Fréttablaðið - 14.11.2013, Page 6
14. nóvember 2013 FIMMTUDAGUR| FRÉTTIR | 6
AFGANISTAN, AP Aldrei í sögunni
hefur meira ópíum verið fram-
leitt í Afganistan en nú í ár. Bar-
átta heimamanna og alþjóðasam-
félagsins gegn ópíumrækt í landinu
virðist litlu skila.
Uppskeran síðastliðið vor skilaði
5.500 tonnum af ópíumi, sem er 49
prósentum meira en á síðasta ári og
meira en heildarframleiðsla allra
annarra landa samanlagt.
Brotthvarf erlendra hermanna
frá Afganistan á næsta ári gerir
þennan vanda líklega enn illviðráð-
anlegri, að sögn Jean-Luc Lema-
hieu, fulltrúa Fíkniefna- og afbrota-
eftirlits Sameinuðu þjóðanna. Hætt
sé við því að afgönsk stjórnvöld
verði enn háðari ólöglegum tekjum.
Í nýrri skýrslu Sameinuðu þjóð-
anna segir að fyrir næstu uppskeru
hafi ópíumfræjum verið sáð á 200
þúsund hektara svæði, sem þýðir
að enn megi reikna með 36 prósenta
aukningu á uppskeru.
Verði ekki hægt að eyðileggja
hana svo neinu nemi mun ópíum-
framleiðsla í landinu vera vel yfir
eftirspurn eftir eiturlyfinu í heim-
inum öllum. - gb
Afghan opium cultivation has reached a record
level, with more than 200,000 hectares planted
with the poppy – 36% higher than in 2012.
Potential production rose by 49% to 5,500
tonnes, more than the global demand
71
54 57 58
64
91
82
8
74 80
131
104
165
193
157
123 123 131
154
2013:
209,000
Afghanistan produces more
than 90% of world’s opium
Helmand:
48% of total
AFGHANISTAN
© GRAPHIC NEWSHeimild: UNODC Ljósmynd: Getty Images
Stærstur hl ti ópíumframleið lunnar í Afganistan fer fram
í suður-, suðvestur- og austurhluta land ins. Í nýrri
skýrslu frá Fíkniefna- og afbrotaeftirliti Sameinuðu
þjóðanna, UNODC, er gerð grein fyrir stöðunni.
arækt Valmú
1994-2013
arHektar
(þús)
ÓPÍUMRÆKT ER STUNDUÐ
Í ÞESSUM HÉRUÐUM
1994 95 96 97 98 99 00 01 02 03 04 05 06 07 08 09 10 11 12 2013
Fall talibana-
stjórnarinnar
:
,0 0
Í Afganistan eru f amleidd eira
en 90 prósent af öllu ópíumi heimsins
Helmand
48% heildarupp-
skerunnar
ANIST
Ópíumframleiðslan nær nýjum hæðum
kynntu þér
málið!w w w . s i d m e n n t . i s
Mannvirðing
Siðmennt styður opið, víðsýnt
og fjölbreytt samfélag
Save the Children á Íslandi
Austurstræti 8-10
Nýr og glæsilegur
veitingastaður
í hjarta borgarinnar.
Baráttan gegn eiturlyfjaframleiðslu í Afganistan hefur borið lítinn árangur:
Nýtt met í ópíumrækt Afgana
ORKUMÁL Ekkert bendir til
annars en að í boði verði mjög
hátt verð fyrir íslenska orku
verði hún seld til Bretlands um
sæstreng. Eiginleikar íslenskrar
orkuöflunar gera hana verðmæt-
ari en þeir orkukostir sem bjóð-
ast í Bretlandi í dag, sem eru
hins vegar verðlagðir í langtíma-
samningum á þreföldu til fimm-
földu listaverði Landsvirkjunar.
Þetta kom fram í máli Harðar
Arnarsonar, forstjóra Lands-
virkjunar, á haustfundi fyrir-
tækisins í gær.
„Við erum bjartsýn. Flestir
sem eru að gera langtímasamn-
inga bjóða ótrygga orku, en það
sem Breta vantar er stýranleg
orka. Möguleikar okkar til að
fá gott verð eru sannarlega til
staðar en við vitum ekki hversu
gott það yrði,“ sagði Hörður
um möguleika á sölu orku um
sæstreng, en margtók fram að
óvissuþættirnir í málinu væru
fjölmargir.
