Fréttablaðið - 31.10.2013, Blaðsíða 16
31. október 2013 FIMMTUDAGUR| FRÉTTIR FJÖLSKYLDAN | 16
„Það er jafn mikilvægt að læra
félagsfærni og stærðfræði og
sund.“ segir Harpa María Örlygs-
dóttir, iðjuþjálfi og íþróttakennari,
sem starfar á Æfingastöðinni sem
Styrktarfélag lamaðra og fatlaðra á
og rekur.
Harpa segir of mikið um að börn
eigi í erfiðleikum með félagsleg
samskipti. „Það getur valdið þeim
mikilli vanlíðan og haft heilmikil
áhrif á fjölskyldur þeirra og dag-
legt líf. Börn með slaka félagsfærni
eru oft vinafá, með lítið sjálfstraust
og upplifa litla leikgleði. Ég held að
einelti geti að miklu leyti stafað af
skorti á félagsfærni hjá bæði ger-
endum og þolendum.“
Flest börn læra félagsfærni af
foreldrum, systkinum, kennur-
um, vinum og ættingjum, að sögn
Hörpu. „Þau læra sjálfkrafa við-
urkennda hegðun og eru ekkert
að spá í þær óskrifuðu reglur sem
fylgja því að vera þátttakandi í
samfélaginu. Önnur börn eiga erf-
iðara með að læra þessa hegðun og
sýna því oftar óæskilega hegðun í
samskiptum. Þau þurfa því beina
kennslu og þjálfun í félagsfærni,“
segir Harpa.
Hún tekur það fram að ekki sé
hægt að ætlast til að öll börn læri
félagsfærni af því einu að umgang-
ast annað fólk. „Það væri eins og
að kenna barni að synda með því
að kasta því í djúpu laugina. Það er
margt sem hefur áhrif á getu barna
til að læra félagsfærni, svo sem
menningarmunur, fjölskylduhagir,
persónueiginleikar og meðfæddar
raskanir.“
Á Æfingastöðinni eru haldin
námskeið í félagsfærni fyrir börn
frá fimm ára aldri til 14 ára. Flest
börnin sem koma þangað eru með
einhver frávik, að sögn Hörpu.
„Reynslan af því að þjálfa börn
í gegnum leik er góð. Mikilvægi
leiks er oft vanmetið. Börnin læra
að skiptast á, fylgja fyrirmælum og
reglum, tjá sig í hóp, taka tillit til
annarra, einbeita sér, leysa verkefni
og ágreining og sýna samkennd, svo
eitthvað sé nefnt.“
Harpa segir fátt betra en að sjá
glöð og ánægð börn. „Þar er hrósið
stærsta vopnið enda hefur það verið
kallað vítamín sálarinnar. Foreldrar,
kennarar, iðjuþjálfar og annað fag-
fólk þarf að halda áfram að vinna
saman til að stuðla að auknum lífs-
gæðum barna.“ ibs@frettabladid.is
Reynslan
af því að þjálfa
börn í gegnum
leik er góð.
Harpa María Örlygs-
dóttir,
iðjuþjálfi og íþrótta-
kennari
Það getur liðið mánuður frá uppskeru þar til ávext-
ir og grænmeti komast í hendur neytenda. Á því
tímabili tapast mörg næringarefni. Tapið verður
minna sé varan fryst fljótt eftir uppskeru. Í grein
í Daily Mail segir að ferskt sé ekki alltaf best.
Þar er vitnað í rannsókn breskra vísindamanna
sem báru saman næringargildi grænmetis og
ávaxta sem höfðu verið í ísskáp í þrjá daga við
næringargildi sams konar matvæla í frysti.
Meira C-vítamín, lútein og betakarótín
reyndist vera í frystu spergilkáli en í fersku. Í fersku spergilkáli var
hins vegar meira magn pólýfenóla. Meira magn var af andoxunarefn-
um og vítamínum í frystum bláberjum en ferskum. Við rannsókn á
frystum og ferskum hindberjum fannst ekki munur á magni næringar-
efna. Aðferðir framleiðenda við frystingu eru misjafnar og mögulega
er greint frá því á umbúðum hvernig meðferð ávextirnir og grænmetið
hafa fengið.
