Fréttablaðið - 24.10.2013, Blaðsíða 34
FÓLK|TÍSKA
Ég tók mér frí í eitt og hálft ár og notaði þann tíma til að gera ýmislegt skemmti-
legt,“ segir Sara María, fatahönn-
uður Forynju, en ný barnafata-
lína er væntanleg frá henni á
næstu dögum undir merkjum
Forynju.
Barnafatalínan samanstendur
af buxum og peysum, bolum,
pilsum, kjólum og samfestingum,
í afgerandi hressilegum litum
og með áþrykktu munstri sem
einkennir hönnun Söru Maríu.
Barnafötin höfðu lengi verið á
dagskrá en aldrei hafði unnist
tími til að sinna þeim, segir Sara.
„Gegnum árin hafði ég gert
eina og eina barnaflík og langaði
alltaf til að gera meira. Í fríinu
gat ég spólað til baka, laus við
stressið sem fylgdi því að fram-
leiða einungis það sem bráðvant-
aði í búðina og gert það sem mig
langaði til að gera,“ segir Sara.
„Þá fór ég að gera barnafötin. Ég
er að vinna í línunni á fullu þessa
dagana. Peysurnar eru komnar
í sölu og svo fer þetta allt í gang
eftir helgina.“
Sara nýtti fríið til fleiri hluta
en hönnunar barnafatalínunnar.
Hún hannar einnig heimilislínu
undir merkjum Forynju og í
henni eru meðal annars flauels-
púðar, viskustykki og borðtuskur
með áprentuðum myndum sem
Sara tók sjálf.
Þá hefur Sara María einnig
bæst í hóp hönnuðanna í Kirsu-
berjatrénu og í dag klukkan 17
verður opnuð samsýning hennar
og Kolbrúnar Ýrar fatahönn-
uðar, þar sem Sara sýnir glænýja
silkikjóla.
„Við Elva Ósk Ólafsdóttir leik-
kona höfum verið að vinna sam-
an silkikjóla með áprentuðum
myndum sem Elva tók sjálf. Hún
hefur alltaf haft mikinn áhuga
á hafinu og myndirnar eru af
ígulkerum og fleiru sem tengist
sjónum. Kolbrún sýnir nýjustu
hálsmenalínu sína, Elsk. Það eru
því margir skemmtilegir hlutir í
gangi núna, sem er æðislegt. Ég
er mjög spennt.“
■ heida@365.is
FORYNJA FYRIR BÖRN
ÍSLENSK HÖNNUN Ný barnafatalína og heimilislína eru væntanlegar frá Söru
Maríu Forynju á næstu dögum. Þær urðu til þegar hönnuðurinn tók sér lang-
þráð frí. Í dag opnar Sara María sýningu á silkikjólum í Kirsuberjatrénu.
SAMSTARF Sara María Júlíudóttir Forynja og Elva Ósk Ólafsdóttir leikkona hafa hann-
að silkikjóla með handþrykktum myndum eftir Elvu Ósk. Kjólarnir verða sýndir á sam-
sýningu Söru Maríu og Kolbrúnar Ýrar fatahönnuðar í Kirsuberjatrénu, í dag klukkan 17.
„Munstrið heitir Houndstooth og er
rótgróið í tískuheiminum. Ég rakst á
það á hatti í búðinni og sá að það yrði
gaman að stækka það upp og betrekkja
undirgöngin með því,“ segir Harrý
Jóhannsson, listamaðurinn á bak við
hressilega veggskreytingu við Lauga-
veg 34.
Verkið vann hann fyrir Verslun Guð-
steins nú í haust en hann er einnig höf-
undurinn að baki bindishnúta-leiðbein-
ingunum á gafli hússins sem löngu eru
orðnar rótgrónar í hugum vegfarenda
um Laugaveginn. Svo rótgrónar að
mörgum finnst eins og þær séu jafn-
gamlar húsinu.
„Ég lenti meira að segja í hálfgerðu
rifrildi við mann, eldri en ég, sem stóð
á því fastar en fótunum að myndirnar
hefðu verið þarna frá því hann var
pjakkur. Ég tek því sem svo að þær hafi
tekist vel,“ segir Harrý hlæjandi.
„Sá veggur var skotmark veggjakrot-
ara og ég gerði myndirnar fyrir Svövu
í Guðsteini, eftir að hafa fylgst með
henni mála vegginn aftur og aftur, dag
eftir dag. Hann hefur fengið að vera
nokkurn veginn í friði síðan,“ segir
hann.
Hundstannarmunstrið í göngunum
er í vinnslu segir Harrý og verður klár-
að í vor. Litina í munstrið valdi hann
út frá litum hússins og notaði pensil í
stað úðabrúsa.
„Ég ákvað að mála munstrið á vegg-
ina en ekki spreyja, þannig verður það
frekar partur af húsinu með tímanum,
finnst mér,“ segir hann og er nokkuð
ánægður með útkomuna. „Ég hafði
mjög gaman af þessu. Það er líka svo
frábært að þessi næstum hundrað
ára gamla búð á Laugaveginum standi
fyrir svona skemmtilegheitum í mið-
bænum.“
■ rat
HUNDSTÖNNIN Í UNDIRGÖNGUM
Aldagamalt skoskt vefnaðarmunstur hefur verið útfært á undirgöng í miðbæn-
um í hressilegum litum.
LÍFGAR UPP Á
LAUGAVEGINN
Harrý Jóhannsson er
listamaðurinn á bak
við veggskreytinguna
á Laugavegi 34. Hann
vann hana upp úr
aldagömlu skosku
vefnaðarmunstri.
MYND/GVA
Stærðir: 40 - 47
Verð: 16.985.-
Stærðir: 41 - 48
Verð: 16.985.-
Vandaðir þýskir
herraskór úr leðri,
skinnfóðraðir. Stórar stærðir
Opið Mánudag-Föstudag
Frá klukkan 10:00 - 18:00
og laugardaga: 10 - 14
Stærðir: 40 - 47
Verð: 16.985.-
Stærðir: 41 - 48
Verð: 16.985.-
Bæjarlind 6 • S. 554 7030
www.rita.is
Við erum á Facebook
Síðar
skyrtur
frá
str. 36-58
(stórar stærðir)
Litir:
fjólublátt, svart
Save the Children á Íslandi
Þú færð Blaðberann þinn í
Skaftahlíð 24 alla virka daga
frá kl. 9-17.
...góðar fréttir fyrir umhverfið
Blaðberinn...
Blaðberinn
bíður þín