Fréttablaðið - 31.10.2013, Síða 36
FÓLK|TÍSKA
líður jafn vel í gallabuxum eða íþrótta-
fötum,“ segir Bryndís sem er litaglöð.
„Ég valdi mér gula vetrarúlpu því
glaðlegir litir klæða mig vel. Þessi úlpa er
mér allt því hún er hlý eins og sæng og
dýrmæt því hún var rándýr og tók mig
langan tíma að safna fyrir henni.“
Í Fegurðarsamkeppni Íslands var
Bryndís kosin fimmta fegurst og fyrir-
sæta Júnik og Púkans.com. Af því er
viðurnefnið púkastelpan komið.
„Það halda margir að ég sé púki í mér
en ég er hvorki púkaleg né púki og það
vantar á mig hornin,“ segir hún og hlær.
Bryndís er fædd og uppalin í Þorláks-
höfn og nýlega flutt til borgarinnar.
„Ég er meiri sveitastelpa en borgar-
barn og líður best í sveitinni. Mér fannst
gott að alast þar upp og tel betra fyrir
börn að alast upp við frelsið sem fylgir
því að búa í litlum bæ eða sveit.“
Bryndís er nú á lokaári til stúdents-
prófs við Fjölbrautaskóla Suðurlands og
vinnur á Austur með náminu.
„Mig langar í skapandi nám eftir
stúdentspróf og er alltaf uppfull af hug-
myndum um hönnun á öllu mögulegu. Ég
hef alltaf verið frjó í hugsun og skapaði
mér strax eigin fatastíl sem barn, eins og
þegar ég strengdi græna skóreim utan
um hausinn og stóð á því fastar en fót-
unum að flott væri að fara þannig út þótt
frænka mín harðneitaði að láta sjá sig
með mér.“ ■ thordis@365.is
FÓLK ER KYNNINGARBLAÐ sem býður aug-
lýsendum að kynna vörur og þjónustu í formi
viðtala og umfjallana ásamt hefðbundnum auglýs-
ingum. Blaðið fylgir Fréttablaðinu daglega.
Útgefandi: 365 miðlar | Ábyrgðarmaður: Jón Laufdal
Sölumenn: Bryndís Hauksdóttir, bryndis@365.is, s. 512 5434
Sverrir Birgir Sverrisson, sverrirbs@365.is, s. 512 5432 Kolbeinn
Kolbeinsson, kolli@365.is, s. 512-5447 | Hönnun: Silja Ástþórsdóttir
Ég var ekkert að tengja við þetta til að byrja með og þekkti þennan prjónaheim ekki neitt. Þegar ég
sá svo flíkurnar og umfangið í kringum
þetta varð ég frekar spenntur,“ segir
Baldur Kristjánsson ljósmyndari en
hann myndaði íslenskt tónlistarfólk í
prjónafötum eftir prjónateymið Ragn-
heiði Eiríksdóttur og Stephen West fyrir
nýja bók þeirra, Knit to the music.
Baldur segist reynslunni ríkari eftir
að hafa tekið þátt í verkefninu enda
hafi hann haft staðlaðar hugmyndir um
prjónaskap áður. „Ég fór með Röggu og
Stephen til New York á Vogue Knitting
Convention og þá opnaðist alveg nýr
heimur fyrir mér. Ég hafði alltaf séð fyrir
mér eldri konur að prjóna lopapeysur
en þarna voru þvílíkir hipsterar á ferð-
inni,“ segir Baldur hlæjandi. „Þetta var
mjög fyndin upplifun. Ég vissi heldur
ekki hvað Stephen er mikil rokkstjarna
í prjónaheiminum. Ég er reyndar ekki
farinn að prjóna sjálfur eftir þessa upp-
ljómun en það var ótrúlega skemmtilegt
að vera með í þessu og verkefnið er
flott,“ segir Baldur. „Það voru líka allir
tilbúnir að taka þátt, sem er svo frábært
við litla Ísland. Það þurfti bara eitt símtal
og þá voru allir til í allt, hvort sem það
var að fara ofan í baðker og láta skvetta
yfir sig vatni eða eitthvað annað. Ragga
er líka þannig týpa að hún lætur hlutina
einfaldlega gerast. Verkefnið var unnið á
stemmingunni og ég fékk algjört frelsi til
að útfæra hlutina eins og ég vildi. Ég er
rosalega ánægður með útkomuna.“
Sýning á ljósmyndunum og prjónaflík-
unum í bókinni var opnuð á Kex hostel
síðastliðinn þriðjudag og stendur til 30.
nóvember. Eftir það segir Baldur að farið
verði með sýninguna til útlanda, meðal
annars til Bandaríkjanna og Japans.
■ heida@365.is
HORFIR ÖÐRUM
AUGUM Á PRJÓN
ÍSLENSK HÖNNUN Nýr heimur opnaðist fyrir Baldri Kristjánssyni ljósmynd-
ara þegar hann sótti prjónaráðstefnu Vogue í New York ásamt Röggu Eiríks og
Stephen West. Baldur tók myndirnar í nýrri bók þeirra, Knit to the music.
DJ MARGEIR Í BAÐI
„Verkefnið var unnið á
stemmingunni,“ segir
Baldur.
MYND/BALDUR KRISTJÁNSSON
NÝR HEIMUR
OPNAÐIST
Baldur Krist-
jánsson ljós-
myndari hafði
frekar staðlaðar
hugmyndir um
prjónaskap áður
en hann kynnt-
ist prjónateym-
inu Ragnheiði
Eiríksdóttur og
Stephen West
en Baldur tók
ljósmyndir af
íslensku tón-
listarfólki í
prjónafötum
eftir þau í nýju
bókina þeirra,
Knit to the
music.
MYND/DANÍEL
FALLEG
Bryndísi dreymir um að
búa á jörð nærri borg
eða bæ í framtíðinni.
MYND/STEFÁN
PRJÓNABÓK
Bókin Knit to the
music kemur út í
byrjun desember.
Stærðir: 40 - 47
Verð: 16.985.-
Stærðir: 41 - 48
Verð: 16.985.-
Vandaðir þýskir
herraskór úr leðri,
skinnfóðraðir. Stórar stærðir
Opið Mánudag-Föstudag
Frá klukkan 10:00 - 18:00
og laugardaga: 10 - 14
Stærðir: 40 - 47
Verð: 16.985.-
Stærðir: 41 - 48
Verð: 16.985.-
POP-UP
OPNUNARTÍMI:
MÁN.-FÖS: 13-18 - LAU.12-16
Verð:
1.900 - 9.900
RKINNI 6 -108 REYKJAVÍKMÖ
Enn meiri verðlækkun!
MC PLANET
VÖRUMERKIÐ HÆTTIR!
Save the Children á Íslandi