Fréttablaðið - 31.10.2013, Side 2
31. október 2013 FIMMTUDAGUR| FRÉTTIR | 2
SPURNING DAGSINS
GÆÐAVÖRUR FYRIR
BÍLINN Á GÓÐU VERÐI!
Landsins mesta úrval bílavara
ÞURRKUBLÖÐ
Í flestar gerðir fólks- og atvinnubifreiða.
Gæði, reynsla og gott verð!
REYKJAVÍK, Bíldshöfða 9, Funahöfða 13
KÓPAVOGUR, Smiðjuvegi 4a, græn gata
HAFNARFJÖRÐUR, Dalshrauni 17
REYKJANESBÆR, Krossmóa 4, SELFOSS, Hrísmýri 7
AKUREYRI, Furuvöllum 15, EGILSSTAÐIR, Lyngás 13
www.bilanaust.is
EX
PO
-
w
w
w
.ex
po
.is
VERSLANIR
SJÖ
MEÐ MIKIÐ
VÖRUÚRVAL
HAFNARFJÖRÐUR „Við töldum ekki tíma-
bært að fara í úthlutun á þessu svæði,“
segir Rósa Guðbjartsdóttir, oddviti
Sjálfstæðisflokksins í Hafnarfirði, en
aðeins einni lóð hefur verið úthlutað í
Skarðshlíð nærri Völlunum í Hafnar-
firði, en úthlutun hófst fyrir nokkrum
vikum.
Fréttablaðið greindi frá því þegar
úthlutunin hófst og bentu sjálfstæðis-
menn þá á áhugaleysi á úthlutun lóða.
Um er að ræða 56 einbýlishúsalóðir, tvö
parhús, ellefu raðhúsalóðir og sjö fjöleignarhús sem standa
áhugasömum til boða. Byggðin muni í heild rúma um tvö
þúsund íbúa en nú er einungis um fjórðungur lóðanna laus
til umsóknar.
Rósa segir mikilvægt að bæta vegtengingar inn og út úr
Vallasvæðinu og Skarðshlíð og segist efins um að bæjar-
félagið hafi sem stendur efni á uppbyggingu á þjónustu í
nýju hverfi. „Eins og staðan er núna eru ekki forsendur
fyrir því. Áherslan ætti að vera á að klára frágang í öðrum
hverfum bæjarins og bæta vegtengingar að nýjustu íbúða-
og atvinnusvæðunum,“ segir Rósa. - vg
Úthlutun á lóðum í Skarðshlíð í Hafnarfirði gengur hægt fyrir sig:
Aðeins ein lóð seld í Skarðshlíð
UPPBYGGING Oddviti Sjálfstæðisflokksins í Hafnar-
firði segir Hafnarfjörð ekki hafa efni á uppbyggingu á
þjónustu í Skarðshlíð. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
DÓMSMÁL Héraðsdómur Norður-
lands eystra hefur dæmt Guðmund
Frey Magnússon, 33 ára Siglfirð-
ing, í þriggja ára fangelsi fyrir rán
í janúar í fyrra. Guðmundur á sér
langa brotasögu.
Í þetta sinnið er hann dæmdur
fyrir að hafa slegið bræður, fædda
1990 og 1994, og hótað þeim öðru
ofbeldi ef þeir greiddu ekki skuld
sem hann taldi hafa myndast þegar
fíkniefnasending misfórst. Vitni að
málinu segir hann meðal annars
hafa hótað nauðgunum.
Hann tók af þeim fartölvu og
síma sem sá yngri hafði fengið í
jólagjöf frá ömmu sinni. Þremur
vikum síðar komu bræðurnir í fylgd
ömmunnar á lögreglustöð og kærðu
ránið.
Guðmundur
er með fjölda
dóma á bakinu,
meðal annars einn
þriggja og hálfs árs
fangelsisdóm frá
2007 fyrir tilraun til
ráns, fjársvik, brennu,
nytjastuld og þjófnað. Þá fékk hann
í febrúar hálfs árs dóm í Danmörku
fyrir líkamsárás. Eftirstöðvar þess-
ara dóma eru nú dæmdar upp.
Í dómnum kemur fram að Guð-
mundur Freyr hafi tekið sig á, gert
raunhæfa tilraun til að vinna bug á
fíkniefnamisnotkun sinni og hlýtt
ráðum heimilislæknis varðandi líf-
erni og bindindi. - sh
Rúmlega þrítugur Siglfirðingur dæmdur í þriggja ára fangelsi fyrir rán:
Hótaði nauðgunum við rukkun
RÓSA
GUÐBJARTSDÓTTIR
Pétur, er þetta heitasta
sýningin í dag?
