnu og for-
maður hans, auk tveggja þing-
manna, er nú í haldi lögreglu. - þj
Þingið gegn Gullinni dögun:
Klippa á pening
til öfgaflokks
HEILBRIGÐISMÁL Kynningarátaki
til að fjölga lifandi nýragjöfum
var ýtt úr vör í gær og vefsíðan
nyraigraedsla.is formlega opnuð
til þess að freista þess að fjölga
nýragjöfum. Þörf fyrir ígræðslu
nýra hefur farið vaxandi á undan-
förnum árum vegna aukinnar tíðni
nýrnabilunar sem meðal annars
má rekja til afleiðinga svokallaðra
lífsstílssjúkdóma.
Á síðunni er að finna ítarlegar
upplýsingar um hverjir geta gefið
nýra og jafnframt útskýrt hvernig
ferlið er í kringum nýragjöf.
-ebg
Tuttugu bíða eftir gjafanýra:
Átak til að
fjölga gjöfum
LÖGREGLUMÁL
Vilja stöð á Seltjarnarnes
Lögbrot á Seltjarnarnesi eru hlutfalls-
lega fá, að því er fram kemur í könnun
sem lögregla kynnti starfsmönnum
bæjarins á mánudag. Þar kom meðal
annars fram að lítið eða ekkert virtist
vera um ofbeldisbrot á Seltjarnarnesi.
Meirihluti bæjarbúa telur þó að lög-
reglustöð vanti í bæinn.
AUGLÝSINGADEILDIR FRÉTTABLAÐSINS– AUGLÝSINGASTJÓRI: Jón Laufdal jonl@frettabladid.is ALMENNAR SÍMI 512-5401: Guðmundur Steinsson gudmundur@365.is, Hjördís Zoëga hjordis@frettabladid.is, Hlynur Þór Steingrímsson hlynur@365.is, Laila Awad laila@365.is,
Sigríður Dagný Sigurbjörnsdóttir sigridurdagny@365.is, Örn Geirsson orn.geirsson@365.is FÓLK/LÍFIÐ/SÉRBLÖÐ SÍMI 512-5402: Atli Bergmann atli.bergmann@365.is, Bryndís Hauksdóttir bryndis@365.is, Ívar Örn Hansen ivarorn@365.is, Kolbeinn Kolbeinsson kolli@365.is, Sverrir Birgir Sverrisson sverrirbs@365.is
FÓLK OG SÉRBLÖÐ EFNI: Sólveig Gísladóttir solveig@365.is og Vera Einarsdóttir vera@365.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 512-5403: Hrannar Helgason hrannar@365.is, Viðar Ingi Pétursson vip@365.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 512-5407: Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@365.is, Sigrún Helga Guðmundsdóttir sigrunh@365.is
SVONA ERUM VIÐ
Elísabet
Margeirsdóttir
veðurfréttamaður
Veðurspá
Laugardagur
Víða fremur stíf norðanátt.
LÉTTIR TIL SYÐRA Það má búast við úrkomu um norðan- og austanvert landið
næstu daga en á morgun léttir til um sunnan- og suðvestanvert landið.
2°
13
m/s
4°
10
m/s
5°
4
m/s
7°
8
m/s
Á morgun
5-13 m/s.
Gildistími korta er um hádegi
2°
-1°
1°
0
0°
Alicante
Basel
Berlín
26°
20°
16°
Billund
Frankfurt
Friedrichshafen
13°
16°
19°
Gautaborg
Kaupmannahöfn
Las Palmas
14°
14°
28°
London
Mallorca
New York
16°
26°
12°
Orlando
Ósló
París
24°
13°
19°
San Francisco
Stokkhólmur
16°
12°
5°
8
m/s
7°
6
m/s
4°
5
m/s
4°
11
m/s
2°
7
m/s
3°
8
m/s
-2°
7
m/s
4°
1°
5°
2°
1°