Fréttablaðið - 31.10.2013, Side 8

Fréttablaðið - 31.10.2013, Side 8
31. október 2013 FIMMTUDAGUR| FRÉTTIR | SAMKVÆMT BÓKSÖLU Í PENNANUM EYMUNDSSON UM LAND ALLT METSÖLULISTI EYMUNDSSON VIKAN 23.10.13 - 29.10.13 1 2Árleysi alda Bjarki Karlsson Maður sem heitir Ove Fredrik Backman 5 Iceland Small World - small ed. Sigurgeir Sigurjónsson 6 Við JóhannaJónína Leósdóttir 7 Grimmd Stefán Máni 8 Amma glæpon David Walliams 10 AndköfRagnar Jónsson9 Höndin Henning Mankell 4 Glæpurinn Ástarsaga Árni Þórarinsson3 MánasteinnSjón ÖRYGGISMÁL Íbúar við Breiðafjörð lýsa áhyggjum af veiðum síldar- báta uppi í harða landi. Skipstjóri segir veiðarnar gríðarlega erfið- ar og þær valdi miklu álagi á sjó- mennina. Hann segir að lítið megi út af bera. Símon Sturluson, sjómaður og bláskeljabóndi, gjörþekkir aðstæð- ur á Breiðafirði þar sem síldarskip- in hafa verið að veiðum og segir menn stunda rússneska rúllettu. Kastað sé á örgrunnu vatni þar sem svigrúm til veiðanna er lítið sem ekkert, örstutt frá landi. „Ég held að skipstjórunum sé stýrt úr landi, og þeir vilji ekki stunda veiðar við þessar aðstæður. Ég hef heyrt í fjölda manns, bæði í landi og á skipunum, og þeim finnst þetta fáránlegt,“ segir Símon sem á hagsmuna að gæta. Skipin eru í orðsins fyllstu merkingu að snúast í kringum kræklinga línur fyrir- tækisins Íslenskrar bláskeljar. Auk þess rær Símon á síld á litlum báti. „Það er auðvitað alvarlegast ef strandar þarna skip. Þá er allt ónýtt svo ég tali nú ekki um örninn og æðarfuglinn, svo fátt eitt sé nefnt.“ Skip HB Granda, Lundey NS, tók niðri við síldveiðar á Breiðafirði á sunnudag. Skipið losnaði eftir að sjó var dælt úr kjölfestutönkum þess. Skipverjar voru að undir- búa fyrsta kast veiðiferðarinnar og nefndu að það hefði verð lán í óláni að nótin var ekki komin í sjó- inn þegar skipið tók niðri. Arnþór Hjörleifsson, skipstjóri á Lundey, segir áhyggjur fólks eðli- legar þegar skipin séu „… farin að teygja sig upp á einn faðm til að kasta nótinni. Fyrir okkur er þetta hrikalegt álag, það er bara þannig. Það má ekkert gerast og þá erum við komnir þarna upp í fjöru.“ Heimamenn gera því skóna að ástæða sé til að banna veiðar síld- arbátanna á þeim stöðum sem eru varasamastir til að minnka hætt- una á slysum á Breiðafirði. Arn- þór segist vel skilja að menn séu að ræða þann möguleika. Spurður um hversu nærri landi menn fari tekur hann dæmi af eft- irlitsmanni sem kom í land af síld- arbáti á Grundarfirði. „Hann sagð- ist geta fullyrt að hann hefði getað stokkið í land með smá tilhlaupi á dekkinu,“ segir Arnþór. svavar@frettabladid.is Síldveiðum líkt við rússneska rúllettu Síldarbátarnir á Breiðafirði fara upp í harða land til að ná síldinni sem liggur afar grunnt. Heimamenn óttast hið versta; skipsstrand og umhverfisslys. Skipstjóri segir gríðarlegt álag fylgja veiðunum og tekur undir áhyggjur heimamanna. Á SÍLDVEIÐUM Hér er skipið Ásgrímur Halldórsson við veiðar á Breiðafirði fyrir skömmu og er sem skipið hafi fest landfestar í fjörunni. MYND/GUÐLAUG SIGURÐARDÓTTIR DÓMSMÁL Lýður Guðmundsson, fyrrverandi stjórnarformaður Existu, og Sigurður Valtýsson, sem var annar forstjóra félagsins, mættu ekki við fyrirtöku á máli sér- staks saksóknara gegn þeim í Hér- aðsdómi Reykjavíkur í gærmorgun. Til stóð að þingfesta ákæruna en verjendurnir Gestur Jónsson og Sigurmar K. Albertsson upplýstu að tvímenningarnir byggju báðir og störfuðu erlendis og hefðu ekki átt heimangengt. Þeir væru ekki vænt- anlegir til landsins fyrr en í síðari hluta nóvembermánaðar og fyrst þá gætu þeir mætt og tekið formlega afstöðu til ákæruatriðanna. Í málinu er Lýður ákærður fyrir umboðssvik og brot á hlutafélaga- lögum og Sigurður fyrir hið síðar- nefnda, vegna starfa þeirra sem stjórnarmenn í Vátryggingarfélagi Íslands (VÍS) á árinu 2008 og 2009. Samkvæmt ákærunni létu þeir VÍS lána hvor öðrum tugi milljóna út úr VÍS, auk þess sem Lýður lét VÍS bjarga félagi svila Sigurðar frá þroti. - sh Sakborningar í máli sérstaks saksóknara koma til landsins síðla í nóvember: Lýður og Sigurður mættu ekki VERJENDUR ÁN SAKBORNINGA Gest- ur og Sigurmar sögðu að skjólstæðingar þeirra væru væntanlegir frá útlöndum eftir nokkrar vikur. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI SKIPULAGSMÁL Ríkisútvarpið og Isavia leita nú lausna til að skipta út viðvörunarljósum á langbylgju mastrinu á Eiðum. „Sveitarfélagið og nágrannar mastursins hafa frá því viðvör- unarljósabúnaður var fyrst sett- ur upp í því kvartað mjög undan honum,“ minnir bæjarráð Fljóts- dalshéraðs á í tilefni bréfs RÚV þar sem upplýst er um stöðu mála vegna mastursins. Ljósagangin- um frá því hefur verið lýst sem krampakenndum og ofursterkum. Í bréfi RÚV segir að nú sé talið að ljósin hafi reynst of óáreiðan- leg við íslenskt veðurfar. Mark- miðið sé að finna áreiðanleg ljós sem ónáði ekki nágranna og þar sem flugöryggi sé ekki fórnað. „Bæjarráð gerir þá kröfu sem fyrr, að viðkomandi búnaður verði lagaður án tafar, eða honum skipt út, enda ástand hans búið að vera óásættanlegt um ára- raðir,“ undirstrika Héraðsbúar sem jafnframt ítreka óskir um að útvarpsstjóri komi til fundar við bæjaryfirvöld. - gar Ríkisútvarpið leitar nýrra ljósa fyrir umdeilt langbylgjumastur á Eiðum: Telja viðvörunarljós óáreiðanleg EIÐAR Biluð ljós í langbylgjumastri hrella Héraðsbúa. Fyrir okkur er þetta hrikalegt álag, það er bara þannig. Það má ekkert gerast og þá erum við komnir þarna upp í fjöru. Arnþór Hjörleifsson, skipstjóri á Lundey

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.