„Já, það brenna allir í skinninu.“
Pétur Eggerz flytur nú einleik um ævi séra
Jóns Steingrímssonar, eldklerksins sem
sagður er hafa stöðvað hraunrennsli frá
Skaftáreldum.
FARTÖLVA Guðmundur
rændi meðal annars
fartölvu af bræðrunum.
STJÓRNSÝSLA Fjármögnunarleið
félags- og tryggingamálaráðuneyt-
isins um byggingu íbúða fyrir geð-
fatlaða á Húsavík reyndist ófær.
Norðurþing leitaði svara og þrýsti
á lausn málsins í á annað ár.
Í bókun bæjarráðs Norðurþings
á þriðjudag er málið reifað, en það
fjallar um fjármögnun á byggingu
þriggja íbúða
undir merkj -
um leigufélags-
ins Pálsreits ehf.
Þar segir frá því
að sveitarfélagið
sat uppi með yfir-
dráttarlán fyrir
byggingarkostn-
aði þar sem ekki
reyndist tækni-
lega mögulegt að fá lán frá Íbúða-
lánasjóði eins og tillaga ráðuneyt-
isins og útreikningar Fasteigna
ríkisins gerðu ráð fyrir.
Eins kemur fram að sveitarfélagið
reyndi ítrekað, og árangurslaust, að
fá svör frá ráðuneytinu [velferðar-
ráðuneytinu] vegna forsendubrests
um fjármögnun verkefnisins. Eins
að leitað var til fjárlaganefndar
Alþingis um tafarlaust uppgjör, sem
og til þingmanna kjördæmisins til að
þrýsta á lausn í málinu.
Bergur Elías Ágústsson, bæj-
arstjóri Norðurþings, segir hins
vegar að eftir að bæjarráð álykt-
aði hafi honum borist þær fréttir
að umrædd reglugerð væri komin í
gegn og því væntanlega ekkert því
til fyrirstöðu að fjármögnun verk-
efnisins ljúki í gegnum Íbúðalána-
sjóð.
„Þetta er hins vegar mál sem
allir harma og það sem eftir stendur
er að menn sjái til þess að sveitar-
félagið bíði ekki tjón af þeirri stöðu
sem kom upp. Ég hef ekki trú á öðru
en menn nái sáttum í því,“ segir
Bergur Elías og vísar til þess að
sveitarfélagið hefur þegar greitt á
elleftu milljón af 40 milljóna króna
yfirdrætti vegna fjármögnunar
íbúðanna þriggja.
Þegar Bergur er spurður álits á
því að ráðuneyti og Fasteignir rík-
isins teikni upp fjármögnunarleið
verkefnis af þessari stærðargráðu
sem ekki er fær, verður fátt um
svör. „Ég velti þessu fyrir mér líka
en þetta er bagalegt,“ segir Bergur.
Í bókun bæjarráðs Norðurþings
stendur að rétt sé að koma því á
framfæri að starfsmenn ráðuneyt-
isins hafi harmað stöðuna í sam-
skiptum við sveitarfélagið.
Embættismenn innan velferðar-
ráðuneytisins, sem komu að gerð
samningsins, vikust undan því að
skýra handvömm ráðuneytisins
þegar haft var samband við þá í
gær. svavar@frettabladid.is
Handvömm leiðrétt
eftir 18 mánaða bið
Fjármögnunarleið ráðuneytis um byggingu íbúða fyrir geðfatlaða á Húsavík
reyndist ófær. Norðurþing þrýsti á svör og úrlausn mála í á annað ár. Bæjarstjóri
vonar að sveitarfélagið fái ellefu milljóna króna kostnað vegna málsins greiddan.
SÆTTIR Bergur Elías Ágústsson, bæjarstjóri Norðurþings, segir mikilvægt að ná
sáttum í málinu. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
BERGUR ELÍAS
ÁGÚSTSSON
■ Þann 22. desember 2010 var skrifað undir samkomulag um fjármögnun
og byggingu íbúða fyrir geðfatlaða á Húsavík. Samningurinn var að til-
stuðlan og tillögum ráðuneytisins.
■ Ráðuneytið skyldi leggja fram 20 milljóna stofnframlag og 40 milljóna
eftirstöðvar framkvæmdakostnaðar yrðu fjármagnaðar með lántöku frá
Íbúðalánasjóði.
