Fréttablaðið - 31.10.2013, Side 80
31. október 2013 FIMMTUDAGUR| SPORT | 60SPORT
ÚRSLIT KVENNA
HAUKAR - SNÆFELL 66-67
Haukar: Lele Hardy 27/23 fráköst/7 stoðsend-
ingar/6 stolnir, Margrét Rósa Hálfdanardóttir 10/9
fráköst, Lovísa Björt Henningsdóttir 10.
Snæfell: Chynna Unique Brown 19/14 fráköst/6
stoðsendingar/7 stolnir, Eva Margrét Kristjáns-
dóttir 16/15 fráköst, Hildur Sigurðardóttir 13/8
fráköst/6 stoðsendingar.
KEFLAVÍK - KR 74-56
Keflavík: Sara Rún Hinriksdóttir 20/6 fráköst,
Bríet Sif Hinriksdóttir 14, Bryndís Guðmundsdótt-
ir 14/11 fráköst, Porsche Landry 10/6 fráköst/7
stoðsendingar, Aníta Eva Viðarsdóttir 8.
KR: Sigrún Sjöfn Ámundadóttir 27/13 fráköst,
Björg Guðrún Einarsdóttir 11, Bergþóra Holton
Tómasdóttir 7.
GRINDAVÍK - NJARÐVÍK 79-64
Grindavík: Pálína Gunnlaugsdóttir 24/15 fráköst/6
stolnir, Lauren Oosdyke 22/14 fráköst, Helga Rut
Hallgrímsdóttir 13/14 fráköst, María Ben Erlings-
dóttir 11/6 fráköst.
Njarðvík: Guðlaug Björt Júlíusdóttir 19/5 fráköst,
Erna Hákonardóttir 14, Jasmine Beverly 13/9
fráköst, Salbjörg Sævarsdóttir 8/9 fráköst.
VALUR - HAMAR 68-76
Valur: Kristrún Sigurjónsdóttir 20/5 fráköst,
Jaleesa Butler 12/12 fráköst/7 stoðsendingar/5
varin skot, Unnur Lára Ásgeirsdóttir 11/6 fráköst,
Ragnheiður Benónísdóttir 10, Þórunn Bjarnadóttir
9/5 fráköst.
Hamar: Íris Ásgeirsdóttir 22, Di‘Amber Johnson
22/7 stoðsendingar/7 stolnir, Marín Laufey
Davíðsdóttir 18/12 fráköst, Fanney Lind Guð-
mundsdóttir 8/11 fráköst.
KÖRFUBOLTI „Þeir hafa víst verið
að draga lappirnar með að borga
reikninga,“ segir Hlynur Bær-
ingsson, leikmaður sænska liðsins
Sundsvall Dragons, en greint var
frá því í gær að félagið væri í mikl-
um fjárhagsvandræðum. Jakob
Sigurðarson og Ægir Þór Stein-
arsson leika einnig með félaginu.
Forsvarsmenn sænska félags-
ins hafa þrjá mánuði til stefnu til
þess að koma fjárhagnum á gott
ról. Annars fær liðið ekki þátttöku-
rétt í deild þeirra bestu í Svíþjóð á
næstu leiktíð.
Félagið hefur gert samning
við bæjaryfirvöld í Sundsvall
um útleigu á íþróttahöll félags-
ins. Reiknað er með að félagið fái
jafnvirði tæplega fjögurra millj-
óna króna í gegnum þann samn-
ing. Skuldir félagsins eru þó taldar
nema um fjórfaldri þeirri upphæð.
„Við leikmenn höfum aðeins
fundið fyrir þessum vandræðum
en samt ekkert til að tala um. Þeir
skulda mér ekki neitt en stundum
munar einhverjum dögum hve-
nær laun koma inn. Það er algengt
í þessum bransa.“
Hlynur segir að félagið hafi
misst sterka styrktaraðila og það
sé aðalástæðan fyrir þessum vand-
ræðum.
