Fréttablaðið - 14.11.2013, Page 32

Fréttablaðið - 14.11.2013, Page 32
14. nóvember 2013 FIMMTUDAGUR| SKOÐUN | 32 Margir kvarta yfir háskóla- kennurum. Þeir haldi langa og leiðinlega fyrirlestra, lesi bara upp af glærum og láti duga að meta frammi- stöðu nemenda með einu prófi eða kannski einu verk- efni eftir heillar annar puð. Ólíkt grunnskólakennurum kunni þeir ekkert til verka og ættu að fá laun í sam- ræmi við það. Eins sammála og ég er því að háskólakennarar eigi að vanda til verka á sama hátt og aðrir kennarar, tek ég eftir því að gagn- rýnendurnir átta sig oft ekki á einu mikilvægu atriði. Háskólakennarar sem eru í fullu starfi sem slíkir hafa kennslu alls ekki að aðalstarfi og líta jafnvel ekki á sig sem kenn- ara. Þetta hljómar kannski undar- lega fyrir þá sem þekkja ekki til, en leyfið mér að útskýra: Háskólar hafa, ólíkt leikskólum, grunnskólum og framhaldsskólum, ekki aðeins það hlutverk að miðla þekkingu og veita nemendum menntun. Háskólar skapa líka þekkingu og í því kerfi sem við þekkjum á Vesturlöndum í dag er það þeirra aðalhlutverk. Gæði þeirra eru ekki metin á grund- velli árangurs á sviði kennslu nema að mjög litlu leyti. Árangur þeirra er metinn í ljósi rannsókna, bæði gæða og afkasta. Nú er það mál út af fyrir sig hversu gott, áreiðanlegt eða sann- gjarnt mat á rannsóknum er almennt og ekki síst hvað varðar íslenska háskóla: Ég ætla að láta það liggja á milli hluta hér. Staðreynd málsins er þessi: Ef árangur háskóla ræðst af öðru en gæðum kennslu, þá er ekki líklegt að mikil áhersla sé lögð á að efla kennslu, síst af öllu með því að ráða fleira fólk til að annast hana eða gera ríkari kröfur um frammistöðu háskóla- kennara sem kennara. Hélt öllum spenntum Ég stundaði sjálfur doktors- nám við ágætan erlendan háskóla. Þegar ég byrjaði á námskeiðahluta náms- ins sótti ég tíma hjá heims- frægum manni sem ég var mjög spenntur fyrir að hitta og sitja í tímum hjá. Maðurinn reyndist svo leiðinlegur kennari að nem- endur hans sem ekki sváfu í tím- unum hans voru iðulega orðnir svo þunglyndir í lok þeirra að þeim lá við sjálfsmorðshugleiðingum. Sama haust datt ég inn í tíma hjá öðrum kennara, frábærri manneskju sem hélt öllum spenntum allan tímann með einstakri blöndu af fyrirlestra- haldi og umræðum. Hún missti starfið hins vegar árið eftir því hún hafði ekki gefið nægilega mikið út. Þetta er hinn kaldi raunveruleiki háskólakennarans í skólum sem taka sjálfa sig alvarlega. Hvað er til ráða? Eigum við að láta suma háskóla sjá um kennslu og gera það almennilega en halda rann- sóknum í örfáum skólum eða bara í sérstökum rannsóknastofnunum? Það er ekki góð leið að mínu mati. Það er einmitt eftirsóknarvert fyrir háskólanemendur að vinna með kennurum sem eru í senn miðlarar vísinda og fræða og rannsakendur. Háskóli sem tengist ekki rann- sóknum er ekki háskóli. Hjarðkennsla Það er til ein leið. Hún er ekki ódýr en hún er einföld. Fyrirbærið glærufyrirlestur er afleit aðferð til að vinna með nemendum og miðla skilningi, þekkingu og rökhugsun. Fyrirlestrar geta verið góðir í bland, en blandan þarf að vera frekar þunn. Árangursríkastar eru aðferðir sem halda nemendum virk- um í samræðum, lestri og verkefna- vinnu. Þá er vinna kennarans ekki fólgin í því að lesa yfir þeim það sem skrifað hefur verið á glærur, oftast soðið (stundum hraðsoðið) upp úr kennslubók eða einhverju öðru sem nemendur eiga hvort eð er að