Fréttablaðið - 31.10.2013, Blaðsíða 46
KYNNING − AUGLÝSINGÚlpur & yfirhafnir FIMMTUDAGUR 31. OKTÓBER 20136
Þegar forsetahjónin fóru um Fjarðabyggð nýlega vakti athygli hversu
hlýlega Dorrit var klædd. Á Stöðvarfirði var hún í
mjúkri, hvítri úlpu með skinnkraga á hettu en
undir klæddist hún bleikri blússu með perlur
um hálsinn. Dorrit vekur gjarnan athygli fyrir
smekklegan klæðaburð og sú var einnig
raunin í Fjarðabyggð. Samkvæmt Aust-
urfrétt heimsóttu þau hjónin grunn-
skóla og ræddu við börnin sem sýndu
þeim ómældan áhuga, eða eins og segir í
blaðinu; „Stöðfirðingar buðu upp á klein-
ur og ástarpunga sem virtust falla frú
Dorrit vel í geð. „Dorrit er alltaf að halda
að mér heilsufæði á Bessastöðum.
Hún bannar mér að borða pönnukök-
ur og þess háttar,“ hefur blaðið eftir
forsetanum.
Hér eru nokkrar myndir af forseta-
frúnni í mismunandi yfirhöfnum.
Klæðist
eftir veðri
Forsetafrúin Dorrit Moussaieff kann að klæðast
eftir tilefninu, hvort sem það er í konunglegri veislu
eða í íslenskri sveit. Hún á hlýjar og fallegar úlpur,
margar íslenskar.
Dorrit á Stöðvarfirði í fallegri, hvítri úlpu með skinnkraga. MYND/AUSTURFRÉTT
Dorrit og Madelaine Lloyd-Webber koma
til veislu í Lundúnum. Dorrit í pels.
Dorrit Moussaieff í fallegri skinnkápu í
heimsókn í Skagafirði. Hún bregður oftar
en ekki á leik með börnum þar sem hún
kemur.
Desemberkuldi og Dorrit er hlýlega klædd.
HANNAÐ FYRIR HERINN
Gerviefnið PrimaLoft hefur rutt
sér rækilega til rúms í útivistar-
geiranum en það er notað til
einangrunar í útivistarfatnað,
svo sem úlpur, vettlinga, skó og
svefnpoka.
Efnið er einnig notaði í heimilis-
geiranum, til dæmis í púða og
sem efsta lag í rúmdýnur. Þá er
einnig búið að þróa PrimaLoft-
þráð eða garn þar sem efnið er
spunnið saman við merínóull. Úr
PrimaLoft-garninu eru prjónaðir
sokkar, peysur og fleira, ætlað til
útvistar.
Þó PrimaLoft hafi orðið þekkt í
fataskápum fólks á allra síðustu
árum teygir saga PrimaLoft sig
aftur til ársins 1983.
Bandaríski herinn fékk textíl-
fyrirtækið Albany, sem síðar fékk
nafnið PrimaLoft, til að hanna
fyrir sig efni, léttara en gæsadún,
sem átti að nota til einangrunar í
herfatnað og annan búnað.
Efnið yrði að búa yfir sömu ein-
angrunareiginleikum og dúnninn,
bæði í raka og þurrki, hrinda frá
sér vatni og síðast en
ekki síst mátti lítið
sem ekkert fara
fyrir því.
Þremur árum síðar
varð til efni sem fyrst
var kallað Synthetic
down eða gervidúnn
áður en það fékk
skrásetta vöruheitið
PrimaLoft. Árið 1989 var fram-
leidd fyrsta flíkin sem einangruð
var með þessu nýja efni.
heimild: Wikipedia.org
Dorrit í
rauðri úlpu í
vetrarveislu í
Lundúnum.
Byrjaðu strax að spara. Skráðu kortin ykkar
núna á www.stod2.is/vild
GÓÐ TÍÐINDI FYRIR
ÁSKRIFENDUR
F
ÍT
O
N
/
S
ÍA
F
ÍT
O
N
Ríflega 25% afsláttur af miðum á fyrstu 10 sýningar MÝS OG MENN.
Afsláttarverð 3.500 kr. Fullt verð 4.750 kr.
N
/
S
ÍA
AFSLÁTTUR
25
30% afsláttur af þriggja mána
ða
baðstofu- og heilsuræktarkor
ti
eða af stökum tíma.
AFSLÁTTUR30
í Náttúrulækningabúðinni
Garn frá Tinnu og Ístex
Kynningarafsláttur af garni, prjónum,
smávörum og blöðum.
Ábendingahnappinn má
finna á www.barnaheill.is