Fréttablaðið - 24.10.2013, Page 66
24. október 2013 FIMMTUDAGUR| SPORT | 54
FÓTBOLTI Íslenska karlalandsliðið
mætir Króatíu í tveimur leikjum
um laust sæti á heimsmeistara-
mótinu í Brasilíu næsta sumar.
Leikið verður í Reykjavík 15.
nóvember og í Zagreb 19. nóvem-
ber. Nýr þjálfari, Niko Kovac,
stýrir Króötum í fyrsta skipti í
leikjunum tveimur en miklar vonir
eru bundnar við hann.
„Þótt hann sé byrjandi var hann
leiðtogi sem leikmaður, sannur
fyrirliði og elskaður og dáður,“
segir króatíski íþróttafréttamað-
urinn Aleksandar Holiga. Kovac
spilaði 83 landsleiki fyrir þjóð sína
og var í lykilhlutverki með liðinu á
HM 2002 og 2006 auk EM 2004 og
2008. Hann lagði skóna á hilluna
vorið 2009.
Kovac var ráðinn eftir að frá-
farandi þjálfari og annar fyrr-
verandi landsliðsmaður, Igor Sti-
mac, bauðst til að segja starfi
sínu lausu. Liðið vann ekki sigur
í fjórum síðustu leikjunum í und-
ankeppninni og tapaði í tvígang
fyrir Skotum. Holiga segir Stimac
bera ábyrgð á slæmu gengi liðsins
en sagan sé flóknari en það.
Stimac hafi upphaflega ætlað
sér forsetastól knattspyrnusam-
bandsins. Zdravko Mamic, forseti
Dinamo Zagreb og valdamesti
maðurinn í króatískri knatt-
spyrnu, hafi hins vegar séð til þess
að Stimac fengi þjálfarastöðuna í
staðinn.
„Hann fékk Stimac í starf-
ið þótt hann væri reynslulaus.
Það reitti almenning til reiði og
skapaði slæman anda í kringum
landsliðið,“ segir Holiga. Til að
byrja með hafi úrslitin verið góð
og gefið Stimac andrými þrátt
fyrir slæmt andrúmsloft. Almenn-
ingur hafi þó smám saman snúist
gegn liðinu, fjölmiðlar gagnrýndu
hann harðlega og áhorfendum
fækkaði. Þeir sem mættu á leik-
ina nýttu tækifærið og mótmæltu
störfum Stimac og Mamic harð-
lega. Að undankeppninni lokinni
hafi ekki annað komið til greina
en að Stimac hætti.
„Hefði Stimac verið áfram við
stjórnvölinn hefði ég umhugs-
unarlaust spáð Íslandi sigri í
umspilinu. Ekki aðeins sigri held-
ur hefði vörninni okkar verið slátr-
að,“ segir Holiga. Léttir hafi verið
fyrir Króata að sleppa við að mæta
Frökkum og Svíum. Meiri bjart-
sýni ríki með nýjum þjálfara og
verði allt eðlilegt muni Króatía
klára Ísland.
Kovac stýrði 21 árs landsliði
þjóðarinnar í skamman tíma áður
en hann var kallaður til að bjarga
karlalandsliðinu. Þótt leikirn-
ir hafi aðeins verið fimm skilaði
Kovac fimm sigrum og markatal-
an var 16-0.
„Leikmennirnir hafa flestir spil-
að með honum í landsliðinu. Þeir
bera mikla virðingu fyrir honum
eins og nánast allir í Króatíu,“
segir Holiga. Ólíklegt er að honum
takist að gjörbreyta spilamennsk-
unni á augabragði en hann bæti
andann og fái menn til að vinna
saman.
„Það er ekki nokkur maður í
heiminum betur til þess fallinn á
þessari stundu en Niko Kovac.“
kolbeinntumi@frettabladid.is
Hefði spáð íslenskum
sigri í síðustu viku
Slæmt gengi Króata á seinni stigum undankeppni var fyrst og fremst þjálfar-
anum Igor Stimac að kenna. Áhugi almennings á liðinu er lítill í augnablikinu.
FÓTBOLTI „Ég er samningslaus
og er að skoða mín mál,“ segir
markadrottningin Margrét Lára
Viðarsdóttir. Framherjanum
hefur gengið vel með Kristian-
stad á tímabilinu sem er nýlokið í
Svíþjóð. Margrét Lára skoraði 13
mörk í deildinni og hafnaði í þriðja
til fjórða sæti á lista yfir marka-
hæstu leikmenn.
