Fréttablaðið - 31.10.2013, Page 43
KYNNING − AUGLÝSING Úlpur & yfirhafnir31. OKTÓBER 2013 FIMMTUDAGUR 3
Heitustu trendin í yfirhöfnum í vetur eru meðal annars „boyfriend-kápur“, víðar og þægilegar en samt sem áður kvenlegar á
sinn hátt. Því síðari sem kápurnar eru því betri,“
segir Stella Björt Gunnarsdóttir, verslunarstjóri í
Top Shop í Smáralind.
„Feldir eru líka mikið inn núna, ýmist með
löngum hárum eða snöggum og einnig loðkrag-
ar á jökkum, hvort sem jakkarnir eru þykkir eða
ekki. Sniðin eru kvenleg. Aðsniðnir loðjakkar með
kraga hafa ekki tíðkast fram að þessu en eru sjóð-
heitir núna í vetur, sem og biker-jakkar með gróf-
um rennilásum. Grófir rennilásar koma líka mjög
fallega út á ullarjökkum.“
Stella segir enga ástæðu til þess að klæðast
svörtu þótt farið sé að dimma, eins og Íslendingum
hættir gjarnan til. Köflótt sé með því vinsælasta í
vetur og pastellitir einnig.
„Íslenskar konur þurfa alls ekki að vera hræddar
við pastellitina, þeir fara mjög vel við hvítan snjó,“
segir Stella hlæjandi og vill alls ekki að sparikáp-
urnar séu látnar hanga inni í skáp.
„Það á endilega að nota fínar kápur hversdags
því það má auðveldlega tóna þær niður með rétt-
um fatnaði. Svo er líka skemmtilegt að eiga nokkr-
ar yfirhafnir til skiptanna en við leggjum áherslu á
gott verð og á heitustu tískustraumana hverju sinni.
Það er skemmtilegt að að geta keypt sér nýja yfir-
höfn á hverju ári og úrvalið er mikið í öllum búð-
unum.
Við fáum til dæmis yfir fimmtán gerðir yfirhafna
í Warehouse og yfir þrjátíu gerðir í Top shop. Úrval
stærða er einnig mikið en Evans er með stærðir frá
14 og upp í 30/32 og í Dorothy Perkins fara stærðirn-
ar frá 8 og upp í 22. Það geta allir fundið eitthvað við
sitt hæfi.“
Heitustu tískustefnur í vetur
Stella Björt Gunnarsdóttir, verslunarstjóri í Topshop í Smáralind, segir víðar og síðar ullarkápur í pastellitum meðal þess sem
heitast verður í vetur. Tilvalið sé að eiga nokkrar yfirhafnir til skiptanna og nota sparikápurnar hversdags líka.
Úlpa með kraga
Klassísk, síð úlpa með fallegu tíglamynstri og loð-
kraga sem hægt er að taka af. 15.995 krónur.
Jakki
Jakkinn er úr 100
prósent bómull og
með vaxáferð og
því að mestu leyti
vatnsheldur. Tilval-
inn fyrir íslenska
veðráttu. 17.995
krónur.
Köflótt kápa
Ef þú ætlar að kaupa köfl-
ótta kápu er gott að kaupa
hana í hlutlausum lit svo
kápan passi við sem flest í
fataskápnum. Þessi fallega
kápa er úr ullarblöndu og
sniðið er vítt sem gerir
hana mjög þægilega.
Einstaklega kvenleg og
klassísk. 24.990 krónur.
Grá kápa
Falleg, síð kápa með biker-
sniði. Kraginn er bæði úr
feldi og leðri sem gerir
hann einkar skemmti-
legan. 25.990 krónur.
Bleik kápa
Hin fullkomna
pastelkápa. Kápan er
úr ullarblöndu og er
því mjög hlý. Verð
26.990 krónur.
Feldur
Jakkinn er svartur með
bláum glans sem gefur
honum skemmtilegt
yfirbragð. Hann er hægt
að nota við fínni tilefni
og jafnvel hversdags við
gallabuxur og grófa skó.
Fullkominn í fataskáp-
inn fyrir veturinn. Verð
18.995 krónur.
Svartur
biker-jakki
Gróf flík en samt
fínleg. Rennilásinn
og leðurröndin
eru skemmtileg
smáatriði. Verð
15.995 krónur.
Stella Björt, verslunarstjóri í Topshop í Smáralind, segir pastelliti vinsæla í vetur. MYND/VALLI
Græn úlpa
Úlpan er loðfóðruð og
með stórum loðkraga á
hettu. Hægt er að taka
loðkragann af og allt
loðið innan úr henni
og þá ertu komin með
léttan sumarjakka.
Frábær lausn fyrir þær
sem vilja praktískari
flíkur. 24.990 krónur.