Fréttablaðið - 31.10.2013, Side 25
FIMMTUDAGUR 31. október 2013 | SKOÐUN | 25
Við Íslendingar byggjum
afkomu okkar og vel-
sæld á nýtingu auðlinda
og í vaxandi mæli á hug-
viti og þekkingariðnaði.
Þekking er grundvöllur
áframhaldandi aukinn-
ar verðmætasköpun-
ar, hvort sem litið er til
hefðbundinna atvinnu-
greina eða sköpunar
nýrra tækifæra.
Ríki og sveitarfélög,
sem halda utan um sam-
neyslu okkar, hafa orðið fyrir
miklum samdrætti í tekjum frá
hruni og verða að forgangsraða
verkefnum. Þá er mikilvægt að
tvö meginsjónarmið verði látin
ráða. Annars vegar að tryggja
lágmarksöryggi landsmanna
hvað varðar t.d. heilbrigðisþjón-
ustu, félagslegan stuðning og
löggæslu. Hins vegar að skapa
grundvöll til sóknar með því að
efla með öllum ráðum mennta-
kerfi og vísindastarfsemi. Það
er forsenda þess að unnt sé að
skapa aukin verðmæti.
Háskóli Íslands vinnur eftir
skýrum markmiðum um verð-
mætasköpun. Þau miða annars
vegar að menntun fólks til starfa
í öllum megingreinum atvinnu-
lífsins, þar með talið heil-
brigðisþjónustu, menntakerfi,
verkfræði- og tæknigreinum,
menningargreinum, stjórnun og
félagsþjónustu. Hins vegar er
meginmarkmið í starfi skólans
að efla þekkingar- og verðmæta-
sköpun gegnum vísindastarf.
Vísindi og verðmætasköpun
Eftir niðurskurð fjárveitinga
í kjölfar efnahagshruns, hefur
rekstri Háskóla Íslands verið
haldið innan ramma fjárlaga
með lækkun kostnaðar og
ströngu aðhaldi. Skólinn leggur
einnig mikla áherslu á að sækja
styrki úr samkeppnissjóðum til
að tryggja framgang vísinda-
starfs. Árangur þeirrar sóknar
byggist á markvissri uppbygg-
ingu rannsóknastarfs við skól-
ann undanfarin ár og áratugi.
Vísindamenn Háskóla Íslands
afla nú um 1,8 milljarða króna á
ári úr alþjóðlegum samkeppnis-
sjóðum, sem koma inn í íslenska
hagkerfið sem gjaldeyristekjur.
Styrkirnir eru notaðir til tækja-
kaupa, rekstrar og til að greiða
laun vegna nýrra starfa. Leið-
andi einstaklingar og hópar
innan skólans eru í sívaxandi
mæli gjaldgengir í þessari hörðu
alþjóðlegu samkeppni.
Meðal verkefna við HÍ sem
njóta erlendra styrkja má nefna
rannsóknir í eldfjallafræði o.fl.
greinum jarðvísinda, rannsóknir
á krabbameini og árangursrík-
ari lyfjagjöf, hugbúnaðarþróun
fyrir hópslysaáætlanir, rann-
sóknir á öryggi neysluvatns og
á sviðum fjarkönnunar, fisk-
veiðistjórnunar, fötlunarfræði,
nanótækni, stjórnmála-
fræði og leit að lyfjavirk-
um efnum í hafi. Rann-
sóknarstarfsemin skapar
þannig sjálf miklar
gjaldeyristekjur og verk-
efnin leiða í kjölfarið til
verðmætasköpunar á
mörgum sviðum atvinnu-
lífs.
Auk þessara fjármuna
kemur svipuð fjárhæð í
erlendum gjaldeyri inn
í landið vegna þátttöku
vísindamanna HÍ í verkefnum
annarra innlendra stofnana og
fyrirtækja. Þannig má ætla að
vísindastarfsemi við skólann
skapi á fjórða milljarð króna í
beinar gjaldeyristekjur.