Fyrir mánuði var gerður
samningur við Hinkley Point-
kjarnorkuverið um 150 dollara
á megavattstund í 35 ár. Bretar
hafa verið árum saman að koma
þessu verkefni í gang en lentu
málinu loks með kínversku fjár-
magni.
Fréttablaðið spurði Hörð hvort
ástæða væri til þess að ætla að
Íslendingum yrði boðið lægra
verð en langtímasamningar við
kjarnorkuver hljóða upp á í dag
eða 150 dollarar á móti verðlista
Landsvirkjunar sem hljóðar upp
á 43 dollara á megavatt stundina.
„Ég veit það ekki. Við erum
hins vegar með miklu betri og
verðmætari vöru. Þetta er allt
háð samningum og viðræður
hafa ekki hafist,“ svaraði
Hörður.
Bresk stjórnvöld hafa sam-
þykkt nýja löggjöf um umbreyt-
ingu raforkukerfisins og þeir
eru tilbúnir til að gera bindandi
raforkusamninga í 15 til 35 ár.
Stærðirnar liggja fyrir. Raforku-
verð í Bretlandi er um 80 doll-
arar á megavattstund. Þarlend
stjórnvöld eru hins vegar tilbúin
að borga 150 til 215 dollara allt
eftir eðli raforkuframleiðslunnar.
Eins og Fréttablaðið greindi
frá í ítarlegri fréttaskýringu í
október um sæstrengsverkefnið
þá er ákvörðun um að leggja
sæstreng í fyrsta lagi mögu-
leg eftir nokkur ár og um hana
verður að nást víðtæk sátt í sam-
félaginu, að mati Landsvirkjunar
sem fól Gallup að kanna hug
landsmanna til sæstrengsverk-
efnisins. Kom í ljós að um 60%
þjóðarinnar eru fylgjandi því að
skoða þennan möguleika en 10%
eru á öndverðri skoðun; 30%
leggjast ekki gegn því.
svavar@frettabladid.is
Bretar kaupa orku á
margföldu listaverði
Raforkufyrirtækjum í Bretlandi býðst þrefalt til fimmfalt hærra verð en Lands-
virkjun fær. Ekkert bendir til þess að íslensk orka um sæstreng yrði verðlögð
lægra. Meirihluti landsmanna vill skoða hvort leggja eigi sæstreng til Bretlands.
FRAMTÍÐARSÝN Hvort málið fær framgang veit enginn fyrr en ítarleg skoðun á málinu hefur farið fram. Slík rannsókn tekur 2-3 ár.
RAFORKUSTRENGUR Á MILLI ÍSLANDS OG BRETLANDS
Það sem
Breta vantar
er stýranleg
orka. Mögu-
leikar okkar
til að fá gott
verð eru
sannarlega til staðar en
við vitum ekki hversu gott
það yrði.
Hörður Arnarson,
forstjóri Landsvirkjunar
ÞÝSKALAND Góður gangur er í
stjórnarmyndunarviðræðum
Kristilegra demókrata og Sósíal-
demókrata í Þýskalandi. Sam-
kvæmt því sem fram kemur í
frétt á vef EUobserver er búist
við því að viðræðunum muni ljúka
í þessum mánuði og ný stjórn verði
mynduð fyrir miðjan desember.
Flokkarnir eru þeir stærstu á
þinginu eftir kosningarnar sem
fram fóru í september, en form-
legar viðræður hafa staðið síðustu
vikur.
Eitt af þeim málum sem komu til
tals í viðræðunum er aukið beint
lýðræði með fleiri þjóðaratkvæða-
greiðslum, meðal annars í stærri
málum sem snerta ESB.
Eins og sakir standa gera þýsk
lög aðeins ráð fyrir atkvæða-
greiðslum um mál tengt stjórnar-
skránni og landamærum ríkisins.
Þessar hugmyndir hafa hins
vegar mætt andstöðu, bæði hjá
Angelu Merkel kanslara og aðal-
ritara Sósíaldemókrata, þar sem
slíkar atkvæðagreiðslur yrðu
vatn á myllu lýðskrumara og and-
stæðinga ESB. - þj
Góður gangur í stjórnarviðræðum í Þýskalandi:
Ný stjórn í desember