Fréttablaðið - 24.10.2013, Blaðsíða 20
24. október 2013 FIMMTUDAGUR| FRÉTTIR VIÐSKIPTI | 20
Sænski hagfræðingurinn Axel Lei-
jonhufvud er staddur hér á landi
þar sem hann heldur meðal annars
erindi í fyrirlestrasal Þjóðminja-
safnsins í hádeginu í dag. Fyrir-
lesturinn er í boði Samtaka fjár-
festa og Hagfræðideildar HÍ.
Leijonhufvud er prófessor
emeritus við UCLA og háskólann í
Trento á Ítalíu og hefur allt frá því
á sjöunda áratugnum skrifað um
margvísleg málefni, meðal annars
hvernig oftrú á getu markaða til að
leiðrétta sveiflur getur leitt til mis-
taka í hagstjórn.
Yfirskrift fyrirlestursins í dag
er „Efnahagskreppan og kreppa
hagvísinda“.
„Þú veist nú sennilega hvað átt
er við með efnahagskreppunni, en
kreppan sem hagvísindin eru í er
annað mál. Þegar kreppan reið yfir
voru þær kenningar sem ríktu í
hagfræði ansi erfið módel sem tóku
fjármálamarkaði alls ekki með
í reikninginn. Þau íhuguðu ekki
óstöðugleikann sem var falinn í
þeim. Þau voru algjörlega ófær um
að eiga við kreppuna, skilja hana
eða hjálpa á nokkurn hátt.“
Leijonhufvud segir að hagvísind-
in hafi verið í stöðugri þróun þar
sem ríkjandi kenningar skiptust á.
„En eftir að kreppan skall á
komumst við að því að þessi þróun
hafði teymt okkur til Hvergi-
lands.“
Spurður hvort hagfræðingar
hafi verið ófærir um að spá fyrir
um það sem verða vildi í aðdrag-
anda kreppunnar segist Leijon-
hufvud ekki vera mikið fyrir
vangaveltur og spár sem slíkar.
„Mér finnst vafasamt að leggja
of mikið upp úr slíku, en punkt-
urinn er að við gátum ekki séð að
allur fjármálastrúktúrinn var að
vaxa og líkurnar á alvarlegum
óstöðugleika voru að aukast.“
Regluverki var létt af fjármála-
mörkuðum á níunda áratugnum
en Leijonhufvud segir að vanda-
málið hafi meðal annars falist í
því að eftirlitskerfið, sem hafði
verið við lýði frá fjórða áratugn-
um, laut að fjármálamarkaði síns
tíma og reiknaði ekki með margs
konar nýjungum sem höfðu komið
fram, til dæmis afleiðum.
„Gömlu reglurnar áttu að verja
okkur gegn áhlaupi á banka, en
það var mjög lítið um slíkt í þetta
skiptið.“
En hafa menn lært sína lexíu
af því sem gengið hefur á síðustu
fimm árin eftir að kreppan skall
á?
„Nei. Ég held ekki. Ég held
að fólk gangist ef til vill við því
að hafa haft rangt fyrir sér um
ákveðna hluti og þeim þurfi mögu-
lega að kippa í lag, en vandinn er
mun djúpstæðari en svo. Við þurf-
um að horfa á málið í stærra sam-
hengi.“
Leijonhufvud hélt líka fyrirlest-
Hafa ekki lært neina
lexíu af kreppunni
Sænski hagfræðingurinn Axel Leijonhufvud er staddur hér á landi þar sem hann
heldur meðal annars fyrirlestur í Þjóðminjasafninu í dag. Hann segir ríkjandi
kenningar hagvísindanna hafa reynst ófærar um að hjálpa til í efnahagskreppu.
Hér á Íslandi hefur mikið verið rætt um hvort krónan hafi verið
bjargvættur eða bölvun. Hvernig lítur þetta út fyrir þér?
„Ef þið hefðuð verið með evru áður en kreppan skall á hefðuð þið aldrei
lent í svona nokkru þar sem Seðlabanki Evrópu í Frankfurt hefði tekið í
taumana áður en bankakerfið ykkar blés út eins og raun bar vitni. Hins
vegar lentuð þið sannarlega í þessum hremmingum og í því tilfelli þjónaði
það ykkar hagsmunum að geta fellt gengi krónunnar.“
➜ Krónan hjálpaði úr því sem komið var
GAGNRÝNINN Axel Leijonhufvud vakti fyrst athygli með skrifum sínum á sjöunda
áratugnum. Hann deilir á ríkjandi kenningar í hagvísindum sem hafi ekki tekist að
eiga við efnahagskreppuna. FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL
Íslenskir lífeyrissjóðir eru stærsti
einstaki eigendahópurinn á hluta-
bréfamarkaðnum hér á landi. Þeir
eiga að minnsta kosti 30,3 prósent
af heildarvirði markaðarins, að
því er fram kom í Morgunkorni
Greiningar Íslandsbanka í gær.