„Það hefur náttúrulega gengið
nokkuð vel hjá mér enda margir
gríðarlega sterkir sóknarmenn í
þessari deild,“ segir Eyjamærin
sem hefur spilað aftar á vellinum
í ár en hún hefur átt að venjast.
„Mér finnst þetta skemmtileg
staða. Hún hentar mér vel miðað
við leikstílinn hjá Kristianstad,“
segir Margrét Lára sem hefur spil-
að fyrir aftan fremsta leikmann
liðsins. Hún geti vel hugsað sér að
spila þessa stöðu í framhaldinu.
„Maður gerir mikið af því að
lesa hreyfingar andstæðingsins og
nýta sér svæði sem skapast.“
Hún segir árangur sinn gefa til
kynna að hún sé á réttri leið eftir
að hafa glímt við erfið meiðsli í
fimm ár. Hún telur sig eiga mikið
inni.
„Ég er rosalega ánægð með að
vera komin af stað og árið hefur
verið gleðilegt. Að geta æft á
hverjum degi er eitthvað sem ég
hef ekki getað í fimm ár. Auk þess
hef ég spilað nánast allar mínút-
urnar með félagsliði mínu,“ segir
Margrét Lára.
Markahæsti leikmaður A-lands-
liðsins frá upphafi, með 70 mörk
í 93 leikjum, verður í eldlínunni
með landsliðinu sem mætir Serbíu
ytra 31. október. Óvíst er hvort hún
verði áfram hjá Kristianstad. Hún
muni gefa sér tíma til að skoða sín
mál.
„Hvort ég spila áfram með
Kristianstad á næstu leiktíð er
óljóst. Ég ætla að gefa mér tíma
til að skoða mín mál. Það liggur
ekkert á.“ -ktd
Óvissa um framtíð Margrétar
Markahæsti leikmaður kvennalandsliðsins er í skýjunum eft ir vel heppnað ár.
GLEÐI Margrét Lára getur horft bros-
andi á vel heppnað tímabil sem lýkur í
Serbíu í næstu viku. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
ÍÞRÓTTIR Bæjarstjórn Kópa-
vogs samþykkti á fundi sínum
í gær að semja við íþróttafélög-
in HK og Breiðablik um hvar
starfsemi þeirra eigi að vera
í framtíðinni. Óvissa hefur
verið um hvar mörkin liggja.
Samkomulagið kveður á
um að HK verði áfram með
starfsemi í Fagralundi og í Digra-
nesi en áherslan í starfinu færist í
auknu mæli upp í Kór. „Framtíð-
armynd okkar er sú að nýtt hjarta
félagsins verði byggt upp í Kórn-
um en verður þó áfram til staðar
í Fagralundi og í Digranesi,“
segir Sigurjón Sigurðsson, for-
maður HK, í samtali við Kópa-
vogsfréttir.
Breiðablik verður eftir sem
áður með aðstöðu í Smáranum,
Fífunni, Salavelli og á Kópa-
vogsvelli. „Þessi ákvörðun er
mikilvægur áfangi í viðræð-
um sem staðið hafa yfir í meira en
hálfan áratug um rekstur íþrótta-
mannvirkja og ákveðna verka-
skiptingu félaganna,“ segir Orri
Hlöðversson, formaður Breiða-
bliks við kfrettir.is. - óój
Söguleg sátt á milli
Breiðabliks og HK
Miðjan og sóknin góð en vörnin hæg
Luka Modric, miðjumaður
Real Madrid, og Mario
Madzukic, framherji
Bayern München, eru
lykilmennirnir í lands-
liði Króata að mati
Holiga.
„Modric er arkítekt-
inn á miðjunni.
Stimac lét hann
spila of aftarlega
enda þráaðist
hann við að
nota djúpan
miðju-
mann,“ segir
blaðamaðurinn um Modric.
Madzukic sé algjört dýr,
með gríðarlega vinnusemi
og þol sem erfitt sé að
ráða við.
„Miðverðirnir okkar
eru ekki lélegir leik-
menn en vörnin
í heild sinni er
hæg. Við höfum
nógu mikil gæði
í öllum stöðum
en spurningin
er hvernig
liðið mun smella
saman.“
ÞRÍR GÓÐIR Niko Kovac, fyrir miðju, ásamt Lars Lagerbäck og Didier Deschamps, þjálfara Frakka, við dráttinn í umspilið á
mánudaginn. NORDICPHOTOS/GETTY