Fréttablaðið - 14.11.2013, Page 56
14. nóvember 2013 FIMMTUDAGUR| MENNING | 44
LEIKLIST ★★★★ ★
Eldklerkurinn
Höfundur og leikari: Pétur Eggerz
Leikstjóri: Sigrún Valbergsdóttir
Leikmynd: Rósa Sigrún Jónsdóttir
MÖGULEIKHÚSIÐ SÝNIR ELDKLERKINN
Í HALLGRÍMSKIRKJU.
Sagan af séra Jóni Steingríms-
syni, prófasti Vestur-Skaftfellinga,
hefur lengi verið þjóðinni hugstæð.
Myndin af honum og hinum litla
söfnuði hans í kirkjunni á Klaustri
í júní 1783, þegar hraunflóðið ryðst
í átt að þeim við upphaf Skaftárelda
og Móðuharðinda, hefur greypst í
vitund hennar, þó að trúlega sé sú
mynd nú orðin máð hjá mörgum.
Prestur og söfnuður sameinast í
heitri bæn til Guðs, en enginn flýr
af hólmi, fólkið bíður æðrulaust
sinna örlaga. Og sjá, að messugerð
lokinni hefur hraunið stöðvast,
almættisverk átt sér stað.
Sjálfsævisaga séra Jóns, þar
sem þessum atburðum og fram-
haldi þeirra, er ítarlega lýst, er eitt
af merkisritum bókmenntanna,
eflaust besta rit sinnar tegundar
ásamt Dægradvöl Gröndals og
sögu séra Árna eftir Þórberg. Þar
sameinast mögnuð og dramatísk
aldar farslýsing náinni og opin-
skárri persónusögu höfundar, svo
við fátt verður jafnað. Og það er vel
til fundið hjá Pétri Eggerz að semja
upp úr bókinni einleik sem dregur
fram meginþræði sögunnar með
eðlilegri áherslu á þær raunir sem
á séra Jóni dynja, ekki aðeins af
völdum náttúrunnar, heldur einnig
og ekki síður hrokafullra stjórnar-
herra og lítilmótlegra sveitunga.
Pétur stendur einn á sviðinu allan
tímann og rekur atburði, jafnframt
því sem hann dramatíserar valda
kafla, fer í gervi Jóns og ýmissa
sem á vegi hans verða. Hann fléttar
inn í brot úr kveðskap Jóns um
hamfarirnar, sýnir sterka guðstrú
hans sem sjaldan bilar, léttir ömur-
leika sögunnar með hæfilegum
skömmtum af gamansemi. Þessi
handritsgerð öll er afburða vel
heppnuð og Pétur er sjálfur góður
sögumaður sem heldur okkur föst-
um í tvo klukkutíma með stuttu
hléi. Möguleikhús hans hefur
einkum sinnt börnum og þó þessi
sýning höfði til allra, þyrfti hún
umfram allt að ná yngstu kynslóð-
inni sem fátt veit enn um hin hörðu
kjör forfeðra okkar.
Textameðferð Péturs og fram-
sögn er áheyrileg, en á til að verða
eintóna, einkum þegar fram í sækir
og lýsingarnar verða stórbrotnari.
Það er ekki síst í köflunum eftir hlé
að hann mætti draga af sér sem
sögumaður, hægja á sér og standa
kaldari gagnvart söguefninu sem
eitt sér er kappnóg til að halda
athygli okkar.
Aðstæður í Hallgrímskirkju, þar
sem leikið er, bjóða skiljanlega ekki
upp á fjölbreytta ljósabeitingu sem
sýningin hefði annars notið góðs af.
Leikmunir eru örfáir og táknrænir:
prédikunarstóll, ferðakista, bóka-
kassi, brúnir að lit, á móti græn-
um baksviðsdúk með óljósu stafa-
kroti: græn grundin á leið undir
hraunið, letrið sem geymir minn-
inguna, þráðinn sem eyðingaröflin
fá, þrátt fyrir allt, ekki slitið. Það
er mjög við hæfi að sýna í kirkju,
en ég hygg þó að séra Jón hefði
sjálfur saknað þess að sjá hvergi
neitt krossmark á sviðinu, kenni-
tákn þess sem bar hann á örmum
sér yfir voðann.