■ Stofnað var sérstakt leigufélag, í eigu sveitarfélagsins, um bygginguna og
framkvæmdir hafnar í samræmi við samninginn.
■ Um mitt ár 2012 var framkvæmdum lokið og umsóknarferli sveitar-
félagsins hófst hjá Íbúðalánasjóði.
■ Lánveitingin reyndist ekki möguleg þar sem reglugerð vantaði.
■ Í eitt og hálft ár fékk sveitarfélagð engin svör um hvað yrði.
■ Reglugerðin mun vera gengin í gegn. Eftir situr sveitarfélagið með 11
milljóna króna skuld af yfirdrætti vegna framkvæmdarinnar.
Lög og reglur gerðu ekki ráð fyrir láninu
Í HÉRAÐSDÓMI Maðurinn vafði sig inn í dúnúlpu til að forðast myndatökur.
MYND/STÖÐ 2
LÖGREGLUMÁL Þrítugur Lithái var í Héraðsdómi Reykjaness í gær
úrskurðaður í gæsluvarðhald til 13. nóvember, grunaður um að hafa
ætlað að smygla til landsins nokkur hundruð millilítrum af amfetamín-
basa í rauðvínsflösku á þriðjudag.
Maðurinn, sem var að koma frá Ósló, braut flöskuna þegar hann var
færður í leitarherbergi í Leifsstöð, með þeim afleiðingum að flytja þurfti
fjóra tollverði og rannsóknarlögreglumenn á bráðadeild með eitrunar-
einkenni. Gæsluvarðhaldið hefur verið kært til Hæstaréttar. - sh
Kærir gæsluvarðhaldsúrskurð héraðsdóms til Hæstaréttar:
Basasmyglarinn í gæsluvarðhald
VÍSINDI Ætla má að vísindastarf-
semi við Háskóla Íslands, HÍ,
skapi á fjórða milljarð króna í
beinar gjaldeyristekjur á ári.
Þetta skrifar Kristín Ingólfs-
dóttir, rektor Háskóla Íslands, í
aðsendri grein í Fréttablaðinu í
dag.
Hún segir vísindamenn við
háskólann afla um 1,8 milljarða
króna á ári úr alþjóðlegum sam-
keppnissjóðum sem komi inn í
íslenska hagkerfið sem gjaldeyr-
istekjur. Auk þessara fjármuna
komi svipuð fjárhæð í erlendum
gjaldeyri inn í landið vegna þátt-
töku vísindamanna HÍ í verkefn-
um annarra innlendra stofnana
og fyrirtækja.
- ibs / sjá síðu 25
Rektor varar við niðurskurði:
Vísindin skapa
gjaldeyristekjur
DÓMSMÁL Héraðsdómur Reykja-
víkur dæmdi í gær hálffimm-
tugan karlmann í níu mánaða
fangelsi fyrir árás á fyrrverandi
unnustu sína á heimili hennar í
september í fyrra.
Maðurinn, sem er með langa
brotasögu, meðal annars fyrir
líkamsárásir, er dæmdur fyrir
að ráðast á hana þar sem hún lá
í rúmi og á gólfi svefnherbergis
síns, setjast klofvega yfir hana og
slá hana ítrekað í höfuð og víðar
og sparka í líkama hennar.
Hún hlaut áverka víðs vegar á
líkamanum, meðal annars togn-
aði hún í vinstri hendi og fékk
mar á brjóstkassa og vinstri síðu.
Maðurinn hafði áður áreitt kon-
una linnulítið með símtölum. - sh
Margdæmdur fær 9 mánuði:
Fyrrverandi
unnusti lúbarði
UTANRÍKISMÁL Verði af fríverslun-
ar- og fjárfestingasamningi Evr-
ópusambandsins og Bandaríkjanna
verða áhrif af því jákvæð á Evr-
ópska efnahagssvæðinu. Um þetta
voru norrænir viðskiptaráðherrar
sammála á fundi í Ósló í gær.
Gunnar Bragi Sveinsson utan-
ríkisráðherra sótti fundinn. Á
vef ráðuneytisins kemur fram að
lagt hafi verið til að Norðurlöndin
skoði hvernig þau geti í samein-
ingu farið í markaðsátak á stórum
og vaxandi mörkuðum. - óká
Ráðherrar hittust í Ósló:
Ræddu ávinn-
ing af fríverslun