„Þeir eru að fara að spara mikið
og ég held að það verði mikið
skorið niður í vetur,“ segir Hlyn-
ur en einn besti leikmaður liðsins,
Alex Wesby, er þegar farinn frá
félaginu til að laga fjárhaginn.
„Það er mikið högg fyrir félagið
að hann sé farinn. Hann er búinn
að vera hérna í sex ár og er líklega
besti leikmaður deildarinnar. Einn
af þeim hið minnsta. Svo fór annar
Kani fyrr í vetur og svo hefði sá
þriðji átt að koma. Það er því í
raun og veru búið að skera niður
um þrjá leikmenn.“
Þrátt fyrir þetta áfall og að yfir-
vofandi sé enn meiri niðurskurður
eru leikmenn félagsins rólegir.
„Mórallinn er góður í klefanum.
Þetta verður öðru vísi áskorun
núna og við erum ekki líklegir til
að verða meistarar. Væntingarnar
verða eðlilega minni en við ætl-
uðum okkur titilinn. Það er samt
sigurhugsun í liðinu og við teljum
okkur geta unnið alla,“ segir Hlyn-
ur og bætir við að félagið verði
bara að setja sér ný markmið en
liðið er í fjórða sæti í dag.
„Þetta gæti orðið jákvætt fyrir
félagið. Liðið réttir sig af og rífur
ímyndina upp. Það er ekki bara tit-
illinn sem skiptir máli. Það er að
njóta þess að spila allt árið. Það er
hægt að gera margt jákvætt þó svo
það komi ekki titill.“
Ef allt færi á versta veg, þá sér
Hlynur það ekki í spilunum að
hann kæmi heim til þess að spila.
„Það eru afar litlar líkur á því
að ég kæmi heim ef ég þyrfti að
finna mér nýtt félag. Það yrði ekki
fyrsti valkostur. Auðvitað hugsar
maður samt um það enda er þetta
ekki fyrsta íþróttafélagið sem
lendir í vandræðum. Félagið segir
samt að við eigum ekki að þurfa að
hafa áhyggjur. Það sé ekki á leið á
hausinn. Ég verð að trúa því þar til
annað kemur í ljós.“ - hbg
Það verður mikið skorið niður í vetur
Íslendingaliðið Sundsvall Dragons er í fj árhagsvandræðum og gæti missti keppnisleyfi ð næsta vetur.
FÁ LAUN Hlynur og félagar fá enn laun
þrátt fyrir fjárhagsvandræðin.
FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
ÍÞRÓTTIR Smáþjóðaleikarnir fara
fram á Íslandi árið 2015 og Frjáls-
íþróttasamband Íslands hefur fengið
loforð um 180 milljónir króna frá
Reykjavíkurborg til þess að gera
Laugardalsvöll keppnishæfan.
Hvorki Jónas Egilsson, formaður
Frjálsíþróttasambandsins, né Geir
Þorsteinsson, formaður Knatt-
spyrnusambandsins, vilja sjá þann
pening fara í endurbætur á Laugar-
dalsvelli.
Það verði þess valdandi að enginn
frjálsíþróttavöllur rísi og að ekki
verði hægt að byggja þjóðarleikvang
í knattspyrnu án hlaupabrautar.
„Okkar hugmyndir fara saman
um nýjan frjálsíþróttavöll í Dalnum
og að Laugardalsvöllurinn verði
knattspyrnuleikvangur,“ segir Geir í
Sportspjallinu á Vísi og Jónas bætir
við að útséð sé með að þessar tvær
íþróttagreinar geti deilt keppnisvelli.
KSÍ vill breyta Laugardalsvellinum
þannig að stúka verði allan hringinn
og að völlurinn verði án hlaupa-
brautar. FRÍ vill þjóðarleikvang fyrir
sitt fólk austan Laugardalshallar.