vera búnir að lesa. Nei. hún er fólgin í því ræða við nemendur, fara yfir verkefni þeirra, veita ábending- ar, leiðbeiningar og ráð. Það er því miður alltof algengt að kennarar eigi fyrst og fremst samskipti við nemendur yfir glærufyrirlestrum en fái sérstaka aðstoðarkennara (yfirleitt lengra komna nemendur) til að fara yfir verkefni. Þetta er í rauninni ekki góður siður. Vinna kennarans ætti ekki síst að felast í því að fara í gegnum verkefni nem- enda. Þannig kynnast kennarar nemendum og geta leiðbeint þeim betur. Þannig verða til samskipti sem geta líka veitt nemendum inn- sýn í rannsóknirnar sem kennarar þeirra stunda. En ég sagði að þetta yrði dýrt. Við myndum þurfa að draga verulega úr hjarðkennslu í stórum sölum. Við yrðum að reikna fleiri tíma á kenn- ara fyrir vinnu með nemendum en nú er gert, við yrðum að breyta skipulagi kennslu og við yrðum að láta árangur í kennslu skipta meira máli við árangurs- og gæðamat háskóla. Þá yrðu háskóla kennarar loksins kennarar og gætu verið stoltir af því. Eru háskólakennarar kennarar? MENNTUN Jón Ólafsson prófessor við Háskólann á Bifröst ➜ Háskólakennarar sem eru í fullu starfi sem slíkir hafa kennslu alls ekki að aðalstarfi og líta jafnvel ekki á sig sem kennara. Á nýliðnu Umhverfis- þingi var fjallað um skipulag lands og hafs, sjálfbæra þróun og sam- þættingu verndar og nýtingar. Fjallað var um þessi málefni á breiðum grunni og urðu líflegar og málefnalegar umræð- ur milli ólíkra hópa sem að þessum málaflokkum koma. Slíkar umræður eru mikilvægt veganesti fyrir áframhaldandi vinnu og stefnumótun á þessu sviði. Það er því afar mikilvægt að menn leiði saman hesta sína á vettvangi sem þessum í jafn viðamiklum málum sem umhverfismálin eru – þau snerta okkur öll um ókomna framtíð. Skipulag er mikilvægt stjórn- tæki til að samræma ólíkar kröf- ur og sjónarmið, meðal annars um auðlindanýtingu, atvinnu- þróun og umhverfisvernd. Það er verkefni okkar, sem nú sitjum í ríkisstjórn, að tryggja vel- ferð og hagsæld í landinu með sjálfbæra þróun að leiðarljósi. Áskoranirnar blasa við okkur og því ekki eftir neinu að bíða. Á liðnum áratugum hefur orðið ör þróun í ýmiss konar landnotkun sem knýr okkur til að marka stefnu á heildstæðan hátt til framtíðar og samþætta ólík sjónarmið. Viðfangsefnin í skipulagsmálum eru ólík nú samanborið við fyrri tíma. Þau þarf að nálgast á nýjan hátt því viðfangsefnið krefst viðsnúnings á þeirri þróun sem við höfum stuðlað að á liðnum áratugum. Við þurfum í mörgum tilvikum að hugsa hlutina upp á nýtt. Mikilvægt er að gera sér í hugarlund hvers konar þróun er í gangi og hvers konar breytingar geta orðið á umræddu tímabili. Sjálfbær þróun knýr okkur til að spyrja nýrra spurninga sem leiða hugann að því hvernig skyn- samlegasta nýtingin er á hverju landsvæði fyrir sig. Standa þarf vörð um sameiginleg gæði sam- félagsins og langtímahugsun þarf að vera leiðarljós í þeirri vinnu sem er framundan. Átakamál Langtímaákvarðanir um ráðstöf- un lands, hvort sem er til nýt- ingar eða verndar, eru í eðli sínu átakamál. Hagsmunir eru ólíkir og stangast oft á tíðum á. Einnig er lífssýn fólks ólík. Ólík viðmið eru lögð til grundvallar um hvað er hægt, hvað er æskilegt og hvað er gott eða fallegt. Það sem síðan verður ofan á þurfum við öll að lifa við. Því er mikilvægt að eiga góðar og málefnalegar umræður eins og raunin var á Umhverfisþinginu til að ná sátt um sameiginlega framtíð. Við erum svo lánsöm að eiga mikið landrými á hvern ein- stakling og búum í landi með fjölbreyttum sóknarfærum sem þarf að nýta. Þannig stuðlum við að fjölbreyttu atvinnulífi og fjöl- breyttu menntunar- og þjónustu- stigi. Mikil umræða hefur verið um þéttingu byggðar og samgöngu- mannvirki. Fyrir um þremur áratugum var bílaeign lands- manna talsvert minni en hún er í dag. Nú er u.