„Eignarhlutur lífeyrissjóðanna
hefur einnig aukist mest frá árs-
byrjun eða um 4,4 prósentustig,“
segir í Morgunkorninu.
Þar segir einnig að erlendir aðil-
ar séu næst stærsti eigendahópur-
inn með 18,4 prósenta hlut af heild-
arvirði markaðarins. Sú staðreynd
skýrist að stærstum hluta af eign-
arhaldi þeirra í íslensku félögun-
um Össuri, Marel og Eimskipum.
Félögin eru öll hlutfallslega stór
miðað við heildarvirði íslenska
hlutabréfamarkaðarins.
„Ef hækkun markaðsvirðis ein-
stakra eigendahópa er skoðuð frá
ársbyrjun þá hefur virði eignar-
halds innlendra sjóða hækkað
mest en eign þeirra hefur aukist
um 76,5 prósent að markaðsvirði,“
segir í Morgunkorninu. -hg
Lífeyrissjóðirnir stærsti eigendahópurinn á íslenskum hlutabréfamarkaði:
Eiga þriðjung allra hlutabréfa
ur hjá Seðlabanka Íslands í gær
þar sem hann fjallaði um seðla-
banka, óstöðugleika og tekjudreif-
ingu.
„Flestir hagfræðingar sem
aðhyllast peningastefnu hafa verið
þjálfaðir til að líta framhjá tekju-
dreifingu. Þeir líta svo á að ef
verðbólga verður, þá muni skuld-
arar hagnast, og þegar verðhjöðn-
un verður þá muni lánardrottnar
njóta góðs af. Frá kreppu hefur
misskipting tekna hins vegar
aukist mikið. Ein af ástæðum
þess er hvernig kerfið hefur verið
rekið í Bandaríkjunum síðustu ár
þar sem fjárstreymi hefur verið
beint að bankageiranum, sérstak-
lega Wall Street, á meðan tekjur
almennra borgara hafa staðið í
stað. Það hefur ekki verið mikið
fjallað um það, en mér finnst þetta
vera stórmál.“
Leijonhufvud segir að þegar
kreppan skall á hafi bandaríska
ríkið dælt fjármunum inn í kerf-
ið, í formi neyðarlána til að bjarga
fyrirtækjum.
„Það var rétt að gera því að það
bjargaði miklu, en í framhaldinu
bauðst bönkum að taka lán á svo
gott sem engum vöxtum. Þar sem
þeim hugnaðist ekki að lána fyr-
irtækjum pening fjárfestu þeir í
ríkisskuldabréfum sem voru fyrst
með um fimm prósent vexti en sigu
síðar niður fyrir þrjú prósent. Svo
notuðu þeir afraksturinn til þess að
greiða neyðarlánin til baka og rík-
isstjórnin hrósar sjálfri sér fyrir
að hafa gert rétt. Reikningar bank-
anna segja hins vega aðra sögu og
nú eiga þeir gríðarlegar fjárhæðir
sem skattgreiðendur skulda þeim.
Þetta er eins og leikurinn með
skeljarnar og baunina þar sem pen-
ingar ríkisins eru færðir til.“
thorgils@frettabladid.is
KAUPHÖLLIN Útlendingar eiga næstflest
hlutabréf í Kauphöllinni. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Hagnaður stoðtækjaframleiðand-
ans Össurar nam þrettán millj-
ónum Bandaríkjadala, eða um 1,6
milljörðum íslenskra króna, á þriðja
ársfjórðungi. Þetta kom fram í til-
kynningu sem félagið sendi frá sér
í gær.
Hagnaðurinn jókst um 28 pró-
sentustig milli ára því hagnaður
þriðja ársfjórðungs 2012 var tíu
milljónir dala, eða 1,2 milljarðar
íslenskra króna.
Sala fyrirtækisins á ársfjórð-
ungnum nam 105 milljónum dala,
eða 12,7 milljörðum íslenskra
króna. - hg
Hagnaður jókst um 28% á milli ára á þriðja ársfjórðungi:
Össur hagnast um 1,6 milljarða
JÁKVÆÐ MERKI Jón Sigurðsson, forstjóri
Össurar, sagði í tilkynningu að niðurstöður
fjórðungsins sýndu góðan árangur og
sterkt sjóðstreymi. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
Miðasala fer fram á Miði.is og í síma 540-9800
Skráðu þig á póslistann okkar á www.jolagestir.is
MIÐASALA
HEFST
Í DAG KL. 10
GÓA OG FJARÐARKAUP
KYNNA MEÐ STOLTI
14. DESEMBER Í HÖLLINNI