Fréttablaðið - 14.11.2013, Blaðsíða 40
KYNNING − AUGLÝSINGJólagjöfin hennar FIMMTUDAGUR 14. NÓVEMBER 20132
ERNA BJÖRK HARÐARDÓTTIR
HJÚKRUNARFRÆÐINGUR:
„Eftirminnilegasta
floppið held
ég að verði að
vera pakkinn
með rauða, sexí
og seiðandi
satínnáttkjólnum,
tveimur núm-
erum of litlum, sem var opnaður
í stofunni hjá mömmu og pabba.
Annars hefur hann yfirleitt hitt í
mark, þessi elska.“
JÚLÍA ARADÓTTIR
BÓKMENNTAFRÆÐINEMI:
„Fyrsta jólagjöfin
er eftirminni-
legust, en þá
skiptumst við á
eftirlætisbókum
okkar. Ég fékk
Catcher in the
Rye og mixdisk.
Þórir keypti bókina í Belgíu, var alveg
staðráðinn í að finna hana og þurfti
að fara í nokkrar bókabúðir áður en
hann loksins fann hana.“
HALLA MARGRÉT
JÓHANNESDÓTTIR,
LEIKKONA OG RITHÖFUNDUR:
„Fyrsta jólagjöfin.
Við skiptumst
á pökkum í
þvottahúsinu
á æskuheimili
mínu, kysstumst
og svo fór hann
og hélt sín jól
og ég mín. Ég hafði margra ára
reynslu í að þukla jólapakka og
var ótrúlega góð í fatta hvað þeir
innihéldu. Ég ályktaði að þetta hlyti
að vera bollastell. Ég fór inn í eldhús
og sagði við mömmu: „Ef þetta er
bollastell, þá hætti ég með honum.“
Um kvöldið kom í ljós að hann hafði
sett plötusafn Megasar í stærri kassa
sem skýrði þessa skrítnu þyngd.“
EVA ÝR GUNNLAUGSDÓTTIR
HJÚKRUNARFRÆÐINGUR:
„Jólin 2004 vorum við tiltölulega
nýbyrjuð saman. Ég hafði verið í
próflestri allan nóvember og svo í
prófum og einhvern veginn var ég
alltaf bara í joggaranum. Ég var alltaf
svona smá að
segja honum að
ég væri nú alveg
stundum skvís, og
ég hlakkaði svo
til að komast úr
prófgallanum. Svo
kom jólagjöfin
sem var svo sæt; bolur, hálsmen,
taska, næla og fleira í þeim dúr. Það
var eitthvað svo fallega hugsað og
ég var svo ánægð.“
HELENA AAGESTAD
HJÚKRUNARFRÆÐINEMI:
„Árið 2006 gaf
kærastinn minn
mér flugmiða
til Kaupmanna-
hafnar þangað
sem við fórum að
heimsækja vini
okkar sem bjuggu
þar. Hann var búinn að prenta út
nokkur A4-blöð, hvert með einu
orði á. Viltu – koma – með – mér –
til – Danmerkur? Það var voða fansí.
Í fyrra vantaði okkur ekkert svo við
keyptum geitur frá Hjálparstarfi
kirkjunnar og gáfum hvort öðru.“
Minnisstæðar jólagjafir
Að baki hverri gjöf liggur falleg hugsun og örlítið sögukorn.
Við skvísurnar í Curvy erum sérfræðingar í að finna glæsileg og klæðileg föt sem
henta vaxtarlagi hverrar og einnar
konu, því sem betur fer erum við
ekki allar skapaðar eins,“ segir
Fríða Guðmundsdóttir, kaupkona
í tískuversluninni Curvy.
„Fyrir jólin bjóðum við upp á
flottar jólagjafir sem klæða skvís-
ur af öllum stærðum og gerðum.
Við vitum frá fyrstu hendi að það
er enginn hægðarleikur að gefa
konum gjafir og viljum að allar
konur séu sáttar við sig og sitt.
Þess vegna erum við sveigjan-
legar þegar kemur að skilum og
skiptum,“ segir Fríða.
Tískuverslunin Curv y er
með allt sitt vöruúrval á net-
inu þar sem auðvelt er að panta
það sem hugurinn girnist. Boðið
er upp á ókeypis heimsendingu
hvert á land sem er.
„Í jólapakkann njóta yfir-
hafnir, peysur og leggings
mikilla vinsælda og alltaf
gaman að fá fallegan kjól,“ segir
Fríða í Curvy þar sem glæsi-
legir jólakjólar fást í úrvali.
„Í desember bætast við
þokkafull undirföt sem
koma upp í skálastærð J.
Þá er aðhaldsfatnaður
alltaf vinsæll fyrir jólin og
sniðugt að láta Kertasníki
lauma einu stykki í skóinn
á aðfangadag,“ segir Fríða
og brosir.
„Geti viðkomandi ekki gert upp
hug sinn, eða vill gefa dömunni
dekurdag í verslun, er hægt að
velja upphæð á gjafabréf sem
gildir í verslun Curvy.“
Curvy er með verslun í Nóatúni
17 og netverslun á www.curvy.is.
Skvísujól hjá Curvy
Konur eru dásamlegar í öllum sínum margbreytileika og víst að allar verða
þær að gyðjum í jólafötum frá Curvy sem dásamar kvenleika og ávalar línur.
Fríða Guðmunds-
dóttir, kaupkona í
Curvy.
MYND/DANÍEL
Flott föt fyrir
flottar konur
Stærðir 38-58
Verslunin Belladonna
Skeifunni 8 • 108 Reykjavík • Sími: 517 6460 • www.belladonna.is
Bæjarlind 1-3
201 Kópavogur
Finndu þinn
eigin fatastíl
Vertu vinur okkar á Facebook