Fréttablaðið - 24.10.2013, Side 18
24. október 2013 FIMMTUDAGUR| FRÉTTIR NEYTENDUR | 18
Svíum er nú heimilt að aka á
bifreiðum með nagladekkjum inn
í Þýskaland en eingöngu 500
metra vegalengd er frá ferjunni
til áfengisverslunarinnar í
Puttgarden. Nagladekk hafa
verið bönnuð í Þýskalandi frá
1975 en nú hefur reglunum
verið breytt fyrir sænska
ferðamenn sem koma til
Puttgarden með ferjunni frá
Rödby frá 1. nóvember til 31.
mars. Vænta má hárra sekta
aki menn á nagladekkjum á
öðrum leiðum, að því er greint
er frá í bílatímaritinu Vi bilägare.
Nagladekk eingöngu
í áfengisleiðangur
Það sem skiptir máli
þegar pera er valin er að
skoða ljósmagnið.
60W glópera var
til dæmis 710 lm.
Aðalsteinn Richter, sölumaður
hjá Jóhanni Ólafssyni & Co.
➜ Það hversu „hlýtt“
eða „kalt“ ljós er veltur á
litahitastiginu og er mælt í
Kelvin-gráðum.
Reiknivél sem á að aðstoða neytendur við að átta
sig á hvað ljóstíminn kostar fyrir mismunandi
perur fæst nú endurgjaldslaust í appi hjá Orku-
setri. Það er þess vegna hægt að fara með snjall-
síma í verslunarleiðangurinn og kanna kostnað-
inn.
Byrjað er á því að velja hvaða vattastyrk á bera
saman, svo er kaupverðið slegið inn og að lokum
uppgefinn líftími á perunni. Þá fæst stofn- og
rekstrarkostnaður á ljóstíma.
Á vefsíðu Jóhanns Ólafssonar ehf, olafsson.is,
umboðs Osram-ljósapera, er reiknivél sem byggð
er á útreikningum Orkuseturs. Fréttablaðið fékk
uppgefið verð hjá Byko í Kópavogi í gær á þremur
tegundum Osram-pera, Halogen Eco dimman-
legri peru, flúor sparperu og LED-peru. Stofn- og
rekstrarkostnaður sparperunnar og LED-perunn-
ar á ljóstíma er svipaður en kostnaður Halogen
Eco-perunnar á ljóstíma er rúmlega tvöfaldur
miðað við hinar perurnar.
Fram kemur á vefsíðu umboðsins að ljósmagn
LED-pera og sparpera minnki meira á endingar-
tíma þeirra en ljósmagn tiltölulega stöðugra gló-
pera og halógenpera. Þess vegna kveði löggjöf á
um að fyrrnefndu perurnar verði að hafa meira
ljósmagn í upphafi til að geta talist samsvarandi
valkostur. Jafnframt er bent á að ólíkar peru-
gerðir þurfi mjög mismunandi mikið rafmagn til
að gefa sama ljósmagn. Því sé réttara að gefa til
kynna ljósmagn í lúmenum, lm. Einingin sé skil-
greind sem allt það ljós sem ljósgjafi gefi í allar
áttir. Þannig megi auðveldlega bera saman birt-
umagn mismunandi pera.
„Það sem skiptir máli þegar pera er valin er að
skoða ljósmagnið. 60W glópera var til dæmis 710
lúmen,“ segir Aðalsteinn Richter, sölumaður á fyr-
irtækjasviði hjá Jóhanni Ólafssyni.
Það hversu „hlýtt“ eða „kalt“ ljós er veltur á
litahitastiginu og er mælt í Kelvin-gráðum. Hlýr
hvítur litur venjulegrar ljósaperu svarar til 2.700
Kelvin-gráða. Kaldari litir eru yfir þessu hitastigi.
ibs@frettabladid.is
Kostnaður borinn saman með appi
Nú er hægt að fara með snjallsíma í verslunarleiðangur til að skoða stofn- og rekstrarkostnað á ljóstíma pera. Appið fæst endurgjaldslaust
hjá Orkusetri. Ljósmagn ljósapera er nú gefið upp í lúmenum. Auðveldlega er hægt að bera saman birtumagn mismunandi pera.
GERÐ GLÓPERA HALOGEN ECO SPARPERA/FLÚOR LED PERA
Heiti peru Halogen Eco 46W Dulux Value 15W 827 Led superstar classic
A60 advanced 10W
Wött 60W (710 lm*) 46W (700 lm*) 14W (840 lm*) 12W (820 lm*)
Einingarverð 360 kr 850 kr. 3.990 kr.
Ending 1.000 klst. 2.000 klst. 6.000 klst. 20.000 klst.
Stofn- og rekstrarkostnaður á ljóstíma 0,77 kr/klst. 0,32 kr/klst. 0,35kr/klst.
*lm: lúmen
➜ Kostnaður borinn saman í ljóstímavél
Matvælastofnun hefur fengið
upplýsingar frá Heilbrigðis-
eftirliti Reykjavíkur um van-
merktar vörur á markaði.
Vegna mistaka var nýr
merkimiði settur á vörurnar
án þess að geta þess að hveiti
væri eitt af innihaldsefn-
unum. Á vef Matvælastofn-
unar segir að um sé að ræða
Beikonbollur frá Sláturfélagi
Suðurlands og Cordon Bleu
frá Sláturfélagi Suðurlands.
Vörurnar voru eingöngu
seldar hjá Stórkaupum í
Faxafeni í Reykjavík.
Vanmerktur óþolsvaldur
í kjötvörum
Tæplega 43 prósent af þeim fjórtán fisk-
búðum sem Neytendastofa heimsótti
í september síðastliðnum voru ekki
með löggiltar vogir. Fiskbúðirnar sem
um ræðir voru Hafrún, Litla fisk-
búðin, Hafið, Fiskbúðin Vegamót,
Fylgifiskar og Fiskbúðin Höfða-
bakka, að því er kemur fram á vef
Neytendastofu. Tekið er fram að
verslanirnar verði að koma þessu í
lag til að neytendur geti verið vissir
um að þeir séu að greiða fyrir rétta vigt.
Einnig kom fram að verðmerkingar voru í
ólagi í 28 prósentum tilvika. Verðmerkingar voru ekki í
lagi hjá Fylgifiskum, Fiskbúðinni Hafberg, Gallerý Fiski og
Fiskbúðinni Höfðabakka.
Löggilding voga
í fi skbúðum í ólagi
www.volkswagen.is
Volkswagen Caddy
Caddy er áreiðanlegur, sparneytinn og þægilegur
í allri umgengni. Lipur vinnuþjarkur með frábæra
aksturseiginleika og ríkulegan staðalbúnað.
Hann er fáanlegur með bensín-, dísil- og metan-
vélum frá framleiðanda.
*Miðað við Caddy TSI bensín, 86 hestöfl, beinskiptur.
Aukahlutir á mynd, álfelgur og þokuljós.
Góður
vinnufélagi
Atvinnubílar
Til afgreiðslu strax
Fæst einnig fjórhjóladrifinn
Caddy* kostar aðeins frá
3.090.000 kr.
(2.462.151 kr. án vsk)