Guðni Franzson hefur skapað
sýningunni hljóðheim sem er
snilldin sjálf. Hann er afar hóf-
stilltur og nær hátindi í eldmess-
unni, þar sem fjarlægir brestir og
sprengingar í hrauneðjunni bland-
ast saman við veikan en undur-
fagran flaututón úr fjarska. Vonin
og fyrirheitið frammi fyrir dauð-
anum; pólarnir í sögu Eldklerksins
og þess sem hann reisti líf sitt á.
Jón Viðar Jónsson
NIÐURSTAÐA: Afar vel heppnuð
tilraun til að endursegja eitt af
höfuðritum bókmenntanna og veita
innsýn inn í eitt dramatískasta tímabil
Íslandssögunnar.
Eldklerkur á erindi enn
BÆKUR ★★★★★
Grimmd
Stefán Máni
JPV ÚTGÁFA
Stefán Máni hefur fundið fjölina
sína og gefur e
kki tommu eftir í sínum nýjasta
trylli sem heitir Grimmd.
Frásögnin flengist áfram og að-
dáendur Stefáns Mána fá sitthvað
fyrir sinn snúð. Þetta er stráka-
bók, ef óhætt er að nota svo gróf-
gerðan stimpil; sú fjórða sem
fjallar um lögguna Hörð Grímsson
en hann er einnig í lykil hlutverki
í Hyldýpi, Feigð og Húsinu. Í
Grimmd er smáglæpamaðurinn
William Smári Clover miðpunktur
atburða, athyglisverð andhetja
og skemmtilega teiknuð af höf-
undi. Hann lendir milli steins og
sleggju, vægast sagt.
Í Grimmd er því haldið fram að
sagan byggi á sönnum atburðum.
Og einhvers staðar segir að sann-
leikurinn sé lygilegri en skáld-
skapur. En, þetta er torkennilegt.
Stefán Máni hefur einstakt lag á að
lýsa öllum aðstæðum á lifandi hátt.
Honum hefur farið fram í því sem
heita dramatískar eigindir;
samtöl persóna hans
renna betur með
hverri bókinni en á
móti kemur að pers-
ónusköpunin er of ein-
feldningsleg, brött og
gróf til að trúverðugt
geti talist. Þegar vondi
kallinn brosir, þá brosir
hann „smeðjulega“.
Stefán Máni leitar eftir
raunsæislegum ástæð-
um, einhvers konar sósí-
alrealískum forsendum,
fyrir því að Smári verður
sá glæpamaður sem hann
er: Þrátt fyrir gott upplag þá eru
uppeldisaðstæður hans brútal. Þó
hann sé skemmtileg persóna er
hann jú erkitýpulegur.
Þetta að blanda saman
raunsæi og grófgerðri
og mýtólógískri pers-
ónusköpun virkar alveg
innan þess ramma sem
hinn sérstæði sögu-
heimur Stefáns Mána
ákvarðar, en af hverju
að halda því fram
að um sanna sögu
sé að ræða? Ef höf-
undur vill þróast og
sprengja upp ramm-
ann er það fremur
hæpin slóð að troða.
Vissulega hefur maður heyrt
ótrúlegustu draugasögur af óhæfu-
verkum misgæfulegra íslenskra
glæpamanna og klíkumeðlima. En,
æsispennandi bílaeltingar leikur
um hálendi Íslands, þar sem allt
lendir í steik og blóðugu uppgjöri
er meira eins og maður ímyndar
sér að finna megi í kvikmynda-
handriti að Hollywood-mynd en úr
íslenskum lögregluskýrslum. Þetta
að ætlast til þess að lesandinn setji
sig í þær stellingar að hann sé að
lesa sanna sögu virkar einfaldlega
sem pirrandi ósamræmi.
Jakob Bjarnar Grétarsson
NIÐURSTAÐA: Aðdáendur Stefáns
Mána verða ekki fyrir vonbrigðum,
sagan flengist áfram. En grófgerð
persónusköpun karaktera sem spóka
sig á raunsæislegu sögusviðinu aftra
því að trúverðugleikinn sem sóst er
eftir standist skoðun.
Torkennilegt ósamræmi
GRIMMD „Stefán Máni hefur einstakt lag á að lýsa öllum aðstæðum á lifandi hátt.“
FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
ELDKLERKURINN
„Textameðferð Péturs og
framsögn er áheyrileg, en
á til að verða eintóna“.
PIPA
PP
PPPA
R
\\
TBW
A
TBW
A
TBW
A
TBW
A
SÍA
SÍA
SÍA
SÍA
132
74
3
132
7
32
74
3