þ.b. einn fólksbíll á hvern einstakling í sama aldurs- flokki. Við höfum valið það frelsi sem einkabíllinn færir okkur og forgangsraðað í hans þágu á kostnað annarra ferðamáta. Mikið land fer undir samgöngu- mannvirki og því þurfum við að spyrja okkur að því hvernig skipulag við viljum í framtíð- inni. Ef bílaeign landsmanna á hvern einstakling verður sú sama eftir þrjá áratugi á bílum eftir að fjölga um 50 þúsund, það krefst enn meira landrýmis. Mótvægi við slíka þróun gæti verið að þétta byggð á völdum stöðum sem gefur möguleika á tíðari samgöngum með styttri vegalengdum. Aðrar áherslur Dreifð byggð á hins vegar jafn mikinn rétt á sér og þétt- ing byggðar. Landrýmið gefur okkur tækifæri til að velja milli kosta, rétt eins og ferðamátinn sem við kjósum okkur. Húsnæði hefur einnig farið stækkandi á sama tíma og fjölskyldustærð fer minnkandi. Mikilvægt er að bjóða upp á fleiri en einn valkost en spyrja sig jafnframt hversu mikið land og hvaða land á að fara undir hús og bíl. Sum svæði henta betur fyrir litlar íbúðir í þéttri byggð með styttri vega- lengdum. Önnur svæði eru þess eðlis að geta boðið upp á stærri íbúðir og meira landrými með óþéttari almenningssamgöngum. Blöndun byggðar er forsenda sjálfbærni þar sem hægt er að samþætta ólíka hagsmuni og sjónarmið. Sama má segja um haf- og landnýtingu, þar koma við sögu fiskeldi, ósnortin víðerni, ferðaþjónusta, landbúnaður og raforkuvinnsla svo örfá dæmi séu nefnd. Við höfum fjölmörg tækifæri til að nýta hina ýmsu kosti betur til að skapa verðmæti þar sem eftirspurnin er. En við þurfum einnig að huga að fram- tíðarþróun því auðlindirnar eru takmarkaðar og gæta þarf að ákveðnu jafnvægi. Það er nánast sama hvar við berum niður – skipulag með sjálfbærni að leiðarljósi snýst á næstu áratugum um aðrar áherslur, aðrar skipulags aðferðir og annars konar lausnir en við höfum tamið okkur á undan- gengnum áratugum. Ákvarðanir sem teknar eru þurfa að taka mið af heildarhagsmunum sam- félagsins til lengri framtíðar í samráði við hagsmunaaðila. Mikilvægt er að eiga slíkt undir- lag fyrir þá vinnu sem fram- undan er við landskipulagsstefnu þar sem m.a. verður lögð áhersla á landnýtingu í víðum skilningi. Að loknu Umhverfi sþingi UMHVERFIS- MÁL Sigurður Ingi Jóhannsson umhverfi s- og auðlindaráðherra ➜ Hagsmunir eru ólíkir og stangast oft á tíðum á. Einnig er lífssýn fólks ólík. Ólík viðmið eru lögð til grundvallar um hvað er hægt, hvað er æskilegt og hvað er gott eða fallegt. Það sem síðan verður ofan á þurfum við öll að lifa við. Ábendingahnappinn má finna á www.barnaheill.is www.lyfja.is Opið til miðnættis í Lyfju Smáralind í kvöld. Erum komin í jólaskap Komdu á miðnæturopnun í Lyfju Smáralind í kvöld, fimmtudagskvöldið 14. nóvember. Frábær tilboð fram að miðnætti. 20% afsláttur af spennandi vörum 50% afsláttur af völdum vörum ABC sokkabuxur ShockUp sokkabuxur Ĺ Oréal Top-Coat maskari 20% afsláttur af öllum ilmi 20% afsláttur af gjafaöskjum

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.