Sportspjallið fer í loftið á Vísi í
hádeginu. - hbg
KSÍ og FRÍ vilja bæði byggja nýja velli
FORMENN Geir Þorsteinsson, formaður
KSÍ, og Jónas Egilsson, formaður FRÍ.
FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL
FÓTBOLTI „Staðan á hópnum er
mjög góð. Þær eru allar heilar og
engin veik eða slöpp. Allir í topp-
standi. Það er mjög jákvætt,“ sagði
landsliðsþjálfarinn Freyr Alexand-
ersson í samtali við Fréttablað-
ið í gær. Kvennalandsliðið mætir
Serbum ytra í dag í undankeppni
heimsmeistaramótsins 2015. Sif
Atladóttur var sárt saknað í 2-0
tapinu gegn Sviss og þá fór Mar-
grét Lára Viðarsdóttir meidd af
velli í leik með Kristianstad á dög-
unum. Freyr segir þær hafa æft af
kappi líkt og aðrir leikmenn og séu
klárar.
Okkar stelpur hafa verið við
æfingar ytra í vikunni og hafa haft
nóg fyrir stafni enda margt sem
þarf að ræða og gera.
„Við gerðum upp leikinn gegn
Sviss á mánudaginn og fórum yfir
hvað við lærðum af því verkefni,“
segir Freyr um tapið á Laugar-
dalsvelli í fyrsta leik Íslands í
riðlinum. Síðan hafi verið unnið
í sóknarleiknum enda markmiðið
að halda boltanum betur en tókst
gegn Sviss.
„Við viljum geta fært leikmenn
ofar á völlinn og í betri stöð-
ur,“ segir Freyr en einnig hefur
umræða um hugarfar og hvert
íslenska liðið stefni verið á verk-
efnalistanum í Serbíu. Freyr er
ánægður með viðbrögð leikmanna.
„Það eru allir mjög einbeittir og
gera sér grein fyrir því sem geng-
ið hefur á síðasta árið hvað úrslit
varðar. Allir vilja taka þátt í því
að byrja upp á nýtt,“ segir Freyr.
Þjálfarinn hélt utan til Serbíu fyrir
liðna helgi ásamt Ásmundi Har-
aldsson, nýráðnum aðstoðarmanni
sínum. Sáu þeir viðureign Serba og
Dana sem lauk með 1-1 jafntefli.
Óhætt er að segja að úrslitin hafi
verið óvænt en Serbar höfðu áður
tapað 9-0 fyrir Sviss.
„Þær eru vel skipulagðar og
hafa lagað það síðan í leiknum við
Sviss,“ segir Freyr um andstæð-
inginn. Ýmislegt kom á óvart í upp-
stillingu Serba. Þannig lék stjörnu-
framherjinn Jovana Damnjanovic,
sem spilar með Evrópumeisturum
Wolfsburg, í stöðu vinstri bakvarð-
ar. Vesna Smiljkovic, leikmaður
ÍBV, bar fyrirliðabandið og lék
í stöðu hægri bakvarðar. Vesna
spilar sömuleiðis allajafna fram-
ar á vellinum.
„Þær vilja vera með sóknar-
sinnaða bakverði. Þær spila aftar-
lega og loka svæðum en eru eld-
fljótar fram þegar þær sækja,“
segir Freyr. Danka Podovac,
miðjumaður Stjörnunnar, er í
lykilhlutverki á miðjunni og á að
stjórna spili liðsins.
Heitt hefur verið í veðri í Serb-
íu. Um 25 stig í upphafi vikunnar,
var um 20 stig í gær og reiknað er
með um 15 stiga hita í dag. Spilað
verður á FK Obilic-leikvanginum í
Belgrad þar sem stelpurnar okkar
æfðu í gær.
„Völlurinn er sléttur en grjót-
harður. Ég óskaði eftir því að völl-
urinn yrði vökvaður og mýktur
fyrir leik. Það verður að koma í
ljós hvort þeir verða við þeirri ósk.
