Fréttablaðið - 31.10.2013, Blaðsíða 74
31. október 2013 FIMMTUDAGUR| MENNING | 54
Chipolo eru litlir merkimiðar með útvarpsbylgjur sem maður bindur
á smáhluti á borð við lykla og veski, jafnvel gæludýr. Snjallsímar geta
svo staðsett hlutina þína í gegnum Bluetooth á Chipolo-appi. Þannig
þarftu aldrei aftur að týna húslyklum.
Verkefnið safnar nú fjármagni á vefsíðunni Kickstarter, en söfnunin
hefur gengið vonum framar. Búist er við Chipolo á markað innan nokk-
urra vikna.
Chipolo-miðana er hægt að fá í öllum regnbogans litum. Þeir eru með
rafhlöðu sem á að duga í allt að sex mánuði. Chipolo verður aðgengilegt
fyrir bæði iPhone og Android-stýrikerfi. - ósk
Finnur veski og lykla
Chipolo fi nnur hlutina þína í gegnum snjallsímann.
CHIPOLO Á myndinni má sjá appelsínugulan Chipolo-miða sem búið er að hengja
á fartölvu.
? Sæl, Sigga Dögg, mig langar að leggja fyrir þig eftirfar-
andi álitamál varðandi kynlíf eldri
borgara: Konur missa oft löngun
til kynlífs upp úr miðjum aldri
og fá jafnvel andúð á samförum
þegar á líður. Á sama tíma halda
karlmenn oft bæði þörf og þrótti
og löngunin oft enn til staðar þótt
þrótturinn minnki. Spurning mín
er þessi, á eiginmaðurinn að bæla
löngun sína og sætta sig við orðinn
hlut eða á hann að kaupa þjónustu
hjá nuddstofum? Þriðji kosturinn,
að leita eftir skyndikynnum, er
ekki mjög aðgengilegur fyrir eldri
borgara.
● ● ●
SVAR Þetta er virkilega áhugaverð
spurning og eflaust hægt að ræða
hana tímum saman þar sem hver
viðmælandi hefði sína eigin skoð-
un en hér verðum við að láta mína
duga. Það er erfitt að fordæma
einn kost fram yfir annan því hvert
par verður að finna hvað hentar.
Einhverjum þætti það ágæt lausn
ef makinn leitaði annað eftir kyn-
lífi, hvort sem það er keypt þjón-
usta eða ekki. Nú er keypt þjón-
usta refsiverð á Íslandi og einnig
óeftirsóknarverður valkostur í
huga margra karlmanna sem ein-
hvers konar lausn, svo við skulum
útiloka þann valkost. Þá er senni-
legt að bæling komi heldur ekki til
greina þar sem löngun er jú löng-
un. Því stendur eftir útfærsla sem
hugnast báðum aðilum.
Ef ósamræmi er í löngun í sam-
bandi þá þarf að finna einhvers
konar jafnvægi svo báðir geti
lifað saman í sátt og samlyndi.
Sum pör stunda ekki samfarir en
stunda ýmsar gælur og geta þær
aukið nándina, rétt eins og sam-
farir. Kynlíf, kynlífsins vegna,
er ekki vænlegt til vinnings fyrir
hvorugan aðilann og því er þetta
spurning um útfærslu. Hvaða
leið notið þið til að rækta nánd í
ykkar sambandi? Stóra spurningin
er kannski sú hvort makinn sem
hefur enga löngun vilji lifa ein-
hvers konar kynlífi með maka
sínum? Eða sjálfum sér og vinna
bug á þessari andúð?
Sumir leyfa makanum að eiga
„vin/vinkonu“ sem er þá aðal-
lega kynferðislegt samband. Þá
má ekki gleymast að kynlöngun
er hægt að svala með sjálfsfró-
un en það sem stendur eftir er
allt hitt sem gerir kynlíf mikil-
vægt í samböndum; nándin, kúrið
og koddahjalið. Ef kynlíf er ekki
inni í myndinni þá þurfið þið að
koma ykkur saman um leið til að
rækta nándina, án kynlífs, en um
leið svala kynferðislegri útrás
makans. Þar sem þetta er stórt og
mikið álitamál þá myndi ég gjarn-
an vilja heyra báðar hliðar málsins
og því mæli ég með að hitta ráð-
gjafa. Þetta er ögn snúið og eiga
báðir aðilar rétt á sinni afstöðu en
mikilvægast er að finna leið til að
báðir séu sáttir.
Ólík kynlífslöngun –
snúið vandamál
SNÚIÐ MÁL Ólík kynlífslöngun í samböndum er snúið mál og eiga báðir aðilar rétt á sinni afstöðu, segir Sigga Dögg.
NORDICPHOTOS/GETTY
KYNLÍF TAKTU ÞÁTT!
Sendu Siggu Dögg póst og
segðu henni frá vandamáli
úr bólinu. Lausnin gæti
birst í Fréttablaðinu.
kynlif@frettabladid.is
www.sonycenter.is
Sony Center
Verslun Nýherja Borgartúni / 569 7700
Sony Center
Verslun Nýherja Kaupangi Akureyri / 569 7645 *3,5% lántökugjald og 330 kr. færslugjald á hvern gjalddaga
12 MÁNAÐA VAXTALAUS LÁN*
5 ÁRA ÁBYRGÐ FYLGIR ÖLLUM SJÓNVÖRPUM
Full HD 1920 x1080 punktar
200 Hz X-Reality myndvinnslukerfi
Multimedia HD link fyrir snjallsíma
Nettengjanlegt og innbyggt WiFi
Verð 259.990.-
GLÆSILEG HÖNNUN Á FRÁBÆRU VERÐI
50” 3D LED SJÓNVARP KDL50W656
50”
risi á frábæru verði
259.990.-
Stórt
Gott
Frábært verð
5 ára ábyrgð
„Börnin taka þessu ótrúlega vel og
það er alveg ótrúlegt hvað þau halda
athygli. Margir vanmeta athygli
barna og grunar ekki hversu vel
þau geta fylgst með,“ segir Tinna
Grétarsdóttir, höfundur dansverks-
ins Fetta bretta, sem hugsað er fyrir
börn frá sex mánaða aldri til fjög-
urra ára.
Fetta bretta er önnur sýning hóps-
ins Bíbí og blaka. Tinna skipar hóp-
inn ásamt Sólrúnu Sumarliðadótt-
ur, Guðnýju Sigurðardóttur, Ingu
Maren Rúnarsdóttur og Snædísi
Lilju Ingadóttur.
Þetta er annað dansverkið sem
hún semur en Skýjaborg, fyrsta
íslenska ungbarnadanssýningin, var
frumsýnt var í fyrra.
Sýningin er 25 mínútna löng og
eftir sýningar fá börnin að leika
sér í sviðsmyndinni sem er afar
litskrúðug og að mestu gerð úr
svampi.
„Það er afar sjaldgæft að börn
gráti á sýningum og við höfum
aldrei þurft að stoppa sýningu,“
bætir Tinna við um áhorfendurna.
Fetta bretta verður frumsýnt
þann 9. nóvember í Kúlunni í Þjóð-
leikhúsinu, en sama dag kemur
einnig út plata frá Sólrúnu með
tónlistinni úr báðum sýningunum.
- glp
Dansverk fyrir börn
Tinna Grétarsdóttir frumsýnir dansverk sem er ætlað
börnum á aldrinum sex mánaða til fj ögurra ára.
FYRIR UNGBÖRN Tinna Grétarsdóttir
er höfundur dansverksins Fetta bretta.
FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL