Fréttablaðið


Fréttablaðið - 31.10.2013, Qupperneq 4

Fréttablaðið - 31.10.2013, Qupperneq 4
31. október 2013 FIMMTUDAGUR| FRÉTTIR | 4 22 Íslendingar eru á nýjum lista yfir alþjóðleg bréfskákstig. Daði Örn Jónsson er hæstur þeirra með 2.519 ELO stig. Stigahæsti bréfskákmaður heims er hollenski stórmeistarinn Jopp J. Van Oosterom með 2.711 ELO stig. LEIÐRÉTT Ranghermt var í umfjöllun í Mark- aðnum í gær að skulda/EBITDA-hlutfall Mylluseturs, útgefanda Viðskipta- blaðsins, væri 2,9. Á félaginu hvíldu um áramót engar vaxtaberandi skuldir og því var hlutfallið þá -1,1. Félagið telst því í enn betri stöðu til að taka á sig skuldir, kjósi stjórnendur að fara þá leið. EFNAHAGSMÁL Verðmæti tíu þús- und króna seðla í umferð er þegar orðið meira en tvö þúsund króna seðla. Tíu þúsund króna seðlarn- ir voru teknir voru í notkun 24. þessa mánaðar, en Seðlabank- inn ákvað árið 2011 að láta ekki prenta fleiri tvö þúsund króna seðla heldur láta þá fjara út. Þetta kemur fram í svari Seðla- bankans við fyrirspurn á vefnum spyr.is um hvort borgi sig að búa til einnar og fimm krónu mynt og hvort sú mynt sé enn slegin. Fram kemur í svarinu að enn sé til mynt að verðmæti ein króna og fimm krónur sem bíði þess að fara í umferð. Engin ákvörðun hafi verið tekin um að hætta fram- leiðslu þeirra. Myntin sé þó til- tölulega dýr í framleiðslu miðað við nafnvirði hennar á meðan seðlar séu tiltölulega ódýrir í framleiðslu. „Myntin endist hins vegar mjög lengi og langstærsti hluti þeirrar myntar sem er í umferð var fram- leiddur þegar innkaupsverð krónu- peningsins og fimmkrónupenings- ins var undir nafnvirði þeirra,“ segir í svari Seðlabankans. Miðað við síðustu framleiðslu er sagt kosta nokkru meira að fram- leiða krónumynt en nafnverð- ið segir til um, en fimm krónu myntin komi út nokkurn veginn á sléttu. „Það kostaði um 29 krónur að prenta hvern tíu þúsund króna seðil sem nú er verið að setja í umferð, og síðast þegar fimm þúsund króna seðill var prentað- ur kostaði það um 18 krónur.“ - óká Seðlabankinn segir að ákveðið hafi verið að prenta ekki fleiri 2.000 króna seðla heldur láta þá fjara út: Tíu þúsund króna seðill kostar 29 krónur PENINGAR Langstærstur hluti af verðmæti seðla og myntar í umferð er í formi 5.000 króna seðla. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA Heimaey Landeyjahöfn Eyjafjallajökull Fernanda Surtsey Vel heppnuð björgunaraðgerð TF-GNA TF-LIF Björgunarskipið Þór og lóðsinn úr Vestmannaeyjum Varðskipið Þór ➜ Atburðarásin í gær Útkall berst Björgunarfélagi Vestmannaeyja. Björgunarskipið Þór lagði af stað frá Vestmannaeyjum. Lóðsinn úr Eyjum fór á vettvang. Þyrlan TF-GNA kemur á staðinn. Fyrsti skipverjinn hífður upp í þyrluna. Björgunarskipið Þór kemur á staðinn. Síðasti skipverjinn hífður upp í þyrluna. Allir komnir um borð í þyrluna. Varðskipið Þór leggur af stað frá Reykjavík. Þyrlan lendir með mennina á Reykjavíkurflugvelli. Varðskipið Þór kom á staðinn og hóf slökkvistörf. BRUNI Mannbjörg varð þegar flutningaskipið Fernanda varð alelda suður af landinu í gær. Þyrla Landhelgisgæslunnar náði að hífa ellefu manna áhöfn skips- ins um borð í þyrluna á 20 mín- útum. Mikill viðbúnaður var eftir að samband náðist við skipstjóra Fernanda. Skipið var þá orðið vélarvana og á svæðinu slæmt veður og haugasjór. Eldur hafði komið upp í vélarrúmi skipsins um hádegisbil og varð skipið nær alelda á stuttu tíma. Kallað- ar voru út tvær björgunarþyrlur, varpskipið Þór sett í viðbragðs- stöðu sem sigldi af stað stuttu síðar. Björgunarskip Landsbjarg- ar og Lóðsinn í Vestmannaeyjum héldu þegar úr höfn. Lent var með áhöfn skipsins á Reykjavíkurflugvelli á fjórða tímanum. Mennirnir, sem eru af nokkrum þjóðernum en allir rússneskumælandi, voru sótugir þegar neyðarhópur Rauða kross- ins tók á móti þeim í húsnæði félagsins í Efstaleiti. Sólveig Ólafsdóttir, upplýsinga- fulltrúi Rauða krossins, segir í viðtali við Fréttablaðið að menn- irnir, allir sem einn, hafi verið ótrúlega yfirvegaðir og afþökk- uðu bæði lyf og áfallahjálp við komuna. Þeir hafi hins vegar þegið hreinan fatnað með þökk- um, og tóku vel til matar síns af súpu, heitu kakói og smurðu brauði. Eimskip, sem er þjón- ustuaðili skipsins, sér áhöfninni fyrir hótelgistingu en skýrslutök- ur hefjast á morgun. „Við vorum á staðnum þangað til þyrlan var búin að taka alla mennina frá borði,“ sagði Eyþór Þórðarson, skipstjóri björgunar- skipsins Þórs. „Við biðum ef það skyldi eitthvað koma fyrir í milli- tíðinni. Það er alveg með ólíkind- um hvað það gekk vel að hífa þá upp. Þetta er það erfiðasta sem ég hef farið í, fjögurra metra ölduhæð og skipið valt mikið.“ Lóðsinn í Vestmannaeyjum var á staðnum í gærkvöldi við slökkvistarf; sprautaði sjó yfir skipið og virtist eldurinn vera í rénun. Varðskipið Þór tók við aðgerðum á vettvangi þegar skipið kom á staðinn undir kvöld. Landhelgisgæslan mun meta stöðuna að nýju nú í fyrramálið með Slökkvi- liði höfuðborgarsvæðisins og öðrum viðbragðsaðilum. Verða þá teknar ákvarðanir um framhaldið. svavar@frettabladid.is nanna@frettabladid.is Björguðu ellefu skipverjum Mannbjörg varð þegar flutningaskipið Fernanda varð alelda suður af landinu í gær. Þyrla var aðeins 23 mín- útur að hífa alla frá borði. Sjómennirnir sýndu mikið æðruleysi þrátt fyrir erfiða lífsreynslu í logandi skipinu. Sigurður Heiðar Wiium, flugstjóri á TF-GNA, segir að aðeins um 20 mínútur hafi tekið að hífa alla mennina ellefu um borð í þyrluna. „Þegar við komum á staðinn voru aðstæður nokkuð alvarlegar; eldtungur og reykur úr vélarrúmi og brú. Áhöfnin var öll komin út á dekk. Sigurður segir að sjómennirnir hafi verið hífðir tveir og tveir upp í þyrluna. „Á þessum mínútum sem við vorum við skipið fannst okkur eldurinn aukast. Þeir voru allir komnir með töskurnar sínar út á dekk en við urðum að neita þeim um að taka þær með sér. Allir voru þeir við góða heilsu en mér skildist á þeim að þeir væru nokkuð hræddir.