Meira C-vítamín í frystu spergilkáli
Þriggja ára börn mæðra sem neytt höfðu verkjalyfs-
ins paracetamols lengur en í 28 daga á meðgöngu voru
með atferlisvanda og minni færni í grófhreyfingum en
samanburðarhópur. Þetta eru niðurstöður rannsóknar
vísindamanna við Háskólann í Ósló í Noregi.
Á heimasíðu háskólans er haft eftir Ragnhild Eek
Brandlistuen að faraldsfræðilegar rannsóknir eins og
þessi segi til um fylgni en ekki sé sýnt fram á beint
orsakasamband. Um sé að ræða fyrstu rannsókn-
ina í heimi sem sýni þessar niðurstöður og þörf sé á
frekari rannsóknum. Hún hvetur til hóflegrar neyslu
paracetamols á meðgöngu eins og annarra verkja-
lyfja. Paracetamol eigi áfram að vera fyrsti valkostur
sé þörf á verkjalyfi stöku sinnum. Greint er frá því að
samsvarandi langtímaáhrif á börn hafi ekki fundist
vegna notkunar ibuprofens.
Vísindamennirnir báru saman tæplega þrjú þúsund
börn sem höfðu fengið paracetamol í móðurkviði við
systkin af sama kyni sem ekki höfðu fengið verkja-
lyfið.
Niðurstöður rannsóknar vísindamanna við Háskólann í Ósló:
Paracetamol getur skaðað fóstur
MEÐGANGA Konur taka oft paracetamol við höfuðverk, bak-
verkjum, hita og grindargliðnun. NORDICPHOTOS/GETTY
Gott er
fyrir fjölskyld-
una að upp-
götva netið
sameiginlega.
Reynið að
finna vefsíður sem eru bæði
spennandi og skemmtilegar og
við hæfi barna. Gerið sam-
komulag við börnin um
hvernig fara á með persónu-
legar upplýsingar og hvernig
koma á fram við aðra á netinu.
Hrefna Sigurjónsdóttir,
framkvæmdastjóri Heimilis og skóla.
Fjórar skólahljómsveit-
ir eru í Reykjavík og
þótt talsvert sé liðið á
haust önn er enn hægt að
byrja sé laust pláss í við-
komandi skóla, að sögn
Vilborgar Jónsdóttur,
hljómsveitarstjóra Skóla-
hljómsveitar Austur-
bæjar. „Ég geri ekki ráð
fyrir að greiða þurfi
fyrir haust önnina ef nemandi byrjar núna. Ef byrjað er eftir áramót þá
er greitt hálft gjald,“ segir hún. Í skólahljómsveitum er kennt á öll helstu
málm- og tréblásturshljóðfæri auk slagverkshljóðfæra. Hægt er að leigja
hljóðfæri hjá sveitunum. Gjald fyrir báðar annir er 25.000 kr. samkvæmt
upplýsingum á vef Reykjavíkur. Hljóðfæraleiga er 7.500 kr. Hægt er að
nýta frístundakortið til að greiða skólagjöld.
Skólahljómsveitir í Reykjavík
Iðjuþjálfar kenna
börnum félagsfærni
Slök félagsfærni getur leitt til eineltis, að mati iðjuþjálfa. Of mikið er um að börn eigi
í erfiðleikum með samskipti. Góð reynsla er af því að þjálfa félagsfærni með leik.
Á SKÓLALÓÐ Börn með slaka
félagsfærni eru oft vinafá og
upplifa litla leikgleði.
FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Miðasala fer fram á Miði.is og í síma 540-9800
Fylgstu með okkur á www.jolagestir.is
AUKATÓNLEIKAR
KL 16. KOMNIR Í SÖLU
UPPSELT Á 10 MÍNÚTUM!
.
!
GÓA OG FJARÐARKAUP
KYNNA MEÐ STOLTI
14. DESEMBER Í HÖLLINNI
Við þökkum
ótrúlegar viðtökur!