Fréttablaðið - 31.10.2013, Blaðsíða 43

Fréttablaðið - 31.10.2013, Blaðsíða 43
KYNNING − AUGLÝSING Úlpur & yfirhafnir31. OKTÓBER 2013 FIMMTUDAGUR 3 Heitustu trendin í yfirhöfnum í vetur eru meðal annars „boyfriend-kápur“, víðar og þægilegar en samt sem áður kvenlegar á sinn hátt. Því síðari sem kápurnar eru því betri,“ segir Stella Björt Gunnarsdóttir, verslunarstjóri í Top Shop í Smáralind. „Feldir eru líka mikið inn núna, ýmist með löngum hárum eða snöggum og einnig loðkrag- ar á jökkum, hvort sem jakkarnir eru þykkir eða ekki. Sniðin eru kvenleg. Aðsniðnir loðjakkar með kraga hafa ekki tíðkast fram að þessu en eru sjóð- heitir núna í vetur, sem og biker-jakkar með gróf- um rennilásum. Grófir rennilásar koma líka mjög fallega út á ullarjökkum.“ Stella segir enga ástæðu til þess að klæðast svörtu þótt farið sé að dimma, eins og Íslendingum hættir gjarnan til. Köflótt sé með því vinsælasta í vetur og pastellitir einnig. „Íslenskar konur þurfa alls ekki að vera hræddar við pastellitina, þeir fara mjög vel við hvítan snjó,“ segir Stella hlæjandi og vill alls ekki að sparikáp- urnar séu látnar hanga inni í skáp. „Það á endilega að nota fínar kápur hversdags því það má auðveldlega tóna þær niður með rétt- um fatnaði. Svo er líka skemmtilegt að eiga nokkr- ar yfirhafnir til skiptanna en við leggjum áherslu á gott verð og á heitustu tískustraumana hverju sinni. Það er skemmtilegt að að geta keypt sér nýja yfir- höfn á hverju ári og úrvalið er mikið í öllum búð- unum. Við fáum til dæmis yfir fimmtán gerðir yfirhafna í Warehouse og yfir þrjátíu gerðir í Top shop. Úrval stærða er einnig mikið en Evans er með stærðir frá 14 og upp í 30/32 og í Dorothy Perkins fara stærðirn- ar frá 8 og upp í 22. Það geta allir fundið eitthvað við sitt hæfi.“ Heitustu tískustefnur í vetur Stella Björt Gunnarsdóttir, verslunarstjóri í Topshop í Smáralind, segir víðar og síðar ullarkápur í pastellitum meðal þess sem heitast verður í vetur. Tilvalið sé að eiga nokkrar yfirhafnir til skiptanna og nota sparikápurnar hversdags líka. Úlpa með kraga Klassísk, síð úlpa með fallegu tíglamynstri og loð- kraga sem hægt er að taka af. 15.995 krónur. Jakki Jakkinn er úr 100 prósent bómull og með vaxáferð og því að mestu leyti vatnsheldur. Tilval- inn fyrir íslenska veðráttu. 17.995 krónur. Köflótt kápa Ef þú ætlar að kaupa köfl- ótta kápu er gott að kaupa hana í hlutlausum lit svo kápan passi við sem flest í fataskápnum. Þessi fallega kápa er úr ullarblöndu og sniðið er vítt sem gerir hana mjög þægilega. Einstaklega kvenleg og klassísk. 24.990 krónur. Grá kápa Falleg, síð kápa með biker- sniði. Kraginn er bæði úr feldi og leðri sem gerir hann einkar skemmti- legan. 25.990 krónur. Bleik kápa Hin fullkomna pastelkápa. Kápan er úr ullarblöndu og er því mjög hlý. Verð 26.990 krónur. Feldur Jakkinn er svartur með bláum glans sem gefur honum skemmtilegt yfirbragð. Hann er hægt að nota við fínni tilefni og jafnvel hversdags við gallabuxur og grófa skó. Fullkominn í fataskáp- inn fyrir veturinn. Verð 18.995 krónur. Svartur biker-jakki Gróf flík en samt fínleg. Rennilásinn og leðurröndin eru skemmtileg smáatriði. Verð 15.995 krónur. Stella Björt, verslunarstjóri í Topshop í Smáralind, segir pastelliti vinsæla í vetur. MYND/VALLI Græn úlpa Úlpan er loðfóðruð og með stórum loðkraga á hettu. Hægt er að taka loðkragann af og allt loðið innan úr henni og þá ertu komin með léttan sumarjakka. Frábær lausn fyrir þær sem vilja praktískari flíkur. 24.990 krónur.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.