Fréttablaðið - 14.11.2013, Side 26
14. nóvember 2013 FIMMTUDAGUR| FRÉTTIR | VIÐSKIPTI | 26
Færeyska olíufélagið Atlantic Petroleum hefur farið
fram á afskráningu úr Kauphöll Íslands (Nasdaq OMX
Iceland). Í tilkynningu sem félagið sendi frá sér í gær
kemur fram að stefnt sé á skráningu í Kauphöllinni í
Ósló í Noregi og að hún gangi í gegn í desember næst-
komandi.
Aðalskráning Atlantic Petroleum er í kauphöllinni
hér, en félagið er einnig skráð í kauphöll Nasdaq OMX
í Kaupmannahöfn. Eftir breytingu á aðalskráning að
vera í Kaupmannahöfn. Samkvæmt upplýsingum frá
Kauphöll Íslands hefur skráningarnefnd Kauphallar-
innar ekki enn tekið afstöðu til afskráningar Atlan-
tic Petroleum úr Kauphöllinni og er ákvörðunarferlið
sagt geta tekið nokkra daga.
„Bréf félagsins voru sett á athugunarlista í ljósi til-
kynningarinnar,“ segir í svörum Kauphallar. Komi til
afskráningar dettur félagið út úr Heildarvísitölu Aðal-
markaðar og færeysku vísitölunni. „Og þar sem þetta
er eina olíufyrirtækið á markaði, dytti sú atvinnu-
grein af markaði í bili.“
Þá kemur fram að kauphallarfólk sé stolt af því að
hafa verið hluti af vexti félagsins síðan 2005. „Gjald-
eyrishöftin gera það hins vegar að verkum að félagið
getur ekki sótt nýtt fjármagn á íslenska markaðnum.
Við óskum þeim góðs gengis í framtíðinni.“ - óká
Ríkisaðstoð, sem felst í fjár-
mögnun lagningar og rekstri
Skeiða- og Gnúpverjahrepps á
ljósleiðara, brýtur ekki gegn EES-
samningnum.
Eftirlitsstofnun EFTA (ESA)
segir verkefnið til þess fallið að
auka samkeppnishæfni þessa dreif-
býla svæðis og að ekki hafi verið
líkur á að fjárfest yrði í slíkum
háhraðanettengingum í sveitar-
félaginu á markaðsforsendum í
náinni framtíð. Þar að auki hefði
verkefnið í för með sér stóraukið
framboð á hágæða fjarskipta-
þjónustu fyrir íbúa og fyrirtæki á
svæðinu.
„Þegar almannafé er nýtt til að
fjármagna framkvæmdir á borð
við þessa er mikilvægt að ganga
úr skugga um að virk samkeppni
geti þrifist innan kerfisins. Með
því er tryggt að íbúar og fyrirtæki
njóti stöðugt batnandi fjarskipta-
þjónustu á samkeppnishæfum
kjörum,“ er haft eftir Oda Helen
Sletnes, forseta Eftirlitsstofnunar
EFTA, í tilkynningu ESA.
Sveitarstjórn Skeiða- og Gnúp-
verjahrepps ákvað árið 2012 að
fjármagna uppbyggingu ljósleiðara-
kerfisins. „Tvenn útboð voru haldin
varðandi uppbyggingu ljósleiðara-
kerfisins og sveitarstjórn stofnaði
sérstakt félag til að sjá um rekstur
kerfisins,“ segir í tilkynningu ESA.
Þá geti allar þjónustuveitur sem
þess óska fengið heildsöluaðgang
að kerfinu á jöfnum kjörum. - óká
ESA blessar framkvæmdir og starfsemi hjá Skeiða- og Gnúpverjahreppi:
Máttu leggja og reka ljósleiðara
SKURÐGRÖFTUR Félag var stofnað um
rekstur ljósleiðarans og þjónustuveitur
fá heildsöluaðgang á jöfnum kjörum.
Atlantic Petroleum á leið úr Kauphöll Íslands og í Kauphöllina í Ósló:
Olíuiðnaðurinn hverfur í bili
2500
2000
1500
1000
500
0
15.6.2013
15.6.2012
15.6.2011
15.6.2010
15.6.2009
15.6.2008
15.6.2007
15.6.2006
15.6.2005
GENGIÐ HEFUR SVEIFLAST
Fyrstu ár Atlantic Petroleum
voru allmiklar sveiflur á
gengi bréfanna og þau náðu
himinhæðum. Þær sveiflur
hafa jafnað sig hin síðari ár.
