Fréttablaðið - 31.10.2013, Page 45

Fréttablaðið - 31.10.2013, Page 45
KYNNING − AUGLÝSING Úlpur & yfirhafnir31. OKTÓBER 2013 FIMMTUDAGUR 5 Stormur Parka er glæný úlpa fyrir bæði kyn sem fæst í þremur litum; svörtum, sandlitum og appelsínu- gulum og kostar aðeins 39.950 kr. „Hún er fyllt með 50/50 blöndu af gráum andardúni og fjöðrum. Úlpan er með þvottabjarnarfeld á hettunni og rýkur út,“ segir verslunarstjórinn Eygló Bjarnadóttir. „Hún er léttari en margar dúnúlpur og því tilvalin götuúlpa. Hún er engu að síður afar hlý og getur allt eins nýst á fjöllum.“ Úlpan er sem fyrr segir fyrir bæði kyn en konurnar rykkja hana gjarnan í mittið að sögn Eyglóar. „Eins er hægt að stilla og þrengja hettuna. Úlpan er sömu- leiðis búin fjölmörgum vösum sem býður upp á heil- mikið geymslupláss.“ Ullarvörur ICEWEAR eru framleiddar í verk- smiðju fyrirtækisins í Vík í Mýrdal. Þær eru teiknaðar af okkar hönnuðum og vélprjónaðar í Vík en auk þess erum við með mjög gott úrval af alíslenskum hand- prjónuðum peysum. Þá erum við með mikið af alls kyns fylgihlutum í stíl; húfur, eyrnabönd, vettlinga og sokka svo dæmi séu nefnd. Angóruundirfötin eru svo framleidd í verksmiðju okkar að Ásbrú.“ Eygló segir ICEWEAR leggja mikla áherslu á að bjóða viðráðanlegt verð. „Við erum afar ánægð með hönnuðina okkar og framleiðsluna og hvetjum alla til að koma og líta á úrvalið.“ Verslunin er í Fákafeni 9, Þingholtsstræti 2-4 og Austurvegi 20 í Vík í Mýrdal. Einnig rekur ICEWEAR öfluga vefverslun, www.icewear.is þar sem boðið er upp á fjölbreytt vöruúrval og fría heimsendingu um land allt. Alhliða vetrarúlpa fyrir bæði kyn Hjá Icewear fæst útivistarfatnaður í miklu úrvali. Þar ættu ungir sem aldnir að geta birgt sig upp af hlýjum fatnaði fyrir veturinn en í versluninni fást meðal annars angóruundirföt, ullarpeysur, dúnúlpur, húfur, treflar, vettlingar og aðrir fylgihlutir. Stór hluti fatnaðarins er framleiddur á Íslandi. Hönnuðir Icewear teikna ullarvörurnar. Þær eru framleiddar í verksmiðju fyrirtækisins í Vík í Mýrdal. MYND/DANÍEL Eygló segir hina fjölmörgu vasa á úlpunni koma sér vel. Magnús Einars- son, starfs- maður Icewear, í Parka. Með því að rykkja úlpuna í mittið verður hún kvenlegri. ICEWEAR VERSLANIR » Þingholtsstræti 2-4 - 101 Reykjavík » Fákafen 9 - 108 Reykjavík » Austurvegi 21 - 870 Vík WWW.ICEWEAR.IS ÞÍN ÚTIVIST ÞÍN ÁNÆGJA

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.