“ Um borð í TF-GNA voru auk Sigurðar Brynhildur Bjartmarz flugstjóri, Guðmundur R. Magnússon sigmaður, í sinni fyrstu sjóbjörgun, Óskar Óskarsson spilmaður og læknirinn Hannes Petersen. - shá Biðu á dekkinu með töskurnar sínar Fernanda er 75 metrar að lengd og 2.500 brúttótonn. Skipið var sjósett árið 1981 og er skráð í Dóminíska lýðveldinu. Eva Dögg Sigurgeirsdóttir prýðir forsíðu Lífsins í þessari viku. Hún rekur tískuvefinn tíska.is og von er á hennar fyrstu tískubók fyrir jólin. Hrekkjavaka er haldin hátíðleg um helgina og munu förðunar- fræðingar NN Makeup School sýna hugmyndir að ógnvekjandi hrekkjavökuförðun. Ásta S. Einarsdóttir, fram- kvæmdastjóri Dr. Bragi í Lond- on, segir frá íslenskum vísind- um á bak við snyrtivörurnar en meðal viðskiptavina eru Beck- ham-fjölskyldan og leikkonan Sienna Miller. Nærfatalína fótboltakappans Cristianos Ronaldo er komin til Íslands. Þetta og meira til verður í Lífinu sem fylgir Fréttablaðinu á föstudögum. Lífið fylgir Fréttablaðinu á föstudögum LÍFIÐ Von er á fyrstu tískubók Evu Daggar Sigurgeirsdóttur fyrir jólin. AUGLÝSINGADEILDIR FRÉTTABLAÐSINS– AUGLÝSINGASTJÓRI: Jón Laufdal jonl@frettabladid.is ALMENNAR SÍMI 512-5401: Guðmundur Steinsson gudmundur@365.is, Hjördís Zoëga hjordis@frettabladid.is, Hlynur Þór Steingrímsson hlynur@365.is, Laila Awad laila@365.is, Sigríður Dagný Sigurbjörnsdóttir sigridurdagny@365.is, Örn Geirsson orn.geirsson@365.is FÓLK/LÍFIÐ/SÉRBLÖÐ SÍMI 512-5402: Atli Bergmann atli.bergmann@365.is, Bryndís Hauksdóttir bryndis@365.is, Ívar Örn Hansen ivarorn@365.is, Kolbeinn Kolbeinsson kolli@365.is, Sverrir Birgir Sverrisson sverrirbs@365.is FÓLK OG SÉRBLÖÐ EFNI: Sólveig Gísladóttir solveig@365.is og Vera Einarsdóttir vera@365.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 512-5403: Hrannar Helgason hrannar@365.is, Viðar Ingi Pétursson vip@365.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 512-5407: Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@365.is, Sigrún Helga Guðmundsdóttir sigrunh@365.is SVONA ERUM VIÐ Lifandi og aðgengileg umfjöllun um ástir Íslendinga að fornu – um rétt þeirra til að elska, makaval, hjónaskilnaði, frillulíf og ást á eigin kyni. Ingibjörg Karlsdóttir veðurfréttamaður Veðurspá Laugardagur Strekkingsvindur nokkuð víða. SNJÓKOMA EÐA SLYDDA NORÐANLANDS næstu daga og má búast við talsverðri úrkomu þar á morgun. Annað kvöld fer að snjóa eða slydda austanlands en svo dregur úr úrkomu á laugardag. Sunnanlands verður hins vegar nokkuð bjart næstu daga. 2° 15 m/s 2° 16 m/s 3° 5 m/s 6° 6 m/s Á morgun Strekkingur eða allhvasst norðan og vestan til, annars hægari vindur. Gildistími korta er um hádegi 1° -3° 2° -1° -1° Alicante Aþena Basel 22° 24° 16° Berlín Billund Frankfurt 11° 11° 11° Friedrichshafen Gautaborg Kaupmannahöfn 13° 11° 11° Las Palmas London Mallorca 24° 16° 22° New York Orlando Ósló 19° 29° 11° París San Francisco Stokkhólmur 13° 16° 9° 3° 4 m/s 4° 4 m/s 1° 4 m/s 3° 14 m/s 1° 6 m/s 1° 15 m/s -3° 5 m/s 2° -1° 2° 1° 0° Þetta er það erfiðasta sem ég hef farið í, fjögurra metra ölduhæð og skipið valt mikið. Eyþór Þórðarson Skipstjóri björgunarskipsins Þórs
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.