Fjárhæðir rannsóknastyrkja
til HÍ úr innlendum samkeppn-
issjóðum eru mun lægri en úr
þeim erlendu. Þannig veitti
Rannsóknasjóður Vísinda- og
tækniráðs samtals 416 mkr. til
íslenska vísindasamfélagsins í
heild árið 2012. Hlutdeild vís-
indamanna HÍ var 315 mkr. Þótt
styrkirnir séu verulega lægri
en þeir erlendu, skipta þeir sköp-
um, ekki síst fyrir unga vís-
indamenn. Verkefnin eru styrkt
í harðri samkeppni og leiða til
nýrrar þekkingar. Oft eru þeir
grundvöllur þess að hægt sé að
sækja erlent styrktarfé.
Á síðasta ári voru veitt 5
einkaleyfi sem byggjast á rann-
sóknum vísindamanna HÍ. Þau
eru á sviðum lyfjafræði, augn-
læknisfræði, eðlisfræði, raf-
magns- og tölvuverkfræði og
fjarkönnunar. Einkaleyfi sem
þessi hafa leitt til stofnunar
tveggja sprotafyrirtækja á ári að
meðaltali undanfarin 5 ár. Velta
sprotafyrirtækja sem stofnuð
hafa verið á grunni rannsókna
starfsfólks og stúdenta við HÍ er
á annan milljarð króna og þau
veita 150 manns vinnu.
Útsæði í harðindum
Lykillinn að því að geta sótt sér
tekjur í harðri og vaxandi sam-
keppni er að geta styrkt innviði
– aðbúnað, mannafla, rekstrarfé.
Í fjárlagafrumvarpi 2014 er
gert ráð fyrir niðurskurði fjár-
veitinga til HÍ sjötta árið í röð.
Á sama tíma hefur nemendum
fjölgað verulega og samkvæmt
frumvarpinu vantar fjárfram-
lag vegna 350 nemenda sem
stunda fullt nám, eða um 200
mkr. Skrásetningargjöld sem
stúdentar greiða verða hækkuð,
en einungis hluti hækkunarinn-
ar skilar sér til skólans, eða 39
mkr. af 180 mkr. Þessu verð-
ur að breyta. Ennfremur mun
skerðing framlaga til samkeppn-
issjóða Vísinda- og tækniráðs
hafa veruleg áhrif á starf skól-
ans af ástæðum sem raktar eru
hér að ofan.
Þegar kartöfluuppskera brást
á Írlandi á 19. öld neyddust Írar
til að borða útsæði næsta árs.
Fyrir vikið leiddi uppskeru-
bresturinn til langvarandi hung-
ursneyðar og fólksflótta.
Þegar harðnar á dalnum er
mikilvægt að horfast í augu við
kaldan veruleikann eins og hann
blasir við. En það er jafn mikil-
vægt að hugsa fyrir morgundeg-
inum og skynja þau tækifæri
sem eru til að vinna sig út úr
þröngri stöðu. Við megum ekki
ganga svo nærri háskólastarf-
inu að við borðum útsæðið sem
á að skapa okkur framtíðarvið-
urværi.
Borðum ekki útsæðið
VÍSINDI
Kristín
Ingólfsdóttir
rektor Háskóla
Íslands
➜ Lykillinn að því að geta
sótt sér tekjur í harðri og
vaxandi samkeppni er að
geta styrkt innviði – aðbún-
að, mannafl a, rekstrarfé.
Vernda ekki
vitni sitt
Merkilegt er, að Angela
Merkel, Þýzkaland og önnur ríki
Evrópusambandsins skuli ekki
þakka Edward Snowden. Hann
veitti upplýsingarnar, sem gera
þessum aðilum kleift að senda
Bandaríkjastjórn tóninn. Angela
Merkel, Þýzkaland og önnur ríki
Evrópusambandsins hafa ekki
veitt Snowden hæli í þakkar-
skyni. Það sýnir vel hræsnina í
þessu. Snowden er nógu góður
til að segja þeim fréttir og til
að bera vitni. En er ekki nógu
góður til að njóta vitnaverndar.
Væri ég Angela Merkel, mundi
ég halda kjafti, þangað til ég
væri búinn að koma Snowden
í gott skjól. Heimur stjórnmála
er heimur hræsni og yfirdreps-
skapar.
http://www.jonas.is/
Jónas Kristjánsson
AF NETINU