Við vitum hins vegar hvernig völl-
urinn er og við bregðumst við því.“
Leikurinn í Serbíu hefst klukk-
an 13 og verður fylgst með gangi
mála á Vísi.
kolbeinntumi@frettabladid.is
Loksins allar í toppstandi
Stelpurnar okkar mæta Serbum í undankeppni HM ytra í dag. Allir leikmenn liðsins eru klárir í slaginn en
ljóst er að Serbar eru sterkari en áður í ljósi jafntefl is liðsins við Dani um helgina.
ALLAR KLÁRAR Freyr Alexanderson segir að búast megi við breytingu frá því í leiknum gegn Sviss, bæði á byrjunarliðinu og í
taktík. Leikmenn liðsins eru allir klárir í slaginn og hafa æfingar gengið vel undanfarna daga í Belgrad. MYND/KSÍ
DOMINOS-DEILDIN
ÚRSLIT KARLA
HAUKAR - SNÆFELL 82-77
Haukar: Terrence Watson 31/13 fráköst, Emil
Barja 21/ 10 fráköst/ 10 stoðsendingar, Haukur
Óskarsson 10/ 7 fráköst.
Snæfell: Jón Ólafur Jónsson 25/ 9 fráköst,
Sigurður Þorvaldsson 12/6 fráköst, Vance Cooksey
13/ 7 stoðsendingar, Kristján Pétur Andrésson 12.
FÓTBOLTI Landsliðsmarkvörðurinn
Hannes Þór Halldórsson er mættur
til Noregs. Hann æfir þessa viku með
liði Sandnes Ulf en með liðinu spila
meðal annars Steinþór Freyr Þor-
steinsson og Steven Lennon, fyrrum
framherji Fram.
„Ég er fyrst og fremst að halda
mér í formi fyrir Króatíuleikina. Það
er samt spennandi að vera kominn
hingað. Sandnes Ulf og Noregur
væri skref upp á við fyrir mig,“ segir
Hannes Þór í viðtali við vefmiðilinn
Rogalandsavis.
Ekki hefur verið gengið frá nýjum
samningi við núverandi markvörð
Úlfanna. Félagið hefur sýnt nokkrum
áhuga en samkvæmt heimildum
norska miðilsins er Hannes Þór ekki
einn þeirra.
„Maður á aldrei að segja aldrei. Við
sjáum til hvernig æfingar ganga,“
segir Rune Espedal, yfirmaður knatt-
spyrnumála hjá félaginu. Fyrst og
fremst sé um samkomulag að ræða
á milli Úlfanna og KR en Espedal
segir mikinn vinskap vera félaganna
á milli.
Hannes Þór heldur í næstu viku
til Svíþjóðar þar sem hann mun æfa
með Kalmar. -ktd
Hannes á fl akki
á Norðurlöndum
Í FORMI Hannes Þór æfir með Sandnes
Ulf í Noregi. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
FÓTBOLTI Margrét Lára Viðarsdóttir hefur verið valin nýr fyrir-
liði íslenska landsliðsins í knattspyrnu en liðið mætir Serbíu í
undankeppni heimsmeistaramótsins árið 2015 ytra í dag.
„Það er mikill heiður að fá að leiða þetta lið út á völlinn,“
sagði Margrét Lára í gær.
Margrét Lára tekur við fyrirliðabandinu af Katrínu Jónsdóttur
sem lagði skóna á hilluna á dögunum.
„Ég er búin að vera í þessu liði í ellefu ár og hef alltaf haft
það hlutverk að vera fremst á vellinum og sjá um markaskor.
Nú er komið að því að ég fái annað og enn stærra hlutverk
innan liðsins sem er mjög spennandi. Vonandi mun ég
þroskast enn meira sem leikmaður með þessu nýja hlutverki.“
Margrét Lára hefur leikið með íslenska landsliðinu í tíu ár.
„Við erum með marga leiðtoga í liðinu og flotta karaktera
og í raun margar í þessu hlutverki.“ - sáp
Margrét Lára nýr fyrirliði landsliðsins