➜ Saga félagsins frá því í maí 2005
„Verð á hlutum í HB Granda mun
að öllum líkindum hækka töluvert
í kjölfar þessarar ákvörðunar,“
segir Kristján Markús Bragason,
umsjónarmaður hlutabréfagrein-
ingar Íslandsbanka.
Hann vísar þar í fyriráætlanir
stærstu eigenda HB Granda hf.
um að selja allt að 32 prósenta
eignarhlut sinn í félaginu áður en
það verður tekið til skráningar á
Aðalmarkaði Kauphallar Íslands
á næsta ári.
Arion Banki á um 33 prósent
af hlutafé HB Granda og ætlar
að selja um 20-25 prósenta hlut í
félaginu á næstu mánuðum.
Aðrir stórir eigendur sem ætla
að selja hluta af sinni eign eru
Fiskveiðihlutafélagið Venus hf. og
Vogun hf.
Fiskveiðihlutafélagið Venus
hf. er að stærstum hluta í eigu
Kristjáns Loftssonar, forstjóra
Hvals hf. og stjórnarformanns
HB Granda, Birnu Loftsdóttur og
Sigríðar Vilhjálmsdóttur. Félagið á
3,42 prósenta hlut í HB Granda og
39,5 prósenta hlut í Hval hf.
Vogun hf. er dótturfélag Hvals
og á 40,31 prósent hlut í HB
Granda og 37,9 prósenta hlut í
Hampiðjunni, sem á svo aftur 9,43
prósenta hlut í HB Granda.
Útgerðarfyrirtækið er nú skráð
á First North-markaði Kaup-
hallarinnar þar sem viðskipti
með hluti HB Granda hafa verið
takmörkuð. Markaðsvirði félags-
ins, samkvæmt skráðu gengi á
First North, er um 30,7 milljarðar
króna. Sala á 32 prósenta eignar-
hlut myndi því skila um 9,8 millj-
örðum króna.
„Verðmyndun á First North er
ekki mjög virk og þar eru viðskipti
lítil og strjál. Skráð gengi á mark-
aðinum þarf því ekki að endur-
spegla rétta mynd af því hvert
verðmæti eigin fjár félagsins yrði
væri það skráð á Aðalmarkaðinum.
Það að taka félagið af First North
og setja það á Aðalmarkaðinn
mun því vafalítið hafa aukningu í
för með sér þegar kemur að verð-
mæti eigin fjár félagsins,“ segir
Kristján og heldur áfram:
„Manni finnst sérstakt að það
sé ekki eitt einasta sjávarútvegs-
fyrirtæki skráð á Aðalmarkað-
inum þar sem þetta er stærsta
atvinnugrein okkar þegar kemur
að gjaldeyrissköpun þjóðar-
búsins.“ haraldur@frettabladid.is
Tíu milljarða hlutur
í HB Granda til sölu
Stærstu eigendur HB Granda hf. ætla að selja allt að 32 prósent hlutafjár í
félaginu. Salan myndi samkvæmt skráðu gengi skila um 9,8 milljörðum íslenskra
króna. Sérfræðingur á hlutabréfamarkaði spáir því að virði félagsins muni aukast.
ÚTGERÐ Sala á 32 prósenta eignarhlut í HB Granda hf. á samkvæmt tilkynningu
félagsins að stuðla að dreifðara eignarhaldi og auka seljanleika hlutabréfa.
FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
First North er hliðarmarkaður
hlutabréfamarkaðar Kauphallar
Íslands og er hugsaður fyrir
minni og meðalstór fyrirtæki.
Markaðurinn hefur aldrei náð
almennilegu flugi hérlendis en
hefur á sama tíma virkað vel í
sumum nágrannalöndum okkar.
Hliðarmarkaður
í krafti fjöldans
A
R\R\\\\\
IP
A
R
A
R
A
R
PI
PA
R
A
R
A
PI
PA
PI
PAIPPI
W
A
W
A
W
A
W
A
TB
W
A
W
A
W
TB
WBWBWBWTB
WBWBWTB
WBWBWBBBBTBTBTBT
•••
ÍA
S
ÍASÍS
••
33
38
13
33
8
13
33
838
1
3
9999
TILBOÐ DAGSINS ER GISTING,
JÓLAHLAÐBORÐ OG AÐGANGUR
AÐ FONTANA Á LAUGARVATNI.
Verð á hlut➜